Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2001–2050 af 2881
    Raða eftir:
    28. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Nýsköpun, Umhverfi og náttúruvernd

    500 milljónir til Loftslagssjóðs – opnað fyrir umsóknir

    Alls verður um 500 milljónum króna varið til Loftslagssjóðs á fimm árum og þar af verða 140 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrstu úthlutun. Opnað var í dag fyrir umsóknir í Loftslagssjóð en stofnun hans er ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum.

    27. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð fer fram í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember

    25. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Sigríður Halldórsdóttir ráðin aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra

    Sigríður Halldórsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.

    22. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breytingar á lögum um loftslagsmál í samráðsferli

    Frumvarp um breytingu á lögum um loftslagsmál hefur verið sett í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frumvarpinu er m.a. ætlað að heimila setningu reglna sem varða kröfur vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt Parísarsamningnum.

    20. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform kynnt um lagafrumvarp um þjóðgarð á miðhálendi Íslands

    Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Þverpólitísk nefnd um undirbúning að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að áherslum sem frumvarpið mun byggja á. Áformin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

    15. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Starfshópur mótar tillögur gegn matarsóun

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp til að móta tillögur að aðgerðum gegn matarsóun. Markmiðið er að gerð verði heildstæð áætlun gegn matarsóun til næstu ára.

    05. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ísland skipar ungmennafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála

    Aðalbjörg Egilsdóttir hefur verið kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland skipar ungmennafulltrúa í málaflokknum. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt fjármagni til þess að Aðalbjörg geti sótt loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember í umboði íslenskra ungmenna en ráðstefnan fer fram í Madrid á Spáni.

    01. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Möguleikar hringrásarhagkerfisins kannaðir á Norðurlöndunum

    Norrænir umhverfis- og loftslagsráðherrar hafa ákveðið að láta kanna þau tækifæri sem felast í hringrásarhagkerfinu og hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til að hrinda því í framkvæmd á Norðurlöndunum. Á fundi ráðherranna í Stokkhólmi í vikunni var endurheimt landgæða enn fremur til umfjöllunar.

    01. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu votlendissvæðis Fitjaár í Skorradal í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu votlendis og óshólma Fitjaár í Skorradal sem friðland. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Skorradalshrepp.

    01. nóv. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir þáttaröðina „Hvað getum við gert?”

    Ríkisstjórnin mun styrkja þáttaröðina „Hvað getum við gert?“ um 10 millj. kr. af ráðstöfunarfé sínu. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    01. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Umsækjendur um embætti forstjóra Umhverfisstofnunar

    Tólf umsækjendur sóttu um embætti forstjóra Umhverfisstofnunar, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 12. október síðastliðinn.

    31. okt. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Lyfjaleifar í íslensku umhverfi

    Samantekt Matís um lyfjaleifar í íslensku umhverfi, losun út í umhverfið og væntanlegt magn og áhættu.

    31. okt. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Örplast í hafinu við Ísland - Helstu uppsprettur, magn og farvegir í umhverfinu

    Samantekt Sjávarlíftæknisetursins Biopol um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og farvegi þess til sjávar.

    31. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Skýrslur um örplast og lyfjaleifar í íslensku umhverfi kynntar

    Tvær skýrslur sem unnar voru fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið voru kynntar á málþingi sem fram fór í dag. Annars vegar er um að ræða samantekt Sjávarlíftæknisetursins Biopol um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og farvegi þess til sjávar og hins vegar samantekt Matís um lyfjaleifar í íslensku umhverfi, losun út í umhverfið og væntanlegt magn og áhættu.

    30. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið norrænt samstarf í málefnum hafs og loftslags

    Norrænir umhverfis- og loftslagsráðherrar undirrituðu í dag yfirlýsingu um sjálfbærni í hafmálum á Norðurlöndum og nauðsyn þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga á hafið en fundur þeirra stendur nú yfir í Stokkhólmi. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og er hafið eitt af áherslumálum Íslands.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Samkomulag Íslands og Noregs við ESB á sviði loftslagsmála

    Gengið var frá samkomulagi Íslands og Noregs við Evrópusambandið á sviði loftslagsmála í dag, með ákvörðun á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Með samkomulaginu eykst samvinna Íslands og Noregs með ríkjum ESB á sviði loftslagsmála og ríkin búa við sambærilegar reglur og skuldbindingar.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Málþing um örplast og lyfjaleifar í íslensku umhverfi

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til málþings 31. október þar sem kynntar verða niðurstöður skýrslna um helstu uppsprettur örplasts á Íslandi og lyfjaleifar í íslensku umhverfi.

    22. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka

    Styrkjum úthlutað til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt

    Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum.

    11. okt. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Samanburður á löggjöf nokkurra nágrannaþjóða um mat á umhverfisáhrifum

    Rannsóknin til undirbúnings heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum

    11. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Guðmundur Ingi ræðir náttúruvernd og loftslagsmál á Hringborði norðurslóða

    Loftslagsmál og norðurskautið eru í forgrunni tvíhliða funda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur átt á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu. Fjallað verður um Vatnajökulsþjóðgarð og friðlýst svæði á norðurslóðum á sérstakri málstofu á ráðstefnunni á morgun.

    09. okt. 2019Orka, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ísland stendur sig mjög vel í orkuskiptum í samgöngum

    Ísland er á toppi lista Nordic Energy Reaserch ásamt Noregi í rafbílavæðingu.

    08. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur. Um er að ræða nýja reglugerð sem hefur það að markmiði að einfalda og auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta aðgengi að henni.

    04. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Frumvarp um breytingar á starfsleyfis- eða skráningarskyldri starfsemi í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Markmið með frumvarpinu er að einfalda stjórnsýslu og regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

    25. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Auðlindir

    Vöktun á súrnun sjávar og jöklum aukin

    Ríflega 250 milljónum króna verður varið til að efla vöktun á súrnun sjávar og á jöklum næstu fimm árin hér á landi. Þetta var tilkynnt í dag í tilefni útkomu nýrrar skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og freðhvolfið.

    23. sep. 2019Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Aukin neytendavernd á sviði raforkumála

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur sett til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um raforkuviðskipti. Er þar um uppfærslu á eldri reglugerð að ræða þar sem nánar er kveðið á um rétt neytenda og skyldur sölu- og veitufyrirtækja gagnvart neytendum.

    18. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Nýtt loftslagsráð tekið til starfa

    Nýtt loftslagsráð kom saman í fyrsta sinn í gær en því er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem Loftslagsráð er skipað.

    17. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Samgöngur og fjarskipti

    Evrópsk samgönguvika hafin

    „Göngum‘etta“ er yfirskrift Samgönguviku í ár, en hún hófst í gær, 16. september. Um er að ræða samevrópska viku sem árlega stendur yfir dagana 16. – 22. september.

    16. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Jörðin Dynjandi gefin íslenska ríkinu í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins

    Í tilefni af 75 ára lýðveldisafmæli Íslands hefur RARIK fært íslenska ríkinu jörðina Dynjanda við Arnarfjörð að gjöf. Formleg afhending fór fram í dag, á Degi íslenskrar náttúru. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti gjöfinni fyrir hönd ríkisins.

    16. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Viðurkenningar á Degi íslenskrar náttúru

    Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson veitti í dag á Degi íslenskrar náttúru Sagafilm fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Jóni Stefánssyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

    16. sep. 2019Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Menntamál, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Degi íslenskrar náttúru fagnað í grunnskólum

    Fjölmargir grunnskólanemendur víðs vegar um landið taka þátt í sameiginlegu verkefni í tilefni dags íslenskrar náttúru sem haldinn er hátíðlegur í dag.

    13. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Umhverfi og náttúruvernd

    Spurningar og svör um friðlýsingar í verndarflokki rammaáætlunar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur unnið samantekt í formi spurninga og svara um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða (rammaáætlun) og vinnu við undirbúning friðlýsinga á grundvelli hennar.

    12. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra sjósetur flothylki sem sýnir ferðir rusls í hafi á norðurslóðum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sjósetti í dag flothylki til að sýna hvernig rusl í hafi ferðast til og frá norðurslóðum. Verkefnið tengist formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og er ætlað að stuðla að aukinni þekkingu og meðvitund um rusl í hafi, ekki síst plasti.

    11. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurheimt landgæða lykilatriði í baráttunni gegn loftslagsvánni – ráðherra ávarpaði aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) fyrir Íslands hönd. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að ríki heims reyndu að tryggja sjálfbæra landnýtingu og endurheimt vistkerfa til að sporna við hamfarahlýnun af mannavöldum.

    09. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Endurheimt landgæða einn stærsti þátturinn í baráttunni við loftslagsvána - Viljayfirlýsing undirrituð

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Inger Andersen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) undirrituðu í gær viljayfirlýsingu Íslands og UNEP um samstarf á sviði landgræðslu. Guðmundur Ingi er staddur á aðildarríkjaþingi Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) í Nýju Delí á Indlandi þar sem ráðherrahluti þingsins hófst í dag.

    09. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Umhverfi og náttúruvernd

    Tilnefningar til Fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru 2019

    Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til Fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september. Tilnefnd til verðlaunanna eru í stafrófsröð: Bára Huld Beck og Birna Stefánsdóttir, Sagafilm, Sigríður Halldórsdóttir og ritstjórn Stundarinnar.

    09. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Sjö verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

    Tilkynnt var um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs á lýðræðishátíðinni Lýsu á Akureyri um helgina.

    04. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðildarríkjaþing Samnings SÞ um varnir gegn eyðimerkurmyndun hafið í Nýju Delí

    Aðildarríkjaþing Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD) var sett í Nýju-Delí á mánudag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra sækir ráðherrahluta þingsins í næstu viku. Loftslagsmál verða fyrirferðarmikil á þinginu og þær lausnir sem felast í bættri landnýtingu.

    30. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2019

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veiðitímabil rjúpu verði frá 1. nóvember – 30. nóvember. Leyft er að veiða fimm daga í viku, frá föstudögum til þriðjudaga í hverri viku. Veiðibann er miðvikudag og fimmtudaga. Áfram er í gildi sölubann á rjúpum og eru veiðimenn hvattir til hófsemi í veiðum.

    30. ágú. 2019Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Að gefnu tilefni: Ekkert liggur fyrir um að sæstrengsverkefni ASC muni uppfylla íslenskar kröfur

    Ástæða er til að árétta að þriðji orkupakkinn er því fjarri því að innihalda fullnægjandi regluverk til að sæstrengur geti orðið að veruleika og hann tekur ekki ákvörðunarvald um lagningu nýrra strengja af íslenskum stjórnvöldum

    29. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Heimild til flutnings gæludýra í almenningsvögnum í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um hollustuhætti.

    26. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Skipun nýrra stjórna fyrir ÍSOR og Úrvinnslusjóð

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað stjórnir Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) og Úrvinnslusjóðs, en skipunartími þeirra beggja er til fjögurra ára.

    18. ágú. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsætisráðherra segir róttækra aðgerða þörf til að bregðast við hamfarahlýnun

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í athöfn í dag sem fram fór við Ok í tilefni þess að komið var fyrir minnisvarða um jökulinn sem var en er nú horfinn.

    10. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Vatnasvið Jökulsár á Fjöllum fyrsta svæðið sem friðlýst er gegn orkuvinnslu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Þetta er fyrsta friðlýsing svæðis í verndarflokki rammaáætlunar. Undirritunin fór fram í Ásbyrgi og er hluti af átaki stjórnvalda í friðlýsingum.

    08. ágú. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Barátta gegn landeyðingu mikilvæg gegn loftslagsvánni

    Ný skýrsla Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) segir að brýnt sé að stöðva eyðingu skóga og jarðvegs til að sporna við losun gróðurhúsalofttegunda og efla viðnám vistkerfa gegn loftslagsvánni. Loftslagsbreytingar ógna vistkerfum á landi og fæðuöryggi mannkyns. Aðgerðir í aðgerðaáætlun stjórnvalda um bætta landnýtingu í þágu loftslagsmála falla vel að niðurstöðum IPCC.

    18. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaóss í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaóss. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Fljótsdalshérað.

    18. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Goðafoss í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Goðafoss í Þingeyjarsveit. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Þingeyjarsveit.

    11. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur íslenskrar náttúru, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 23. ágúst næstkomandi.

    11. júl. 2019Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra

    júlí 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra Ársskýrsla 2018 - Umhverfis- og auðlindaráðherra

    10. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Breyting á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð í umsagnarferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð. Breytingin varðar reglur um atvinnutengda starfsemi innan þjóðgarðsins.

    08. júl. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Framkvæmdasýsla ríkisins í aukið samstarf

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) undirrituðu sl. föstudag yfirlýsingu um aukið samstarf milli ráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar vegna uppbyggingar innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

    • First
    • Prev
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband