15. júl. 2022Dómsmálaráðuneytið, Kærunefnd útlendingamála, Úrskurðir
Nr. 170/2022 Úrskurður
Réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála í málum aðila, dags. 23. júní 2022, er frestað á meðan aðilar reka mál sín fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegum ákvörðunum í málum sínum á stjórnsýslustigi. Frestun réttaráhrifa úrskurðarins eru bundin því skilyrði að aðilar beri málin undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar þessarar og óski eftir flýtimeðferð. Sé beiðni um flýtimeðferð synjað skal höfðað mál innan sjö daga frá þeirri synjun.