07. jún. 2020Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna fá skýrslu Björns Bjarnasonar um þróun norræns samstarfs á sviði utanríkis- og öryggismála
Á fundi sínum í Stokkhólmi þann 30. október 2019 ákváðu utanríkisráðherrar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar að fela Birni Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra, að skrifa óháða skýrslu þar sem gerðar yrðu tillögur um þróun samstarfs Norðurlandanna á sviði utanríkis- og öryggismála. Var það gert að tillögu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í tilefni af því að áratugur er liðinn síðan Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, var falið að skrifa sambærilega skýrslu, en stórum hluta þeirra tillagna hefur verið hrint í framkvæmd.