Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2101–2150 af 2881
    Raða eftir:
    19. mar. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málefnaáherslur framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn UNESCO kynntar í ríkisstjórn

    Málefnaáherslur framboðs Íslands til setu í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) voru kynntar á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    18. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

    Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2019. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

    15. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ályktað um lausnir við áskorunum í umhverfismálum, sjálfbæra neyslu og plast í hafi á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna

    Umhverfisráðherrar heimsins ályktuðu m.a. um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, úrgangsstjórnun og sjálfbæra nýtingu lands á Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Einnig voru fjölmargar ályktanir um tiltekin málefni samþykktar, þar á meðal ályktun um ferli til að ná á alþjóðavísu utan um plastmengun í hafi og örplast. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tekið þátt í fjölda leiðtogaumræðna, funda og annarra viðburða á þinginu.

    14. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Ósjálfbær neysla okkar hefur alvarleg áhrif á umhverfi og loftslag“ – ráðherra ávarpaði Umhverfisþing SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Neysla, sóun, náttúruvernd og barátta gegn plastmengun var meðal þess sem ráherra lagði áherslu á.

    11. mar. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna hófst í Naíróbí í Kenía í dag. Á þinginu eru rædd ýmis brýn úrlausnarefni sem fyrir liggja í umhverfismálum á heimsvísu og í þetta sinn verða sjálfbær neysla og framleiðsla í brennidepli.

    05. mar. 2019Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Ræða ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á ársfundi Landsvirkjunar

    Nýting og sóun á raforku, samkeppni, eignarhald, markaðsbúskapur og „markaðspakkar“, þjóðareign og vindorka voru á meðal þeirra orkutengdu málefna sem að Þór­dís Kol­brún Gylfadótt­ir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp­un­ar­ráðherra ræddi í ræðu sinni á ársfundi Landsvirkjunar.

    28. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurskoðun á ákvæðum um almannarétt í náttúruverndarlögum í samráð

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum við drög að breytingu á lögum um náttúruvernd. Breytingin varðar m.a. ákvæði um almannarétt auk þess sem gerðar eru breytingar á ákvæðum er varða stjórnsýslu innflutnings framandi lífvera.

    26. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurnýjun samstarfssamnings um Landgræðsluskóga

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands, Landgræðslan og Skógræktin hafa endurnýjað samning um rekstur og framkvæmd Landgræðsluskóga til næstu fimm ára.

    22. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tillögum að handhöfum umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

    Norðurlandaráð auglýsir eftir tillögum að handhöfum náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2019. Þema Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs á þessu ári eru verkefni sem stuðla að sjálfbærri neyslu og framleiðslu með því að gera meira og betur með minna.

    21. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur umhverfisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2018

    Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2018. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins 25. apríl.

    21. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál

    Grænfánaskólar eflast og aukin áhersla lögð á fræðslu um loftslagsbreytingar

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, hafa undirritað þriggja ára styrktarsamning vegna Skóla á grænni grein, eða Grænfánaverkefnisins svokallaða.

    20. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum í kynningu

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Árneshrepp.

    20. feb. 2019Úrskurðarnefnd raforkumála, Úrskurðir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 1/2018 - Kæra Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf. á ákvörðun Orkustofnunar

    febrúar 2019 / Úrskurðarnefnd raforkumála Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 1/2018 - Kæra Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf

    14. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Hreindýrakvóti ársins 2019

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2019 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1451 dýr á árinu, 1043 kú og 408 tarfa. Um er að ræða sama fjölda dýra og hreindýrakvóti fyrra árs kvað á um.

    07. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breytingar á lögum um loftslagsmál í samráðsferli

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um loftslagsmál.

    07. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkir til verkefna og rekstrar 2019

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Þá hefur ráðuneytið úthlutað rekstrarstyrkjum til frjálsra félagasamtaka.

    05. feb. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið við stefnu Íslands um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út viðauka við stefnuna „Saman gegn sóun“, sem er stefna Íslands um úrgangsforvarnir 2016-2027.

    30. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra mælir fyrir frumvarpi um bann við burðarplastpokum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem varðar notkun burðarpoka.

