Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2351–2400 af 3353
    Raða eftir:
    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Slóvakíu

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, átti hádegisverðarfund í dag með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu.

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á hádegisverðarfund með forsætisráðherra Slóvakíu

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, mun eiga hádegisverðarfund í dag í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu.

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin styður menningarkynningu í tengslum við EM kvenna

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra, að verja 6 millj. kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til menningarkynningar í tengslum við Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Hollandi dagana 16. júlí til 6. ágúst næstkomandi.

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    685/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    júní 2017 / Forsætisráðuneytið 685/2017. Úrskurður frá 2

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    687/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    <p>Beiðni kæranda um afrit af skjölum í vörslum embættis landlæknis sem varði hana sjálfa og nefni hana á nafn var vísað til embættisins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu. Af skýringum embættis landlæknis varð ekki annað ráðið en að embættið hafi ekki framkvæmt leit í skjalavörslukerfi sínu í tilefni gagnabeiðninnar en ljóst var af skjölum sem fylgdu kæru sem og umsögn embættisins að kærandi hafi verið í samskiptum við embættið sem embættinu var skylt að halda til haga, sbr. t.d. 2. mgr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.</p>

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    686/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    <p>Kæru vegna beiðni um upplýsingar um umsækjendur í starf við félagslega liðleiðslu fyrir börn og fullorðna hjá Vestmannaeyjabæ var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem Vestmannaeyjabær hafði gefið þær skýringar að enginn hafi sótt um starfið. Lá því ekki fyrir synjun á afhendingu gagna, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.</p>

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    684/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    <p>Kærð var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum varðandi ívilnunarsamning við Silicor Materials. Ráðuneytið hafði synjað um aðgang að gögnunum á þeim grundvelli að gögnin vörðuðu mikilvæga fjarhags- eða viðskiptahagsmuni Silicor Materials, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin staðfesti synjun ráðuneytisins að hluta en taldi ekki sýnt fram á að sum gagnanna innihéldu trúnaðarupplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi. Var því kveðið á um skyldu ráðuneytisins til að afhenda kæranda þau gögn.</p>

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    683/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    <p>Kærandi óskaði eftir gögnum í vörslu Þjóðskjalasafns Íslands er varða Landsbanka Íslands. Úrskurðarnefnd tók fram að 1. mgr. 13. gr. nr. 87/1998 laga um opinbert eftirlit&nbsp; með fjármálastarfsemi og 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um Seðlabanka Íslands feli í sér sérstaka þagnarskyldu og takmarki þar af leiðandi aðgang almennings á grundvelli 5. gr. upplýsingalaga. Talið var að hluti umbeðinna gagna féllu undir þessar þagnarskyldureglur og þar af leiðandi ekki unnt að veita aðgang að þeim. Var því synjun Þjóðskjalasafns Íslands staðfest. </p>

    16. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    682/2017. Úrskurður frá 2. júní 2017

    <p>Kærð var afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast&nbsp;Landsbanka Íslands&nbsp;Úrskurðarnefndin taldi ýmis samskipti starfsmanna bankans og annarra lúta þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og taldi safnið bundið þagnarskyldunni samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins. Þá&nbsp;væri einnig að finna í umbeðnum gögnum upplýsingar sem vörðuðu mikilvæg einkamálefni&nbsp; sem sanngjarnt&nbsp;væri og eðlilegt að fari leynt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Staðfest var synjun Þjóðskjalasafnsins á beiðni um aðgang að öllum umbeðnum gögnum nema minnisblaði Fjármálaeftirlitsins frá nóvember 2008.</p>

    04. jún. 2017Forsætisráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Aðhald, ábyrgð og efnahagsstjórn – 2. fundur Þjóðhagsráðs

    Þjóðhagsráð kom til fundar í dag til að fjalla um stöðu efnahagsmála og samspil opinberra fjármála við peningastefnu og kjaramál.

    30. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundar tvíhliða með öllum forsætisráðherrum Norðurlanda

    Í tengslum við sumarfund forsætisráðherra Norðurlanda sem haldinn hefur verið í Bergen sl. daga, átti Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, tvíhliða fundi með öllum forsætisráðherrum Norðurlanda - Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands, Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar

    29. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherrar Norðurlandanna funda í Bergen

    Á fyrri degi sumarfundar forsætisráðherra Norðurlandanna sem haldinn er í Bergen 29. og 30 maí, var norræn samvinna rædd svo og ýmis alþjóða- og öryggismál.

    28. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherrar Norðurlanda funda í Bergen 29. og 30. maí

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, sækir sumarfund forsætisráðherra Norðurlanda sem haldinn verður 29. og 30. maí í Bergen í boði Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs.

    26. maí 2017Ráð og stjórnir, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Almannavarna- og öryggismálaráð Í lögum um almannavarnir sem tóku gildi 1. júní 2008 og voru birt í Stjórnartíðindum 19. júní 2008 segir um hlutverk almannavarna- og öryggismálaráðs: „Stefna stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum skal mörkuð af almannavarna- og öryggismálaráði til þriggja ára í senn

    26. maí 2017Ráð og stjórnir, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Almannavarna- og öryggismálaráð Í lögum um almannavarnir sem tóku gildi 1. júní 2008 og voru birt í Stjórnartíðindum 19. júní 2008 segir um hlutverk almannavarna- og öryggismálaráðs: „Stefna stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum skal mörkuð af almannavarna- og öryggismálaráði til þriggja ára í senn

    26. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Framlag Íslands mikils metið

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, fundaði í dag með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í tengslum við fund leiðtoga bandalagsins sem fram fór í Brussel.

    25. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins funda í Brussel

    Þróun öryggismála, efling sameiginlegra varna og baráttan gegn hryðjuverkum voru meðal umræðuefna á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag.

    24. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sækir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem haldin er í Brussel 25. maí. Formleg dagskrá hefst síðdegis 25. maí og lýkur í kjölfar vinnukvöldverðar.

    23. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sendir samúðarkveðju vegna árásarinnar í Manchester

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur í dag fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands vottað fórnarlömbum og aðstandendum árásarinnar í Manchester samúð sína.

    22. maí 2017Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi, Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisráðuneytið

    Þjóðaröryggisráð kemur saman í fyrsta sinn

    Þjóðaröryggisráð kom saman í fyrsta sinn í dag en lög um þjóðaröryggisráð voru samþykkt á þingi í september á síðasta ári.

    22. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Fundargerð 2. fundar Þjóðhagsráðs

    Þjóðhagsráð kom saman til annars fundar 6. apríl sl. en hlutverk ráðsins er að greina stöðu efnahagsmála og ræða samhengi ríkisfjármála, peningastefnu og vinnumarkaðar í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni.

    12. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Skipan ráðherranefnda – ráðherranefnd um jafnréttismál sett á laggirnar að nýju

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að starfrækja fjórar ráðherranefndir; ráðherranefnd um ríkisfjármál, ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, ráðherranefnd um samræmingu mála er varða fleiri en eitt ráðuneyti og ráðherranefnd um jafnréttismál.

    07. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Erlendir sérfræðingar veita ráðgjöf um mótun íslenskrar peninga- og gengisstefnu til framtíðar

    Í mars sl. skipaði forsætisráðherra þriggja manna verkefnisstjórn til að leggja mat á peninga- og gengisstefnu Íslands eftir losun fjármagnshafta.

    05. maí 2017Forsætisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ýtt úr vör

    Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skrifuðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu um gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem liggja skal fyrir í lok ársins.

    28. apr. 2017Forsætisráðuneytið

    Ný jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins

    Ráðuneytisstjórar hafa samþykkt nýja jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins fyrir árin 2017-2020. Leiðarljós áætlunarinnar er að Stjórnarráðið sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt í hvívetna og konur og karlar hafi jöfn tækifæri til að nýta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni.

    27. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    679/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    <p>Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum frá Hagstofu Íslands um&nbsp;hvernig vísitala neysluverðs hefði reiknast ef ekki hefði komið til mistaka við útreikning hennar á árinu 2016 sem og allra gagna sem útreikningarnir hefðu byggst á. Úrskurðarnefndin vísaði beiðni um útreikning frá þar sem beiðnin lyti ekki að fyrirliggjandi gögnum. Þar sem ekki yrði séð að&nbsp;tekin hafi verið afstaða&nbsp;til beiðni um gögn sem útreikningar byggðust á, var þeim hluta upplýsingabeiðninnar vísað til nýrrar meðferðar hjá Hagstofu Íslands. </p>

    27. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    678/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Kærð var afgreiðsla Sorpurðunar Vesturlands á afgreiðslu á beiðni um upplýsingar um magn laxafurða sem stofnunin tók til urðunar frá fiskeldi og skráningu um laxafurðir frá fiskeldi á tilteknu ári. Af hálfu stofnunarinnar kom fram að ekki væru til sundurliðaðar upplýsingar um urðaðan fiskúrgang eftir tegund. Úrskurðarnefndin tók fram að valdsvið hennar næði ekki til þess að skera úr um það hvort slík skráning samrýmdist reglugerð 738/2003. Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd með vísan til þess að gögnin væru ekki fyrirliggjandi, sbr. 20. gr. upplýsingalaga. &nbsp;

    27. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    677/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um aðgang að gögnum um samþykki Íslands á nýjum aðildarríkjum að Norður-Atlantshafsbandalaginu í vörslum utanríkisráðuneytisins. Kærandi hafði fengið aðgang að gögnunum að hluta en af hálfu ráðuneytisins kom fram að sum þeirra hefðu ekki fundist í skjalasafni þess. Úrskurðarnefndin tók fram að úrskurðavald nefndarinnar sé afmarkað við að fjalla um réttmæti synjunar á beiðnum samkvæmt upplýsingalögum. Þegar svo hátti til að umbeðin gögn eru ekki til staðar teljist ekki vera um synjun að ræða. Kæru kæranda var því vísað frá nefndinni.

    25. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Utanríkismál

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fundar með Aksel V. Johannesen lögmanni Færeyja

    Á fundi sínum í dag ræddu Bjarni og Aksel meðal annars um stjórnmálaástandið, stöðu efnahagsmála og sjávarútvegs- og viðskiptamál. Farið var yfir ýmsa þætti er varða samskipti landanna, meðal annars mál tengd Hoyvíkursamningnum, samvinnu Íslands og Færeyja.

    12. apr. 2017Forsætisráðuneytið

    Lísa Kristjánsdóttir og Bergþóra Benediktsdóttir hafa verið ráðnar aðstoðarmenn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra

    Lísa Kristjánsdóttir hefur verið aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur, sem formanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, frá árinu 2013. Hún hefur starfað með Vinstrihreyfingunni - grænu framboði um árabil og m.a. verið kosningastjóri hreyfingarinnar fyrir allar þingkosningar frá árinu 2007.

    05. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    681/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    <p>Deilt var um aðgang fjölmiðils að starfslokasamningi sem Kirkjuráð gerði við fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn hefði að geyma upplýsingar um föst launakjör starfsmannsins og tilhögun starfsloka, sem almenningur ætti rétt á aðgangi að samkvæmt 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Því bæri Kirkjuráði að veita kæranda aðgang að samningnum.</p>

    05. apr. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    680/2017. Úrskurður frá 26. apríl 2017

    Deilt var um aðgang fjölmiðils að starfslokasamningi sem Kirkjuráð gerði við fyrrverandi framkvæmdastjóra ráðsins. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn hefði að geyma upplýsingar um föst launakjör starfsmannsins og tilhögun starfsloka, sem almenningur ætti rétt á aðgangi að samkvæmt 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Því bæri Kirkjuráði að veita kæranda aðgang að samningnum.

    04. apr. 2017Forsætisráðuneytið

    Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra tekur til starfa í dag

    <p>Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur ráðið Pál Ásgeir Guðmundsson sem aðstoðarmann sinn.</p>

    09. mar. 2017Forsætisráðuneytið

    Óformlegur fundur forsætisráðherra Íslands og Finnlands

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra átti í dag óformlegan fund með forsætisráðherra Finnlands, Juha Sipilä.

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    699/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var synjun Þingvallaþjóðgarðs og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni kæranda um afhendingu gagna er varða kaup ríkisins á sumarhúsi á Valhallarstíg nyrðri 13 og niðurrif á því. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að hvorki Þingvallaþjóðgarður, Þingvallanefnd&nbsp;né íslenska ríkið geti talist eiga mikilvægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna að gæta af því að upplýsingar um kaup hins opinbera á fasteign fari leynt í skilningi 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Almenningur hafi hins vegar ríka hagsmuni af því að geta kynnt sér gögn um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var því lagt fyrir Þingvallaþjóðgarð að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.…

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    698/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var afgreiðsla Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum og gögnum um stöðumælasektir í Reykjavíkurborg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál&nbsp;leit svo á að beiðni kæranda lyti ekki að því að fá í hendur öll gögn um stöðumælasektir í vörslum Bílastæðasjóðs, heldur að upplýsingar yrðu teknar saman. Þar sem umbeðið gagn var ekki talið fyrirliggjandi var kæru kæranda vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    697/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    <p>Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands um rannsókn á myglusveppum í tveimur sýnum úr gólfefnum í skólastjórabústað við Húnavallaskóla en skýrslan var í&nbsp;vörslum Fasteigna Húnavatnshrepps.&nbsp;Kærandi hafði haft búsetu í húsnæðinu sem skýrslan fjallaði um og fór því um rétt hans til aðgangs eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi engin rök hafa verið færð fram fyrir því að synja bæri kæranda um aðgang að skýrslunni. Var því synjunin felld úr gildi. </p>

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    696/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var afgreiðsla Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem tengjast honum og notuð voru til umfjöllunar í Kastljóssþætti sem sýndur var í sjónvarpinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu RÚV að gögnin væru ekki í vörslum félagsins heldur hafi félagið fengið aðgang að gögnum hjá þriðja aðila við vinnslu fréttarinnar. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    695/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Deilt var um afgreiðslu Þingeyjarsveitar á beiðni um afrit af öllum gögnum í tengslum við samning sveitarfélagsins við Landsnet hf. frá 26. september 2014 um fébætur vegna lagningar háspennulínu um jörðina Þeistareyki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þær staðhæfingar sveitarfélagsins að öll gögn hefðu verið afhent kæranda. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    694/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    ágúst 2017 / Forsætisráðuneytið 694/2017. Úrskurður frá 27

    08. mar. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    693/2017. Úrskurður frá 27. júlí 2017

    Kærð var synjun velferðarráðuneytisins á synjun beiðni um aðgang að öllum gögnum í vörslum ráðuneytisins sem varði&nbsp;þjónustu kæranda&nbsp;og bárust ráðuneytinu á tilteknu tímabili. Ráðuneytið&nbsp;afhenti kæranda&nbsp;umbeðin gögn&nbsp;en synjaði um aðgang tilteknum bréfaskiptum með vísan til 3. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi hluta gagnanna heyra undir undanþáguákvæðið og staðfesti synjun ráðuneytisins á beiðni um aðgang að þeim. Úrskurðarnefndin féllst hins vegar ekki á að fylgiskjöl með bréfum féllu undir undanþáguákvæðið og taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að þeim á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

    20. feb. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    670/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Kærð var afgreiðsla forsætisráðuneytis á beiðni um aðgang að samantekt um síma og tölvur sem fyrrverandi ráðherra lét taka saman fyrir ríkisstjórnina. Ráðuneytið&nbsp;studdi&nbsp;ákvörðun sína við&nbsp;1. tl. 6. gr. og 1. tl. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kom fram að ekki væru efni til að draga þær skýringar ráðuneytisins í efa að umbeðið gagn hafi verið tekið saman fyrir ráðherrafund, sbr. 1. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Synjun forsætisráðuneytisins var því staðfest.

    20. feb. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    669/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Deilt var um aðgang að gögnum í tengslum við athugun Lyfjastofnunar á afhendingu&nbsp;kæranda á lyfjum&nbsp;til tiltekinna heilbrigðisstofnana. Úrskurðarnefndin tók fram að ekki væri séð að Lyfjastofnun hefði tekið afstöðu til beiðni kæranda um hluta beiðninnar. Um önnur umbeðin gögn tók nefndin fram að kærandi væri tilgreindur í þeim og þau hefðu að geyma upplýsingar um hvernig hann afgreiði lyf. Kærandi var talinn eiga rétt til aðgangs á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sem ekki yrði takmarkaður vegna 3. mgr. ákvæðisins.

    20. feb. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    668/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Kærð var synjun ríkisskattstjóra á beiðni um aðgang að gögnum sem kærandi vísaði til þess að ríkisskattstjóri fengi afhent beint frá ýmsum lögaðilum. Ríkisskattstjóri bar fyrir sig að upplýsingarnar tilheyri framtali kæranda og&nbsp;væru honum einum aðgengilegar þar til framtali er skilað. Fram að því&nbsp;væru þær vistaðar sjálfvirkt í gagnagrunni sem ríkisskattstjóri geti ekki kallað eftir gögnum úr. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi skýringar ríkisskattstjóra leiða til þess að upplýsingarnar teldust ekki fyrirliggjandi hjá embættinu í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Með vísan til þess var málinu vísað frá nefndinni.

    20. feb. 2017Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    667/2017. Úrskurður frá 30. janúar 2017

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum um rannsókn um skimun fyrir góðkynja einstofna mótefnahækkun. Vísindasiðanefnd hafði synjað kæranda um aðgang á grundvelli 1. mgr. 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 vegna fjárhagslegra hagsmuna&nbsp;Háskóla Íslands&nbsp;og ábyrgðarmanns rannsóknarinnar. Einnig vísaði&nbsp;vísindasiðanefnd til þess að gögnin lytu að samkeppnishagsmunum,s br. 4. tl. 1. mgr. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi gögnin ekki hafa að geyma upplýsingar um hagsmuni þessara aðila í þeim mæli að upplýsingaréttur almennings næði ekki til aðgangs að þeim og úrskurðaði að veita bæri kæranda aðgang að almennri umsókn fyrir rannsóknina og eftirfarandi bréfaskiptum vísindasiðanefndar og umsækjanda.

    08. feb. 2017Forsætisráðuneytið

    Rætt um Brexit og fiskveiðistjórnunarkerfið á Íslandi

    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra fundaði í gær 1. ágúst, með Michael Gove ráðherra umhverfis,- matvælaframleiðslu- og byggðamála​ í Bretlandi en sjávarútvegsmál heyra undir ráðuneyti hans.

    12. jan. 2017Forsætisráðuneytið, Auðlindir

    Ríkisstjórnin samþykkti aukin framlög vegna flóða á Suðaustur- og Austurlandi

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag, á grundvelli tillögu samráðshóps ráðuneytisstjóra, að veita þeim stofnunum sem unnið hafa að vöktun og viðbúnaði í kjölfar úrkomuveðurs, vatnavaxta og flóða á Suðaustur- og Austurlandi í lok september og byrjun október síðastliðinn aukin fjárframlög að upphæð 317,6 m.kr.

    12. jan. 2017Forsætisráðuneytið

    Katrín tekur við lyklavöldum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag með táknrænum hætti við lyklavöldum í forsætisráðuneytinu úr hendi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og fráfarandi forsætisráðherra. Katrín er önnur konan til að gegna embætti forsætisráðherra í ríkisstjórn Íslands.

    12. jan. 2017Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Innviðaráðuneytið

    Sigurður Ingi Jóhannsson samstarfsráðherra Norðurlanda

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að skipa Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í embætti samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

    11. jan. 2017Forsætisráðuneytið

    Staðgengill forsætisráðherra tekur þátt í störfum Norðurlandaráðsþings og ráðherrafundum

    Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra, samstarfsráðherra Norðurlanda og staðgengill forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs, tók í gær og í dag þátt í störfum Norðurlandaráðsþings í Helsinki og forsætisráðherrafundum því tengdu.

    • First
    • Prev
    • 46
    • 47
    • 48
    • 49
    • 50
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband