Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2301–2350 af 3353
    Raða eftir:
    10. des. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra fundar með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls

    ​Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, átti fund í dag með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls. Á fundinum var rætt um góð samskipti og samstarf Frakklands og Íslands, málefni norðurslóða, umhverfis- og loftslagsmál, auk efnahagsmála.

    06. des. 2017Forsætisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Almannaöryggi

    Öryggismál rædd á fundi þjóðaröryggisráðs

    Þjóðaröryggisráð kom saman í dag og fór yfir ýmis mál er tengjast almennt öryggisvörnum landsins í nútíð og framtíð. Í þjóðaröryggisráði sitja 11 fulltrúar. Forsætisráðherra er formaður ráðsins og stýrir fundum þess.

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    676/2017. Úrskurður frá 23. mars 2017

    <p>Ríkisútvarpið kærði synjun Matvælastofnunar á beiðni um aðgang að hluta&nbsp;gagna um fjögur tiltekin mál sem stofnunin hafði til meðferðar. Matvælastofnun hafði afhent skýrslur og önnur gögn að undanskildum atriðum sem stofnunin taldi sér skylt að takmarka aðgang að á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin&nbsp;leit&nbsp;til þess markmiðs upplýsingalaga er lýtur að því að&nbsp;styrkja aðhald fjölmiðla og almennings að stjórnvöldum og möguleika þeirra til að miðla upplýsingum um opinber málefni, sbr. 3. og 4. tl. 1. mgr. 1. gr. upplýsingalaga. Niðurstaða nefndarinnar var sú að kærandi ætti rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum að undanskildum upplýsingum um samskipti fyrirtækis við erlenda birgja um kaup á tilteknum vörum.…

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    675/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    apríl 2017 / Forsætisráðuneytið 675/2017. Úrskurður frá 17

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    674/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    apríl 2017 / Forsætisráðuneytið 674/2017. Úrskurður frá 17

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    673/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    <p>Kærð var sú ákvörðun Reykjanesbæjar að synja kæranda um aðgang að gögnum um tilboðsumleitanir vegna nýrrar vefsíðu bæjarins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að í slíkum málum væri lögð áhersla á hagsmuni þeirra sem taka þátt í útboðum af því að rétt sé staðið að framkvæmd þeirra. Þá standi almannahagsmunir&nbsp;til þess að veittur sé aðgangur að gögnum um ráðstöfun opinbers fjár. Kærandi var talinn hafa hagsmuni af því&nbsp;að vita um hvaða möguleika sveitarfélagið hafði að velja við ákvörðun um að ráðstafa fjármunum. Aðgangur að hluta umbeðinna gagna var þó takmarkaður með vísan til 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, þ.e. upplýsingar um aðra viðskiptavini tveggja fyrirtækja sem sendu inn tilboð. </p>

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    672/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    <p>Deilt var um aðgang kæranda að gögnum í vörslum&nbsp;Þekkingarnets Þingeyinga&nbsp;sem varða fjölþjóðlegt verkefni. Kærandi vann að verkinu sem verktaki fyrir hönd Þekkingarnetsins en stjórn þess færðist síðar yfir til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Þekkingarnetsins um að synja kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum samræmdist ekki ákvæðum upplýsingalaga og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Annmarkarnir voru taldir svo verulegir að ekki væri hjá því komist að fella ákvörðunina úr gildi og leggja fyrir Þekkingarnet Þingeyinga að taka málið til nýrrar og lögmætrar meðferðar.</p>

    04. des. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    671/2017. Úrskurður frá 17. mars 2017

    Deilt var um aðgang kæranda að gögnum í vörslum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem varða fjölþjóðlegt verkefni. Kærandi vann að verkinu sem verktaki fyrir hönd Þekkingarnets Þingeyinga en stjórn þess færðist síðar yfir til Nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun miðstöðvarinnar um að synja kæranda um aðgang að umbeðnum gögnum samræmdist ekki ákvæðum upplýsingalaga og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Annmarkarnir voru taldir svo verulegir að ekki væri hjá því komist að fella ákvörðunina úr gildi og leggja fyrir Nýsköpunarmiðstöð Íslands að taka málið til nýrrar og lögmætrar meðferðar.

    30. nóv. 2017Forsætisráðuneytið

    Fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

    Ríkisráð Íslands kom saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag. Á fyrri fundinum endurstaðfesti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tillögur sem staðfestar höfðu verið utan ríkisráðs, þ. á m. tillögu þáverandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktssonar, um að veita ráðuneyti hans lausn frá störfum. Á seinni fundinum féllst forseti Íslands á tillögu Katrínar Jakobsdóttur, alþingismanns, um skipun fyrsta ráðuneytis hennar og gaf út úrskurð um skiptingu starfa ráðherra.

    30. nóv. 2017Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundir á Bessastöðum í dag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag.

    30. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Annað, Ríkisstjórn

    Ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

    Ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur: 30. nóvember 2017

    30. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Annað, Ríkisstjórn

    Ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

    Ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur: 30. nóvember 2017

    29. nóv. 2017Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ísland getur gert betur í jafnréttismálum

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, ávarpaði í morgun heimsþing alþjóðasamtakanna WPL, Women Political Leaders Global Forum.

    17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    710/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017

    Kærð var ákvörðun Háskóla Íslands um synjun beiðni um aðgang að eldri prófum í námskeiði við skólann. Úrskurðarnefndin taldi ekki fært að fallast á með skólanum að prófið teldist fyrirhugað í skilningi 5. tl. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Því var kærandi talinn eiga rétt á aðgangi samkvæmt meginreglu 1. mgr. 5. gr. laganna.

    17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    709/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017

    Kaffitár ehf. kærði ákvörðun Isavia ohf. um synjun beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast samkeppni um leigurými á Keflavíkurflugvelli í mars 2014 og ekki voru til umfjöllunar í fyrri úrskurðum úrskurðarnefndarinnar nr. 579/2015 og 586/2015. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir rétt kæranda til aðgangs að gögnunum, lið fyrir lið, og taldi skylt á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga&nbsp;að veita&nbsp;fyrirtækinu aðgang að hluta umbeðinna gagna. Um önnur gögn ýmist staðfesti nefndin ákvörðun Isavia, vísaði kæru frá eða lagði fyrir Isavia að taka beiðnina til nýrrar meðferðar.

    17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    708/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017

    Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn varðandi samþykkt og útgáfu framkvæmdaleyfis. Af&nbsp;hálfu Reykjavíkurborgar kom fram að kærandi hefði þegar fengið aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum sem tengdust málinu. Kærunni var því vísað frá.

    17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    707/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017

    Kærandi kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að ráðningarsamningi bæjarins við meindýraeyði. Í skýringum bæjarins kom fram að bærinn hefði ekki gert slíkan samning, heldur væri til kallaður sjálfstætt starfandi meindýraeyðir eftir þörfum. Þar sem beiðnin laut að gögnum sem ekki eru fyrirliggjandi hjá Vestmannaeyjabæ var kærunni vísað frá.

    17. nóv. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    706/2017. Úrskurður frá 2. nóvember 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að vikulegum fréttapistlum forstjóra Lyfjastofnunar á tilteknu tímabili. Stofnunin synjaði kæranda m.a. um aðgang á þeirri forsendu að um væri að ræða gagnagrunn,&nbsp;en upplýsingaréttur almennings samkvæmt upplýsingalögum&nbsp;næði almennt ekki til slíkra gagna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þetta hafi gilt í tíð eldri upplýsingalaga en samkvæmt núgildandi lögum nr. 140/2012 þurfi upplýsingar einungis að vera fyrirliggjandi, hvort sem þær tilheyri tilteknu máli eða ekki. Úrskurðarnefndin taldi fréttapistlana fyrirliggjandi&nbsp;hjá stofnuninni í skilningi laganna.&nbsp;Þá taldi úrskurðarnefndin Lyfjastofnun ekki hafa gert nægjanlega grein fyrir því hvernig aðrar takmarkanir á upplýsingarétti almennings gætu átt við um fréttapistlana.…

    30. okt. 2017Forsætisráðuneytið

    Staðgengill forsætisráðherra sækir Norðurlandaráðsþing í Helsinki

    Norðurlandaráðsþing verður sett á morgun, þriðjudaginn 31. október, í Helsinki. Þar sem forsætisráðherra á ekki heimangengt, mun Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra, sem jafnframt er samstarfsráðherra Norðurlanda, vera staðgengill forsætisráðherra, og taka þátt í störfum þingsins og forsætisráðherrafundum þeim tengdum.

    17. okt. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Tvíhliða fundir forsætisráðherra í tengslum við Hringborð norðurslóða

    Í tengslum við Hringborð norðurslóða 13.-15. október sl., átti Bjarni Benediktsson forsætisráðherra nokkra tvíhliða fundi.

