Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2151–2200 af 3353
    Raða eftir:
    28. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Karlalandsliðið í fótbolta boðið velkomið heim

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hittu landsliðshópinn sem kom heim frá heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi í höfuðstöðvum KSÍ í gærkvöldi.

    26. jún. 2018Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Menntun fyrir alla, Atvinnuvegaráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið

    Forgangsmarkmið Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna samþykkt

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að forgangsraða 65 af 169 undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna við innleiðingu þeirra á Íslandi.

    25. jún. 2018Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Stöðuskýrsla 2018 um framgang heimsmarkmiðanna á Íslandi

    Verkefnastjórn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna ritaði skýrslu um stöðu Íslands gagnvart markmiðunum á innlendum og erlendum vettvangi. Í skýrslunni eru kortlögð helstu verkefni, áætlanir og áskoranir stjórnvalda gagnvart tilteknum markmiðum en á grunni þeirrar vinnu lagði verkefnastjórnin jafnframt fram forgangsmarkmið sem munu vísa stjórnvöldum veginn við innleiðingu markmiðanna næstu árin.

    21. jún. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar í embætti aðstoðarseðlabankastjóra

    Forsætisráðherra hefur samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands ákveðið að skipa Rannveigu Sigurðardóttur í embætti aðstoðarseðlabankastjóra til fimm ára frá og með 1. júlí 2018.

    20. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Menntamál

    Forsætisráðherra opnar EURAM ráðstefnu og heimsækir Háskóla Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, opnaði ráðstefnu EURAM (European Academy of Management) í Háskólabíó í dag.

    19. jún. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Tæpum 100 milljónum króna úthlutað úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júní

    Í dag var styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands úthlutað við hátíðlega athöfn á Hótel Borg. Að þessu sinni hlutu 28 umsækjendur styrk til verkefna og rannsókna sem er ætlað að efla kynjajafnrétti í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. „Börn á tímum kynlífsvæðingar og stafrænnar tækni: Rannsóknir og aðgerðir", verkefni Önnudísar Grétu Rúdólfsdóttur, hlaut hæsta styrkinn, samtals 10 milljónir króna. Næsthæsta styrkinn, níu milljónir króna, hlaut Arnhildur Gréta Ólafsdóttir fyrir gerð heimildarmyndarinnar „Full Steam Ahead.“

    19. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytt skipan velferðarráðuneytis í undirbúningi

    Forsætisráðherra, að höfðu samráði við félags- og jafnréttismálaráðherra og heilbrigðisráðherra, hyggst hefja undirbúning að breyttri skipan velferðarráðuneytis.

    19. jún. 2018Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd um jafnréttismál fundar á kvenréttindadeginum 19. júní

    Ráðherranefnd um jafnréttismál kom saman til fundar í forsætisráðuneytinu í dag á kvenréttindadeginum.

    17. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, las upp úr 100 ára gamalli dagbókarfærslu Elku Björnsdóttur, verkakonu í Reykjavík, í ávarpi sínu á Austurvelli í dag, 17. júní 2018. Elka var 37 ára árið 1918, vann við að ræsta skrifstofur í Reykjavík og átti þátt í stofnun verkakvennafélagsins Framsóknar og Alþýðuflokks Íslands

    16. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Ríkisstjórn Íslands sendir kveðju til karlalandsliðsins í Moskvu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sendi karlalandsliði Íslands í knattspyrnu kveðju frá ríkisstjórn Íslands í dag.

    13. jún. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar framtíðarnefnd vegna tæknibreytinga

    Nefndinni er ætlað að fjalla um helstu tækifæri og ógnanir Íslands í framtíðinni m.t.t. langtímabreytinga á umgengni við náttúruna, lýðfræðilegra breytinga og þeirra hröðu umskipta sem eru í vændum með síaukinni sjálfvirkni og tæknibreytingum.

    11. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherrabifreiðar verða rafvæddar

    Samkvæmt tillögu forsætisráðherra, sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun 6. nóvember, verða ráðherrabifreiðar rafvæddar. Er það í samræmi við loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

    06. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    742/2018. Úrskurður frá 6. júní 2018

    Starfsmaður fjölmiðils kærði ákvörðun Sinfóníuhljómsveitar Íslands um að synja beiðni um aðgang að styrktarsamningi hljómsveitarinnar við sjóðsstýringarfyrirtækið GAMMA. Af hálfu Sinfóníuhljómsveitarinnar kom fram að GAMMA liti á samninginn sem upplýsingar um fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækisins sem eðlilegt og sanngjarnt væri að færi leynt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd féllst ekki á þetta með hliðsjón af því að um ráðstöfun opinberra hagsmuna væri að ræða og lagði fyrir hljómsveitina að veita kæranda aðgang að samningnum í heild sinni.

    06. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    741/2018. Úrskurður frá 6. júní 2018

    Kærandi kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lutu að því að beiðnunum hefði ekki verið svarað að liðnum 9-17 dögum frá dagsetningu þeirra og leit úrskurðarnefndin svo á að um væri að ræða kærur vegna óhóflegra tafa á meðferð þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga og 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af mati á efni beiðnanna og fjölda beiðna sem kærandi hefur beint til sveitarfélagsins komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri um óhóflega töf á meðferð beiðnanna að ræða. Var kærunum því vísað frá úrskurðarnefndinni í einu lagi.

    06. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    740/2018. Úrskurður frá 6. júní 2018

    Farið var fram á endurupptöku máls sem lyktaði með uppkvaðningu úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 740/2018 þar sem ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun beiðni um aðgang að minnisblaði borgarlögmanns var staðfest með vísan til þess að það væri vinnugagn skv. 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Í beiðni um endurupptöku var vísað til þess að í úrskurði nefndarinnar væri sérstaklega tekið fram að fyrirmælum 11. gr. laganna um aukinn aðgang hefði ekki verið fylgt við meðferð beiðninnar. Úrskurðarnefndin tók fram að þetta brot á málsmeðferðarreglu 2. mgr. 11. gr. upplýsingalaga hefði ekki verið talið fela í sér nægjanlega verulegan annmarka til að réttlæta ógildingu ákvörðunar borgarinnar. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.

    06. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    739/2018. Úrskurður frá 6. júní 2018

    Samtök umgengnisforeldra kærðu meðferð Þjóðskrár Íslands á beiðni þeirra um aðgang að nöfnum og kennitölum umgengnisforeldra á Íslandi. Af hálfu Þjóðskrár kom m.a. fram að stofnunin hefði ekki tekið upplýsingarnar saman og ef til þess kæmi þyrfti að framkvæma vinnslur þar sem keyrðar væru saman fleiri en ein skrá og margar samkeyrslur þar innan. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál lagði til grundvallar að Þjóðskrá hefði ekki í vörslum sínum skrá yfir umbeðnar upplýsingar, þó ljóst væri að stofnuninni væri með ýmsum aðgerðum kleift að sækja yfirlit úr skrám sínum um umgengnisforeldra. Fallist var á með Þjóðskrá að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga og kæru kæranda vísað frá.

    06. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    738/2018. Úrskurður frá 6. júní 2018

    Kærð var ákvörðun Landspítala um að synja beiðni um aðgang að upplýsingum um lækna sem framkvæmdu ákveðnar aðgerðir á sjúkrahúsinu. Landspítali vísaði til þess að upplýsingarnar væru ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, þrátt fyrir að þær væru til staðar í ýmsum skjölum og gögnum í vörslum spítalans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á þetta og vísaði beiðni kæranda til nýrrar meðferðar hjá Landspítala.

    04. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra fundaði með lögmanni Færeyja

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti óformlegan fund með Aksel V. Johannesen, lögmanni Færeyja, í Þinganesi í Færeyjum í dag.

    04. jún. 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra hélt ávarp á ársfundi Seðlabanka Íslands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt ávarp á ársfundi Seðlabanka Íslands í gær.

    04. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Menningarmál, Heimsmarkmiðin

    Ungmennaráð Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna kemur saman í fyrsta sinn

    Ungmennaráð Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna kom saman á sínum fyrsta fundi í forsætisráðuneytinu í dag.

    04. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund Norðurlanda og forsætisráðherra Indlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun sækja leiðtogafund Norðurlanda og Indlands í Stokkhólmi 17. apríl n.k.

    04. jún. 2018Dómsmálaráðuneytið, Menningarmál, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Samtökin ´78 fá styrk frá ríkisstjórn Íslands í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, að veita 3,5 millj. kr. framlag af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar í verkefni á vegum Samtakanna´78 í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna.

    03. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál

    Loftslagsstefna og loftslagsaðgerðir fyrir Stjórnarráðið

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja 12 milljónir króna af stefnufé árið 2018 til gerðar loftslagsstefnu og aðgerðaáætlunar fyrir Stjórnarráðið. Hluti fjármagnsins verður notaður í vinnu sérfræðings eða ráðgjafa og hluti til beinna aðgerða til að draga úr og hefja kolefnisjöfnun á starfsemi Stjórnarráðsins.

    02. jún. 2018Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Annað

    5. fundur 6. feb - dagskrá og gögn

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. febrúar 2018 / Forsætisráðuneytið 5

    29. maí 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Forsætisráðherrar Íslands og Eistlands funduðu í dag

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands og Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, funduðu í ráðherrabústaðnum í hádeginu í dag.

    25. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Samantekt um 4. iðnbyltinguna og hugsanleg tækifæri og áhrif á íslenskt samfélag

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipaður verði vinnuhópur á vegum stjórnvalda sem skili samantekt til stjórnvalda um helstu álitamál er tengjast fjórðu iðnbyltingunni fyrir íslenskt samfélag.

    25. maí 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin ræðir Heimsmarkmiðin við ungmennaráð

    Ríkisstjórn Íslands hitti ungmennaráð Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í ráðherrabústaðnum í dag.

    24. maí 2018Dómsmálaráðuneytið, Menningarmál, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra í viðtali á Radíó Stam

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sat í dag fyrir svörum á Radíó Stam.

    24. maí 2018Forsætisráðuneytið, Vinnumál, Annað

    9. fundur 24. maí - dagskrá og gögn

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. maí 2018 / Forsætisráðuneytið 9

    23. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Fundi forsætisráðherra Norðurlandanna lauk í dag

    Sumarfundur forsætisráðherra Norðurlandanna var haldinn í Örnsköldsvik í Svíþjóð í gær og í dag, 22.-23. maí.

    23. maí 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á meðal 100 áhrifamestu í jafnréttismálum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er á lista Apolitical yfir 100 áhrifamestu einstaklinga í jafnréttismálum fyrir árið 2018. Apolitical, sem er alþjóðlegur stefnumótunarvettvangur, kynnti listann nú fyrir stundu.

    17. maí 2018Forsætisráðuneytið, Menningarmál

    Forsætisráðherra afhenti Páli Melsted Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2018

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti Páli Melsted, prófessor við iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2018 í dag á Rannsóknarþingi.

    15. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra og borgarstjóri funduðu um Borgarlínuverkefnið

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, í forsætisráðuneytinu í dag.

    12. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Vegna fyrirspurnar frá Öryrkjabandalagi Íslands

    Vegna fyrirspurnar frá ÖBÍ vill forsætisráðuneytið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Forsætisráðherra vísaði í tilgreindum ummælum til aukningar á framlögum til málaflokks örorkulífeyrisþega. Framlög til þessa hóps hafa aukist í síðustu tvennum fjárlögum sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram um rúmlega 9 milljarða utan verðlagsbreytinga, á föstu verðlagi ársins 2019 – en það er 17% hækkun frá fjárlögum ársins 2017.

    10. maí 2018Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Samstarfsvettvangur um framlag til loftslagsmála á alþjóðlegum vettvangi skipaður

    Ákveðið var að setja á laggirnar samstarfsvettvang atvinnulífs og stjórnvalda um framlag Íslands til loftslagsmála á alþjóðlegum vettvangi með útflutningi orkuþekkingar og grænna lausna á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    10. maí 2018Forsætisráðuneytið, Landbúnaður

    Forsætisráðherra skipar starfshóp um endurskoðun laga og reglna er varða eignarhald á landi og fasteignum

    Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum, sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017, hefur nýlega skilað skýrslu þar sem lagðar eru til breytingar á lögum í því skyni að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins.

    10. maí 2018Forsætisráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf um sókn íslenskunnar

    Viljayfirlýsing um vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls var undirrituð af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúum Kennarasambands Íslands, Háskóla Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtakanna Heimilis og skóla í gær.

    09. maí 2018Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra

    september 2018 / Forsætisráðuneytið Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra Efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu - skýrsla starfshóps forsætisráðherra

    09. maí 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Starfshópur um eflingu trausts skilar skýrslu

    Aðgerðir er varða aukið gagnsæi stjórnsýslunnar, hagsmunaskráning, samskipti við hagsmunaaðila, starfsval eftir opinber störf og vernd uppljóstrara eru á meðal tillagna starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu.

    07. maí 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    746/2018. Úrskurður frá 27. júní 2018

    Starfsmaður fjölmiðils kærði synjun kjararáðs á beiðni um aðgang að fundargerðum þess á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skýrt af lokamálsl. 1. gr. laga um kjararáð nr. 130/2016 að kjararáð væri einn þeirra aðila sem falla undir gildissvið upplýsingalaga nr. 140/2012. Samkvæmt upplýsingalögum skipti ekki máli hvenær gögn hefðu orðið til og því hefði það ekki þýðingu þótt fundargerðirnar fjölluðu um mál eldri lög um kjararáð giltu um. Var það mat nefndarinnar að kjararáði hafi borið að afmarka beiðni kæranda við gögn í vörslum sínum, sbr. 5. og 15. gr. upplýsingalaga og taka afstöðu til réttar hans til aðgangs að þeim með rökstuddri ákvörðun. Þar sem kjararáð mat ekki rétt kæranda til aðgangs var málsmeðferð ráðsins ekki talin samrýmast ákvæðum upplýsingalaga, þ. á m.…

    07. maí 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    745/2018. Úrskurður frá 27. júní 2018

    Deilt var um rétt kæranda annars vegar til aðgangs að öllum úrskurðum sem dómsmálaráðuneytið hefur kveðið upp í umgengnismálum á grundvelli barnalaga nr. 76/2006 og hins vegar til aðgangs að úrskurðum sem lúta að deilumálum þar sem um er að ræða breytingu á umgengni sem ákveðin hefur verið með sátt fyrir dómi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með dómsmálaráðuneytinu að heimilt hafi verið að synja kæranda um aðgang að öllum úrskurðum ráðuneytisins með vísan til 1. tölul. 2. mgr. 15. gr. upplýsingalaga þar sem meðferð hennar var talin taka svo mikinn tíma eða krefjast svo mikillar vinnu að ekki teldist af þeim sökum fært að verða við henni. Hins vegar taldi nefndin ekki sýnt fram á að beiðni kæranda um úrskurði þar sem um er að ræða breytingu á umgengni yrði felld undir ákvæðið.…

    07. maí 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    744/2018. Úrskurður frá 27. júní 2018

    Í málinu var deilt um rétt kæranda til aðgangs að rafrænni stjórnendahandbók Akureyrarbæjar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það að stjórnendahandbókin hefði að geyma vinnugögn í skilningi 5. mgr. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga, þar sem gögnin voru ekki talin hafa orðið til við undirbúning ákvörðunar eða annarra lykta tiltekins máls. Hins vegar var fallist á að Akureyrarbæ hafi með vísan til 9. gr. upplýsingalaga verið heimilt að synja kæranda um aðgang að tilteknum undirsíðum um bókhaldskerfi og mannauðskerfi sveitarfélagsins vegna viðskiptahagsmuna seljanda kerfisins.

    07. maí 2018Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    743/2018. Úrskurður frá 27. júní 2018

    Kærð var ákvörðun Landsnets hf. um að synja Orku náttúrunnar ohf. um upplýsingar varðandi kerfisframlag. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingar um kerfisframlag í samningi Landsnets og Landsvirkjunar féllu undir 5. mgr. 9. gr. raforkulaga nr. 89/2004 þar sem kveðið er á um sérstaka kæruheimild til Orkustofnunar og úrskurðarnefndar raforkumála vegna synjunar á afhendingu upplýsinga er nauðsynlegar eru við mat á því hvort flutningsfyrirtæki fullnægi skyldum sínum við rekstur og kerfisstjórnun flutningskerfis og tryggi jafnræði við flutning raforku, sbr. einnig 1. mgr. 30. gr. laganna. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    07. maí 2018Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Upplýsingatæknimál ríkisins, Rafræn viðskipti, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Grænbók um hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál til umsagnar

    Grænbók um hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál er nú í umsagnarferli í samráðsgáttinni. Hún er liður í samráði um stöðumat, lykilviðfangsefni og áherslur á þessu málefnasviði. Opið er fyrir innsendingu umsagna til og með 15. ágúst næstkomandi.

    06. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika

    Nefnd um ramma peningastefnu leggur til 11 tillögur um umgjörð varúðartækja, endurbætt verðbólgumarkmið, markvissari beitingu stjórntækja Seðlabankans og ákvörðunarferli peningastefnunnar.

    02. maí 2018Forsætisráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Lög og réttur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Aukið gagnsæi með opnun samráðsgáttar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, opnuðu í dag nýja samráðsgátt stjórnvalda á vefslóðinni samradsgatt.Island.is.

    01. maí 2018Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra skipar starfshóp um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu

    Forsætisráðherra hefur skipað starfshóp um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar

    28. apr. 2018Forsætisráðuneytið

    Katrín Jakobsdóttir á afmælishátíð Framsýnar á Húsavík

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði afmælishátíð stéttarfélagsins Framsýnar í dag, þar sem fagnað var hundrað ára afmæli Verkakvennafélagsins Vonar.

    27. apr. 2018Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir UNICEF um fimm milljónir kr. vegna útgáfu skýrslu um efnislega stöðu barna á Íslandi

    Ríkisstjórnin mun veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að styrkja útgáfu skýrslu um stöðu efnislegs skorts barna á Íslandi, sem UNICEF á Íslandi mun vinna í samstarfi við Hagstofu Íslands.

    27. apr. 2018Forsætisráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Stefnumótun og áætlanagerð Stjórnarráðsins styrkist verulega

    Stefnuráð Stjórnarráðsins hefur framkvæmt könnun á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins og forsætisráðherra kynnti niðurstöður könnunarinnar í ríkisstjórn í morgun. ​

    • First
    • Prev
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband