10. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-444/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.
<p>Kærð var sú ákvörðun fjármálaráðuneytisins að synja kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu málefni Ríkisútvarpsins, m.a. um hvernig Ríkisútvarpið uppfyllti skyldur sínar í almannaþjónustu að því er varðar dreifingu sjónvarps og hljóðvarps, og væri í vörslum ráðuneytisins. Talið að meiri hluti þeirra gagna sem synjað var um aðgang að vörðuðu upplýsingar sem með beinum hætti lytu að samskiptum fjölþjóðastofnunar, þ.e. Eftirlitsstofnun EFTA, við íslensk stjórnvöld, sbr. 2. tölul. 6. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Synjun fjármálaráðuneytisins var því staðfest að því er varðaði umbeðin gögn að undanskildum tveimur skjölum, en efni þeirra hafði þegar verið birt opinberlega á vefsíðu Stjórnarráðsins.  </p>