    13. okt. 2017Forsætisráðuneytið, Norðurslóðir

    Forsætisráðherra ávarpar Hringborð norðurslóða

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, var í dag viðstaddur opnun Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Assembly). Í ávarpi forsætisráðherra þakkaði hann formanni og stofnanda Hringborðs norðurslóða, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir framtakið og stöðugan innblástur. "Loftslagsbreytingar eru áskorun sem virða ekki landamæri, fullveldi ríkja eða alþjóðalög. Þetta er viðfangsefni sem ekkert ríki getur fengist við eitt og sér - en þarfnast alþjóðlegs átaks og samvinnu", sagði forsætisráðherra.

    10. okt. 2017Forsætisráðuneytið

    Efling nýsköpunar í tengslum við stofnun stöðugleikasjóðs

    Þann 9. febrúar sl. skipaði forsætisráðherra sérfræðingahóp um stofnun stöðugleikasjóðs sem haldi utan um arð af orkuauðlindum í eigu ríkissjóðs, tryggi komandi kynslóðum hlutdeild í ávinningi af auðlindum og byggi upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum.

    08. okt. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar með sendinefnd Yamal-Nenets

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fundaði fyrr í vikunni með sendinefnd frá rússneska sjálfstjórnarhéraðinu Yamal-Nenets sem stödd er hér á landi.

    07. okt. 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum - Kallað eftir hugmyndum almennings

    Vinna við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er hafin og hefur verið opnað sérstakt vefsvæði tileinkað vinnunni á slóðinni www.co2.is. Almenningur er hvattur til að senda hugmyndir og tillögur að aðgerðum til verkefnisstjórnar á netfangið [email protected]

    29. sep. 2017Forsætisráðuneytið

    Afnám tolla og vörugjalda skilaði sér til neytenda

    Í maí sl. óskaði forsætisráðuneytið eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að stofnunin tæki að sér að greina áhrif afnáms tolla og vörugjalda á verðlag. Skýrsla Hagfræðistofunar liggur nú fyrir.

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    705/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    Deilt var um aðgang kæranda að upplýsingum sem afmáðar höfðu verið úr sálfræðilegri greinargerð sem embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét útbúa í tilefni af kvörtun kæranda um meint einelti í sinn garð. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi, með vísan til&nbsp;3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga,&nbsp;að&nbsp;réttur kæranda til aðgangs að framburði meintra gerenda og vitna um atvik sem snertu framgöngu hennar á vinnustað og meint einelti í garð kæranda vægi&nbsp;þyngra en hagsmunir sömu aðila af því leynd ríkti um framburð þeirra um atvik málsins. Úrskurðarnefndin taldi þó ekki að aðgangur&nbsp;kæranda samkvæmt 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga tæki til upplýsinga um rannsókn sakamáls, sbr. 1. mgr. 4. gr.…

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    704/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    <p>Deilt var um aðgang að umsóknargögnum umsækjanda um uppreist æru. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að umsókn viðkomandi umsækjanda félli í heild sinni undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Yrði því að taka afstöðu til þess hvort einstök gögn málsins kynnu að geyma upplýsingar um einkahagi sem óheimilt&nbsp;væri að afhenda samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Var það mat nefndarinnar að upplýsingar um símanúmer og netföng umsækjanda og votta auk heilsufarsupplýsinga sem fram kæmu í vottorðum, væru upplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Að öðru leyti var fallist á rétt kæranda til aðgangs að þeim upplýsingum er fram komu í gögnunum.&nbsp;</p>

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    703/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að þremur lögregluskýrslum um föður kæranda á grundvelli laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda ekki hafa einstaka hagsmuni umfram aðra að fá aðgang að skýrslunum. Var því fallist á það með Þjóðskjalasafni Íslands að rétt hafi verið að leysa úr beiðni kæranda á grundvelli V. kafla laga nr. 77/2014 um upplýsingarétt almennings. Þá var talið að Þjóðskjalasafni Íslands hafi verið rétt að synja kæranda um aðgang að skýrslunum með vísan til 1. mgr. 26. gr. laganna þar sem þær hefðu að geyma einkahagsmuni einstaklinga sem eðlilegt væri og sanngjarnt að færu leynt.

