01. okt. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk
Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í gær og kveður á um að Reykjanesbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum. Þetta er fjórði samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma.