16. apr. 2013Innviðaráðuneytið, Rit og skýrslur, Upplýsingatæknimál ríkisins
Vöxtur í krafti netsins
Innanríkisráðuneytið hefur gefi út nýja stefnu í málefnum upplýsingasamfélagsins. Vöxtur í krafti netsins – byggjum, tengjum og tökum þátt er yfirskrift stefnunnar sem kemur í beinu framhaldi af stefnunni Netríkið Ísland 2008 til 2012. Fjallað er um rafræna stjórnsýslu, framboð og notkun á opinberri þjónustu á netinu, samstarf ríkis og sveitarfélaga og síðan eru sett fram mælanleg markmið og fjögurra ára framkvæmdaáætlun.