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    702/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    Synjun úrskurðarnefndar lögmanna á beiðni kæranda um aðgang að gögnum í máli tiltekins lögmanns var felld úr gildi og málinu vísað til úrskurðarnefndarinnar til nýrrar meðferðar. Synjun&nbsp;úrskurðarnefndar lögmanna var byggð á því að nefndinni&nbsp;væri óheimilt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga að upplýsa hvort fyrirliggjandi væru gögn er heyrðu undir beiðni kæranda. <p>Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að úrskurðarnefnd lögmanna væri almennt óheimilt að staðfesta hvort mál hafi komið til kasta hennar heldur þyrfti að taka afstöðu til þess hverju sinni hvort 9. gr. upplýsingalaga komi í veg fyrir aðgang að gögnum mála. </p>

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    701/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    Staðfest var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins&nbsp;á beiðni kæranda um aðgang&nbsp;að skýrsludrögum vegna úttektar Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar.&nbsp;Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að líta mætti á skýrsludrögin sem „samskipti við fjölþjóðastofnun“ í skilningi 2. tl. 10. gr. upplýsingalaga. Vísað var til þess að nefndin hafi litið svo á að&nbsp;til að tryggja góð samskipti og gagnkvæmt traust í alþjóðasamstarfi væri rétt að undanþiggja samskipti sem færu fram á þeim vettvangi frá aðgangi almennings á meðan samskiptin stæðu yfir.…

    19. sep. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    700/2017. Úrskurður frá 11. september 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að öllum gögnum er tengdust ákvörðun sveitarfélags um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Kröflulínu 4. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli meginreglu 5. gr. laga 23/2006 um upplýsingarétt almennings um umhverfismál. Ekki var fallist á að gögnin væru vinnugögn enda höfðu þau borist á milli utanaðkomandi sérfræðings og sveitarfélagsins. Þá var ekki fallist á að minnisblað lögmanns félli undir undanþáguákvæði 3. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Þar sem engar undanþágur laga frá upplýsingarétti almennings þóttu eiga við um þau gögn, sem synjað var um aðgang að, var kveðið á um skyldu sveitarfélagsins til að afhenda kæranda gögnin.

    18. ágú. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sendir samúðarkveðju vegna árása í Barcelona

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, hefur í dag sent Mariano Rajoy forsætisráðherra Spánar og spænsku þjóðinni samúðarkveðju vegna árása í Barcelona í gær, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.

    12. ágú. 2017Forsætisráðuneytið, Ríkisstjórn

    Siðareglur ráðherra og endurskoðun þeirra

    Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um siðareglur ráðherra. Nú eru í gildi siðareglur ráðherra nr. 190/2017 og hafa þær ekki tekið miklum efnislegum breytingum frá því þær voru fyrst gefnar út vorið 2011.

    12. ágú. 2017Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir viðgerð á Flateyjarbók

    Ríkistjórnin hefur ákveðið að styrkja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um 5 millj. kr. til að ráðast í brýna viðgerð á Flateyjarbók, einu merkasta handriti Íslendinga.

    12. ágú. 2017Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir alþjóðlega fornsagnaþingið

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að veita 6 millj. kr. af ráðstöfunarfé sínu til styrktar alþjóðlega forsagnaþinginu sem haldið verður í Reykjavík og Reykholti, dagana 12.-17. ágúst 2018, á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og Snorrastofu í Reykholti.

    12. ágú. 2017Forsætisráðuneytið, Ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin styrkir góðgerðarsamtök

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita samtals fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til tíu góðgerðarsamtaka sem starfa hér á landi.

    09. ágú. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með forseta Frakklands í París

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra fundaði 1. september sl. með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, þar sem rædd voru meðal annars góð samskipti ríkjanna, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og áhrif úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu.

    06. ágú. 2017Forsætisráðuneytið

    44 umsækjendur um embætti umboðsmanns barna

    46 umsóknir bárust um embætti umboðsmanns barna sem forsætisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar 5. maí síðastliðinn en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka.

    25. júl. 2017Forsætisráðuneytið

    Hamingjustund með Sri Sri Ravi Shankar

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti fund í dag með indverska friðarerindrekanum Sri Sri Ravi Shankar.

    14. júl. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    692/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kæru vegna synjunar&nbsp;á aðgangi að gögnum í vörslum Langanesbyggðar var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem sveitarfélagið afhenti kæranda gögnin eftir að kæra barst.

    14. júl. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    691/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    <p>Kærð var synjun Matvælastofnunar á beiðni blaðamanns um aðgang að gögnum um aðbúnað dýra á tilteknu lögbýli. Synjun stofnunarinnar var byggð á á 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ljóst að þær upplýsingar sem fram kæmu í gögnunum varði&nbsp;einkamálefni einstaklinga í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Þegar vegnir&nbsp;væru saman hagsmunir aðila málsins af því að upplýsingar um viðkvæm persónuleg málefni þeirra fari leynt á móti þeim almennu hagsmunum sem felast í því að fjölmiðlar fái aðgang að gögnum um aðbúnað dýra, þótti nefndinni&nbsp;hinir fyrrgreindu vega þyngra. Var því ákvörðun Matvælastofnunar um synjun beiðni kæranda staðfest.</p>

    14. júl. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    690/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    Kærð var synjun Akureyrarbæjar&nbsp;á aðgangi&nbsp;að launamiðum tiltekinna verktaka fyrir tiltekin ár en synjun sveitarfélagsins var reist á 9. gr. upplýsingalaga. Í málinu lá fyrir að sveitarfélagið hafði að eigin frumkvæði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum og sent þær með tölvupósti. Með hliðsjón af atvikum máls taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál tækt að fjalla um hvort kærandi ætti rétt til aðgangs að tölvupóstinum. Nefndin benti á að tölvupósturinn innibæri upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var það niðurstaða nefndarinnar að ekkert í gagninu væri þess eðlis að heimilt væri að takmarka aðgang kæranda að þeim vegna hagsmuna þriðja aðila, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að tölvupóstinum.&nbsp;&nbsp;

    14. júl. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    689/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    <p>Kærð var synjun embættis landlæknis á beiðni um aðgang að samstarfssamningi embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TM Software um þróun á hugbúnaði. Synjun embættisins var byggð á því að í samningnum kæmu fram upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni TM Software sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki hafa verið sýnt fram á að í samningnum kæmu fram upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda fyrirtækinu tjóni yrði aðgangur veittur. Þá var litið til þess að upplýsingarnar lytu með beinum hætti að ráðstöfun opinberra fjárhagslegra hagsmuna.…

    14. júl. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    688/2017. Úrskurður frá 6. júlí 2017

    <p>Deilt var um aðgang að tilboðum fyrirtækis í gerð vefsíðna fyrir Reykjanesbæ sem synjaði um afhendingu gagnanna með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki að í gögnunum fælust upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni tilboðsgjafa að undanskildum upplýsingum um viðskiptamenn fyrirtækisins. Var því aðgangur veittur að hluta. Beiðni kæranda um tilboðsbeiðni sveitarfélagsins var vísað til nýrrar meðferðar þar sem ekki hafði verið tekin afstaða til aðgangs að því gagni.</p>

    07. júl. 2017Forsætisráðuneytið

    Nýr umboðsmaður barna

    Forsætisráðherra hefur skipað Salvöru Nordal, heimspeking, í embætti umboðsmanns barna til næstu fimm ára frá 1. júlí 2017 að telja.

    04. júl. 2017Forsætisráðuneytið

    Ný ráðuneyti dómsmála og samgöngu- og sveitarstjórnarmála sett á fót.

    Forseti Íslands hefur í dag staðfest tillögur forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs Íslands. Breytingarnar fela í sér að í stað innanríkisráðuneytis komi annars vegar dómsmálaráðuneyti og hins vegar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, en með því fjölgar ráðuneytum úr átta í níu.

    20. jún. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðuneytið óskar athugasemda við drög að reglugerð um frumkvæðisbirtingu upplýsinga

    Forsætisráðuneytið hefur undanfarið unnið að setningu reglugerðar á grundvelli 4. mgr. 13. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Ákveðið hefur verið að birta drög að reglugerðinni opinberlega og efna til opins samráðsferils um þau.

    20. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi

    Ríkisstjórnin styður Grænlendinga í kjölfar berghlaups

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra og utanríkisráðherra, að veitt verði 40 milljóna króna framlag til Grænlendinga í kjölfar þess gríðarlega tjóns, sem varð í kjölfar berghlaups í Karrat firði í sveitarfélaginu Qaasuitsup á vesturströnd Grænlands sl. laugardag, 17. júní.

    19. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Starfshópur um hlutverk lífeyrissjóða í uppbyggingu atvinnulífs

    Ráðherranefnd um efnahagsmál hefur fjallað um málefni lífeyrissjóða og ákveðið að forsætisráðherra skipi starfshóp um hlutverk þeirra í uppbyggingu atvinnulífs.

    17. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Hátíðarræða forsætisráðherra á 17. júní

    Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráðherra flutti hátíðarræðu á Aust­ur­velli á þjóðhátíðar­degi Íslend­inga, 17. júní.

    • First
    • Prev
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband