10. sep. 2020Utanríkisráðuneytið, Annað, neyð, Sameinuðu þjóðirnar, Þróunarsamvinna, WFP, Fjölþjóðastofnanir
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sendir WFP heillaóskir vegna friðarverðlauna Nóbels
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hlaut í dag friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu stofnunarinnar gegn hungri, fyrir að stuðla að bættum aðstæðum fyrir friði á átakasvæðum, og fyrir aðgerðir til að afstýra því að hungur sé notað sem vopn í átökum. „Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur um langt skeið verið ein af áherslustofnunum Íslands í neyðar- og mannúðaraðstoð og friðarverðlaun Nóbels eru að mínum dómi mjög verðskulduð viðurkenning fyrir ómetanlegt starf á átakasvæðum sem stuðlar að friði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sem sendi WFP heillaskeyti í morgun.