19. jún. 2014Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 6/2014. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 17. mars 2014 kærði Logaland ehf. útboð nr. 15554 auðkennt „Rannsóknartæki og rekstrarvara fyrir LSH“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli niður skilmála 2. mgr. inngangskafla í viðauka 14 í útboðsgögnum að hluta til, skilmála 1. mgr. liðar 1.02 í viðauka 14 og lið 3.1.2 í útboðsgögnum auk eftirfarandi liði í viðauka 14 í útboðsgögnum: 2.24, 2.25, 2.26, 3.01, 3.20, 3.26, 3.27, 3.31 og 3.38 og 3.20. Til vara er þess krafist að kærunefnd felli útboðið niður í heild sinni og leggi fyrir varnaraðila Ríkiskaup að auglýsa útboð á nýjan leik. Þá er krafist málskostnaðar.</p>