15. jún. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Hönnun, Iðnaður, Menningarmál
Mótun stefnu um málefni hönnunar og arkitektúrs: Aðgerðir sem skilar árangri, fagmennsku og gæðum
„Markmið verkefnisins er skýrt; við viljum móta stefnu og aðgerðir sem skila árangri, fagmennsku og gæðum til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Nýrri stefnu er ætlað að virkja mannauð í hönnunargreinum til þess að leysa brýn verkefni samtímans, auka lífsgæði og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, í ávarpi sínu á nýlegum rýnifundi um mótun stefnu í málefnum hönnunar og arkitektúrs.