05. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Evrópuráðið, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Tilkynnt um tilnefningar til jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur
Valnefnd jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur tilkynnti í dag niðurstöður sínar um tilnefningar til verðlaunanna. Þrír aðilar eru tilnefndir til verðlaunanna en alls bárust nefndinni 123 tilnefningar víðsvegar að úr heiminum. Nefndin fundaði í húsakynnum Alþingis í dag.