23. jan. 2014Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir
Mál nr. 26/2013. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<br>
Með kæru 28. september 2013 sem barst kærunefnd útboðsmála sama dag, kærðu Aflvélar ehf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Vegagerðarinnar nr. 15493 ,,Sand-, salt- og pækildreifarar (4) fyrir Vegagerðina”. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála lýsi samning Vegagerðarinnar við A. Wendel ehf., um kaup á fjórum Epoke Sirius AST3800 vélum, óvirkan. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála úrskurði að hið kærða útboð sé ólögmætt og að varnaraðilar, Ríkiskaup og/eða Vegagerðin séu skaðabótaskyld gagnvart kæranda vegna útboðsins. Jafnframt krefst kærandi þess að varnaraðila, Vegagerðinni, verði gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Þá krefst kærandi þess að kærunefndin úrskurði að Ríkiskaup og/eða Vegagerðin skuli greiða kæranda málskostnað vegna kærumeðferðarinnar.