    30. jan. 2019Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Þrífösun rafmagns verði flýtt – Skaftárhreppur og Mýrar í fyrsta áfanga

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mun leggja til þriggja ára átak í að flýta þrífösun rafmagns í væntanlegri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2020-2024. Þetta er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þar sem kveðið er á um að flýta áformum um þrífösun. Átakið hefur einnig beina skírskotun til byggðaáætlunar sem Alþingi samþykkti síðastliðið sumar, þar sem áhersla er lögð á þrífösun.

    29. jan. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðasamningar, Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Aðgerðaáætlun um Árósasamninginn 2018-2021

    janúar 2019 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Aðgerðaáætlun um Árósasamninginn 2018-2021 Aðgerðaáætlunin er sett fram til að fylgja eftir landsskýrslum Íslands vegna Árósasamningsins sem og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Aðgerðaáætlun um Árósasamninginn 2018-2021

    28. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Atvinnuvegaráðuneytið

    Loftslagsvænni landbúnaður ræddur í ríkisstjórn

    Umhverfis- og auðlindaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa kynnt í ríkisstjórn ramma um samstarfsverkefni við sauðfjárbændur um loftslagsvænni landbúnað en í stjórnarsáttmála er kveðið á um samstarfsverkefni stjórnvalda og sauðfjárbænda um aðgerðir í loftslagsmálum.

    25. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Sameiginleg yfirlýsing Norðurlandanna um kolefnishlutleysi

    Sameiginleg yfirlýsing Norðurlandanna um loftslagsmál var undirrituð á fundi norrænu forsætis- og umhverfisráðherranna um loftslagsmál í Helsinki í dag. Þar er lögð áhersla á að Norðurlöndin vilji vera leiðandi í loftslagsmálum. Meðal þess sem gert verður er að efla samvinnu á fjölmörgum sviðum loftslagsmála, til dæmis hvað varðar kolefnishlutleysi.

    25. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra funduðu um loftslagsmál í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisáðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu fund norrænna forsætisráðherra (N5) og norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál í Helsinki.

    24. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breyting á reglugerð um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út breytingu á reglugerð um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, sem m.a. varðar loftslagsmál.

    24. jan. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Forsætisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra funda um loftslagsmál í Helsinki

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisáðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra halda af stað til Helsinki í Finnlandi í dag á fund norrænna forsætisráðherra (N5) og norrænna umhverfisráðherra um loftslagsmál sem fer fram í Helsinki á morgun.

    18. jan. 2019Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti í íslenskum höfnum - skýrsla

    Eitt af þeim verkefnum sem stjórnvöld vinna að í tengslum við aðgerðir í loftslagsmálum eru orkuskipti í haftengdri starfsemi og er stefnt að því að hlutdeild endurnýjanlegrar orku verði að minnsta kosti 10% árið 2030. Nú hefur verið lögð fram skýrsla með aðgerðaáætlun um orkuskipti í íslenskum höfnum þar sem sérstök áhersla er lögð á raftengingu til skipa. Skýrslan var unnin af Íslenskri Nýorku ehf. og Hafinu og var unnin í víðtæku samráði við lykilaðila sem tengjast uppbyggingu innviða fyrir raftengingar skipa í höfnum.

    18. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið vægi umhverfismála í huga almennings

    Um 83% landsmanna hafa áhyggjur af hlýnun jarðar og um 60% hugsa mikið um hvað þau geta gert til að draga úr áhrifum sínum á loftslagið, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Á tólf mánuðum hefur orðið veruleg vitundarvakning meðal Íslendinga.

    18. jan. 2019Auðlindir, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti í íslenskum höfnum - skýrsla og glærur frá fundi

    Eitt af þeim verkefnum sem stjórnvöld vinna að í tengslum við aðgerðir í loftslagsmálum eru orkuskipti í haftengdri starfsemi og er stefnt að því að hlutdeild endurnýjanlegrar orku verði að minnsta kosti 10% árið 2030. Nú hefur verið lögð fram skýrsla með aðgerðaáætlun um orkuskipti í íslenskum höfnum þar sem sérstök áhersla er lögð á raftengingu til skipa.

    14. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd

    Átaksverkefni í jarðfræðikortlagningu Íslands og skráningu jarðminja

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Náttúrufræðistofnun Íslands hafa gert samning um átaksverkefni í jarðfræðikortlagningu Íslands og skráningu jarðminja.

    10. jan. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Orka, Auðlindir

    Mikill áhugi á vindorku – húsfyllir á málþingi

    Fullt var út úr dyrum á málþingi um vindorku sem verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar stóð fyrir í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins í gær. Á málþinginu var fjallað um ólíkar hliðar vindorku og þau áhrif sem vindorkumannvirki hafa á umhverfi og náttúru.

    08. jan. 2019Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Mótun nýrrar orkustefnu - opið fyrir tillögur og ábendingar til 1. febrúar

    Mikil áhersla er lögð á víðtækt samráð við mótun stefnunnar og nú á fyrstu stigum verkefnisins er kallað eftir á samráðsgátt stjórnvalda hvers kyns tillögum, ábendingum og hugmyndum frá einstaklingum, hagsmunasamtökum og fyrirtækjum varðandi áherslur, efnistök og innihald nýrrar orkustefnu.

    21. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Áform um friðlýsingar svæðis í Þjórsárdal og Reykjatorfunnar í Ölfusi

    Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu tveggja svæða. Annað er í Þjórsárdal og hitt er Reykjatorfan í Ölfusi. Áformin eru annars vegar kynnt í samstarfi við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og forsætisráðuneytið og hins vegar í samstarfi við sveitarfélagið Ölfus, Hveragerðisbæ og umráðendur ríkisjarða. Um er að ræða fyrstu friðlýsingar sem falla undir viðkvæm svæði undir álagi ferðamanna í sérstöku átaki í friðlýsingum, í samræmi við áherslur í sáttmála ríkisstjórnarinnar.

    19. des. 2018Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Rit og skýrslur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Áhrif friðlýstra svæða á framleiðslu og atvinnu í næsta umhverfi

    desember 2018 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Áhrif friðlýstra svæða á framleiðslu og atvinnu í næsta umhverfi Niðurstöður rannsóknar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á áhrifum friðlýstra svæða á framleiðslu og atvinnu í næsta umhverfi. Áhrif friðlýstra svæða á framleiðslu og atvinnu í næsta umhverfi

    19. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Skýrsla um efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða afhent ráðherra

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fékk í dag afhenta skýrslu með niðurstöðum rannsóknar á áhrifum friðlýstra svæða á framleiðslu og atvinnu í næsta umhverfi. Rannsóknin, sem tók til 12 svæða á Íslandi, sýnir að efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða á Íslandi eru ótvírætt jákvæð.

    19. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Líf og heilsa

    Efnainnihald svifryks mælt, aðvaranir til almennings og starfshópur skipaður vegna flugeldamengunar

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa gert með sér samning um mælingar á efnasamsetningu svifryks nú um áramótin. Um sérstakt átaksverkefni er að ræða til að bregðast við mengun vegna flugelda. Þá hefur umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp ráðuneytanna til að móta tillögur um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum á lýðheilsu og loftgæði vegna flugeldamengunar.

    18. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landgræðsla og skógrækt, Umhverfi og náttúruvernd

    Ný heildarlög um landgræðslu samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti á síðasta starfsdegi fyrir jólafrí ný lög um landgræðslu. Um heildarendurskoðun er að ræða á eldri lögum frá 1965.

    13. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið

    Ísland, Noregur og ESB samstíga um markmið í loftslagsmálum

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði í dag með Miguel Arias Cañete, framkvæmdastjóra loftslagsmála hjá ESB og Ola Elvestuen, umhverfisráðherra Noregs, á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Katowice í Póllandi. Þar var farið yfir stöðu mála varðandi samvinnu í loftslagsmálum og drög að samkomulagi sem nú liggja fyrir milli Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um sameiginlega framkvæmd 30 ríkja á markmiðum Parísarsamningsins til 2030.

