23. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Mannréttindi og jafnrétti, Menntamál, Almannaöryggi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess
Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu á fundi hennar í dag tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess, til næstu fjögurra ára. Stýrihópur með fulltrúum hlutaðeigandi ráðuneyta hefur unnið að áætluninni í samstarfi við fjölda aðila á síðustu misserum.