09. des. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
551/2014. Úrskurður frá 9. september 2014
<p>Brit Insurance Ltd., QBE Insurance (Europe) Ltd., Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., Allianz Global Corporate & Specialty AG, Novae Syndicate 2007, Dan Re Syndicate 1400 og QBE Syndicate 1886 kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins („FME“) um að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum í ellefu liðum. Beiðnin laut að nánar tilteknum gögnum varðandi einn aðila á ákveðnu tímabili. Nefndin taldi FME ekki hafa afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti og féllst ekki á varakröfu FME um að beiðninni mætti synja á grundvelli 1. tl. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi beiðnina ekki hafa hlotið þá umfjöllun hjá FME, sem kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga, og almennar reglur stjórnsýsluréttar um kæruheimildir á stjórnsýslustigi, gera ráð fyrir.…