    12. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Verðum að fylgja leiðsögn vísindanna“ – umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði Loftslagsráðstefnu Sþ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Hann þakkaði IPCC fyrir skýrslu sína um loftslagsmál og lagði áherslu á að Ísland áliti hana mikilvægt leiðarljós í verkefninu sem fram undan væri.

    10. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðherra ræðir um plast og orku á Loftslagsráðstefnu SÞ

    Ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna stendur sem hæst í Katowice í Póllandi og fundir ráðherra hófust í dag.

    06. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Samstarfsyfirlýsing um landbúnað og náttúruvernd undirrituð

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, undirrituðu á Hvanneyri í dag yfirlýsingu um að vinna saman að málefnum landbúnaðar og náttúruverndar. Yfirlýsinguna má meðal annars rekja til átaks í náttúruvernd sem byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar.

    03. des. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

    Íslensk sendinefnd er nú komin til Katowice í Póllandi þar sem 24. ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (Cop24) var sett í gær.

    30. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Utanríkisráðuneytið

    Stefnt að sameiginlegri framkvæmd á Parísarmarkmiðum

    Drög að samkomulagi liggja fyrir milli Íslands og Noregs annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar um sameiginlega framkvæmd á markmiðum Parísarsamningsins í loftslagsmálum til 2030.

    30. nóv. 2018Úrskurðarnefnd raforkumála, Úrskurðir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 4/2018 Advania vs Orkustofnun

    nóvember 2018 / Úrskurðarnefnd raforkumála Úrskurður úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 4/2018 Advania vs Orkustofnun Nr

    28. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Mikill munur á losun frá býlum í íslenskum landbúnaði

    Talsverður breytileiki er milli búa í losun gróðurhúsalofttegunda og möguleikar til bindingar kolefnis eru einnig misjafnir. Þetta eru niðurstöður Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins eftir úttekt þeirra á losun gróðurhúsalofttegunda á fimm íslenskum búum.

    27. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Boðað til kynningarfundar vegna fyrstu verkefna nefndar um miðhálendisþjóðgarð

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boða til opins fundar vegna vinnu nefndarinnar. Á fundinum verða kynnt fyrstu tvö verkefni nefndarinnar sem nýverið voru sett á samráðsgátt stjórnvalda, auk þess sem sagt verður frá stöðu vinnunnar og þeim verkefnum sem framundan eru.

    21. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í kynningu

    Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu hefur sett drög að fyrstu tveimur verkefnum sínum í almenna kynningu í Samráðsgátt Stjórnarráðsins. Um er að ræða annars vegar greiningu nefndarinnar á tækifærum með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf og hins vegar tillögur nefndarinnar að helstu áherslum í atvinnustefnu þjóðgarðs á miðhálendinu.

    21. nóv. 2018Orka, Auðlindir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Spurningar og svör um þriðja orkupakka ESB á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins

    Til að útskýra hvað felst í þriðja orkupakka ESB hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið tekið saman svör við mörgum af þeim helstu spurningum sem uppi hafa verið. Jafnframt er vísað í greinar og kynningar sem þykja upplýsandi um þriðja orkupakkann.

    20. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fiskeldi, Umhverfi og náttúruvernd

    Undanþágur frá starfsleyfi fyrir starfsemi Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. veittar með skilyrðum

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt fyrirtækjunum Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. tímabundna undanþágu með skilyrðum, frá kröfu um starfsleyfi. Arctic Sea Farm hf. er þar með veitt heimild til að framleiða 600 tonn árlega og Fjarðalaxi hf. 3.400 tonn árlega af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Framangreindar undanþágur munu falla úr gildi í síðasta lagi 5. september 2019.

    20. nóv. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ísland til sérstakrar umfjöllunar á Global Positive Forum í París

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

    16. nóv. 2018Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál

    Ráðherra fylgir forseta Íslands til Lettlands

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fylgir forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, í opinberri heimsókn til Lettlands sem hófst í dag. Heimsóknin stendur til 18. nóvember næstkomandi.

    • First
    • Prev
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband