Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2751–2800 af 3602
    Raða eftir:
    11. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Úttekt á heildsölu lyfja á Íslandi

    Velferðarráðuneytið hefur samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um úttekt á heildsölu lyfja hér á landi, í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra. Skoðað verður hvernig heildsala hefur þróast í kjölfar lagabreytinga árið 1996, hver sé þörf heildsölu- og dreifingarfyrirtækja fyrir álagningu og hvernig samkeppni á heildsölumarkaði með lyf hér á landi er háttað.

    05. okt. 2018Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið um fullnaðarhönnun rannsóknahúss við Hringbraut

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra undirritaði í dag samning við Corpus3 hópinn um fullnaðarhönnun rannsóknahúss Landspítala. Rannsóknahúsið er hluti af heildaruppbyggingu Landspítalans við Hringbraut.

    04. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Hjúkrunarrýmum í Hafnarfirði fjölgar um 33

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ heimild sem gerir kleift að fjölga hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 33 innan tveggja ára. Hjúkrunarrými í Hafnarfirði verða þar með rúmlega 90. Ráðherra kynnti Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra ákvörðun sína í Hafnarfirði í dag. Ákvörðunin er liður í stórátaki stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma sem heilbrigðisráðherra kynnti fyrr á þessu ári með framkvæmdaáætlun til ársins 2023.

    02. okt. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Sýklalyfjanotkun og ónæmar bakteríur

    Árleg skýrsla Embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun og algengi sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi hjá mönnum og dýrum er komin út. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að sýklalyfjanotkun hjá mönnun jókst um rúm 3% árið 2017 frá fyrra ári. Í tilkynningu á vef embættisins kemur meðal annars fram að á þessu ári hafi verið ráðist í vinnu með læknum sem miðar að því að efla vitund þeirra og bæta ávísanavenjur þeirra vegna sýklalyfja til að draga úr notkun þeirra. Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra baktería er álitin ein helsta heilbrigðisógn samtímans segir í tilkynningunni.

    02. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrirkomulag gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín

    Neytendastofa vinnur að útfærslu á gjaldtöku vegna markaðssetningar á rafrettum sem innihalda nikótín og áfyllinga fyrir þær, á grundvelli reglugerðar heilbrigðisráðherra nr. 803/2018. Gert er ráð fyrir að framleiðendur vörunnar sæki um markaðsleyfi og greiði áskilið gjald, nema í tilvikum þegar smásalar kjósa sjálfir að tilkynna vöru á markað.

    01. okt. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Frestun á sameiginlegu norrænu lyfjaútboði

    Sameiginlegu lyfjaútboði Danmerkur, Íslands og Noregs sem kynnt var fyrir völdum tilboðsgjöfum 28. september síðastliðinn hefur verið frestað og tilboðsgjöfum veittur lengri frestur til að gera athugasemdir við framlögð gögn.

    28. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra á leiðtogafundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ávarpaði í gær leiðtogafund 73. allsherjarþings Sameinuðu þjónanna í New York, þar sem fjallað var sérstaklega um langvinna sjúkdóma.

    27. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Drög að frumvarpi til laga um þungunarrof til umsagnar

    Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra laga um þungunarrof. Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að tryggja að sjálfsforræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heilbrigðisþjónustu fyrir þær konur sem óska eftir þungunarrofi.

    26. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ráðherra veitir 40 milljónir króna í stuðningsteymi fyrir langveik börn

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Landspítalanum 40 milljónir króna til að koma á fót sérstöku stuðningsteymi fyrir langveik börn með miklar stuðningsþarfir, meðal annars vegna sjaldgæfra sjúkdóma.

    25. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Tillaga Íslands um rafræna fylgiseðla með lyfjum samþykkt í Strasbourg

    Rannsóknarverkefni sem tengist mögulegri innleiðingu rafrænna fylgiseðla með lyfjum hefst í aðildarríkjum Evrópuráðsins í byrjun næsta árs. Verkefninu er ætlað að sýna hvort þessi leið nýtist til að einfalda og bæta hefðbundna upplýsingagjöf um lyf gagnvart notendum. Einnig er horft til þess að með rafrænum fylgiseðlum megi auðvelda fámennum þjóðum að standa sameiginlega að útboðum og innkaupum lyfja.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fundað um fyrirkomulag sérgreinaþjónustu og næstu skref

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti hugmyndir sínar um framtíðarfyrirkomulag við kaup á þjónustu sérgreinalækna á fundi í velferðarráðuneytinu í dag. Ráðherra lýsti þar vilja sínum til að framlengja gildandi rammasamning um eitt ár meðan unnið yrði að breyttu fyrirkomulagi.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Dómur í máli sérgreinalæknis undirstrikar þörf á öðru fyrirkomulagi samninga

    Heilbrigðisráðherra mun ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms í máli sérgreinalæknis varðandi aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands. Ráðherra segir niðurstöðu dómsins undirstrika nauðsyn þess að núverandi fyrirkomulag verði endurskoðað með gerð nýrra samninga á öðrum grunni. Byggja þurfi á leiðsögn Ríkisendurskoðunar um að ríkið sem greiðandi þjónustunnar skuli ávallt hafa frumkvæði að því hvaða heilbrigðisþjónusta er keypt, í hvaða magni og af hverjum.

    24. sep. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ásmundur Einar ræðir aukið samstarf við Finna á sviði húsnæðismála

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, er nú staddur í Finnlandi þar sem hann ræðir meðal annars við þarlend stjórnvöld um aukið samstarf í húsnæðismálum. Ásmundur átti í dag fund með Kimmo Tiilikainen, ráðherra húsnæđismála í Finnlandi.

    24. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Brugðist við röngum staðhæfingum varðandi sérgreinalækna

    Þrír læknar birta grein í Morgunblaðinu í dag þar sem þeir halda því meðal annars fram að heilbrigðisráðherra ætli sér að færa þjónustu sérgreinalækna að miklu leyti eða alfarið inn á göngudeildir sjúkrahúsa. Eftirfarandi eru athugasemdir ráðherra við megininntak greinarinnar, þar sem læknarnir fara rangt með staðreyndir.

    20. sep. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um veitingu sérfræðileyfis í íþróttasjúkraþjálfun

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis um að synja kæranda um sérfræðileyfi í íþróttasjúkraþjálfun. Ráðuneytið ógildi ákvörðun Embættis landlæknis og lagði fyrir embættið að veita kæranda sérfræðileyfi í íþróttasjúkraþjálfun

    20. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

    Lagt er til að heilbrigðisráðherra verði gert heimilt að setja reglugerð um gjaldtöku vísindasiðanefndar vegna umsókna um leyfi til að hefja eða breyta vísindarannsókn á heilbrigðissviði samkvæmt drögum að frumvarpi sem birt hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    19. sep. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjarheilbrigðisþjónusta - í takt við nýja tíma

    september 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Fjarheilbrigðisþjónusta - í takt við nýja tíma Skýrsla og tillögur starfshóps um áframhaldandi uppbyggingu og framþróun á skipulagi og framkvæmd fjarheilbrigðisþjónustu um allt land. Fjarheilbrigðisþjónusta - Í takt við nýja tíma

    19. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillögur um uppbyggingu og þróun fjarheilbrigðisþjónustu

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að móta tillögur um eflingu fjarheilbrigðisþjónustu, skipulag, framkvæmd og áframhaldandi uppbyggingu á því sviði hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn gerir meðal annars tillögur að nokkrum þróunarverkefnum sem ráðist verði í á næstu tveimur til þremur árum.

    18. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Endurskoðun reglugerðar til að jafna rétt barna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta endurskoða ákvæði reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga fyrir tannlækningar og tannréttingar barna vegna afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Ráðherra segir endurskoðun nauðsynlega þar sem gildandi reglugerðarákvæði virðist leiða til mismununar sem sé óverjandi.

    17. sep. 2018Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Breytingar á Stjórnarráði Íslands

    Velferðarráðuneytinu verður skipt upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, jafnréttismál færast á ábyrgð forsætisráðuneytis og málefni mannvirkja færast úr umhverfisráðuneyti í félagsmálaráðuneyti.

    17. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Breyting á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu til umsagnar

    Óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til lagabreytinga sem heimilar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Markmiðið er að bæta aðgengi kvenna að kynheilbrigðisþjónustu, efla og styrkja þjónustuna og að nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar á þessu sviði.

    13. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    „Ráðgjafarnefnd Landspítalans mikilvægur bakhjarl“

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fylgdi úr hlaði fyrsta fundi nýskipaðrar ráðgjafarnefndar Landspítalans sem haldinn var í velferðarráðuneytinu í vikunni. Svandís lýsti ánægju með að nefndin væri tekinn til starfa, hún myndi verða Landspítalanum mikilvægur bakhjarl og hefði mikilvægu hlutverki að gegna.

    12. sep. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Heilbrigðisráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    12. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum frestað

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Ríkiskaupa um að fresta opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum um fjóra mánuði. Miðað við þetta ætti að vera unnt að taka nýja sjúkrabíla í notkun fyrir lok næsta árs.

    11. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Helstu áherslur á sviði heilbrigðismála

    Greiðara aðgengi að heilsugæslu, lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga, framkvæmdir við nýjan Landspítala, öflugri göngudeildarþjónusta, styrking heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, uppbygging hjúkrunarrýma og bætt geðheilbrigðisþjónusta, – þetta eru megináherslurnar á sviði heilbrigðismála sem birtast í fjárlagafrumvarpi ársins 2019. Hækkun framlaga til heilbrigðismála nemur 12,6 milljörðum króna að frátöldum launa- og verðlagshækkunum.

    10. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    25 milljóna króna framlag í aðgerðaáætlun gegn sjálfsvígum

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 25 milljóna króna framlag til að hrinda í framkvæmd verkefnum sem lögð eru til í aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Ráðherra tilkynnti um ákvörðun sína á málþingi sem haldið var í tilefni Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna í dag.

    10. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum kynnt í Kaupmannahöfn

    Fyrirhugað sameiginlegt lyfjaútboð Danmerkur, Íslands og Noregs verður kynnt í Kaupmannahöfn 28. september næstkomandi. Frá þessu er sagt á vef Landspítalans. Möguleikar á sameiginlegum lyfjainnkaupum Norðurlandaþjóðanna hafa verið til umræðu um langt árabil og því er um tímamót að ræða. Litið er á úboðið sem reynsluverkefni til að afla þekkingar á ýmsum hagnýtum þáttum slíkra útboða

    07. sep. 2018Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Samstarf í þágu barna

    Ráðherrar ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukið samstarf í þágu barna.

    05. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    María Heimisdóttir tekur við embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Maríu Heimisdóttur forstjóra Sjúkratrygginga Íslands til næstu fimm ára. Hún tekur við embættinu þegar Steingrímur Ari Arason, núverandi forstjóri, lætur af störfum 31. október næstkomandi.

    05. sep. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf

    Safety for children - new thinking - new approaches - Norræn ráðstefna um málefni barna

    ATH: Þessi grein er eldri en 5 ára. 05 september 2018 / Safety for children - new thinking - new approaches - Norræn ráðstefna um málefni barna Ávarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra á norrænni ráðstefnu um málefni barna Ráðstefnan var haldin í Hörpu, dagana 5. - 7

    04. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tannheilsa og aðgengi að tannlæknaþjónustu

    Með endurskoðun á greiðsluþátttöku aldraðra vegna tannlæknaþjónustu og nýjum rammasamningi hefur verið lagður hornsteinn sem jafnar aðgengi eldra fólks að nauðsynlegri tannlæknaþjónustu og stuðlar að betri tannheilsu þegar aldurinn færist yfir. Þetta er mat Embættis Landlæknis sem fjallar um tannheilsu og aðgengi að tannlæknaþjónustu í nýjasta Talnabrunni – fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar.

    03. sep. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi

    Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að skoða möguleika á aukinni aðkomu þyrlna að sjúkraflugi skilaði ráðherra skýrslu með tillögum sínum í dag. Hópurinn skoðaði tvær leiðir í þessu skyni; annars vegar með aukinni aðkomu Landhelgisgæslu Íslands sem m.a. myndi reka sérstaka sjúkraþyrlu og hins vegar með rekstri sjúkraþyrlu sem rekin væri af öðrum en Landhelgisgæslunni.

    03. sep. 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - skýrsla starfshóps

    september 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - skýrsla starfshóps Aukin aðkoma þyrlna að sjúkraflugi - Skýrsla starfshóps með tillögum til heilbrigðisráðherra

    31. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilkynningar um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga sem innihalda nikótín

    Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur sem innihalda nikótín tekur gildi á morgun, 1. september. Markmiðið er að tryggja að einungis séu seldar rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur sem uppfylla öryggisstaðla og þau viðmið sem gilda um öryggi vöru hér á landi.

    31. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framlög til tannlækninga aldraðra og öryrkja aukin um rúm 140%

    Nýr samningur um tannlæknaþjónustu við aldraða og öryrkja tekur gildi á morgun. Heilbrigðisráðherra segir samninginn mikilvæga kjarabót og réttarbót fyrir aldraða og öryrkja. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hækkar almennt úr 27% í 50%. Tannlæknaþjónusta við langveika aldraða og öryrkja á stofnunum verður þeim að kostnaðarlausu.

    30. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar: „Verkefnum fjölgar – úr vörn í sókn“

    Þetta er yfirskrift blaðagreinar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag þar sem hún fjallar um mikilvæg verkefni á sviði heilbrigðisþjónustu, stefnumótun fyrir heilbrigðiskerfið og forgangsröðun fjármuna. Í greininni kemur fram að ráðherra muni boða til heilbrigðisþings í nóvember þar sem þessi mál verða til umræðu.

    30. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Vestnorrænir heilbrigðisráðherrar funduðu í Reykjavík

    Árlegur fundur heilbrigðisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands var haldinn í Reykjavík 28. og 29. ágúst. Svandís Svavarsdóttir stýrði fundinum þar sem ráðherrarnir gerðu hver um sig grein fyrir ýmsum áherslumálum og mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í heimalöndum sínum.

    30. ágú. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Ráðherra styrkir LÝSU; lýðræðishátíð Almannaheilla

    Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur gert samkomulag við Almannaheill – samtök þriðja geirans, um fjögurra milljóna króna styrkveitingu til samtakanna. Meginmarkmið samkomulagsins er að styrkja Almannaheill við framkvæmd lýðræðishátíðarinnar LÝSU/Fundar fólksins.

    24. ágú. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjölskylda Einars Darra kynnti heilbrigðisráðherra forvarnarverkefnið #égábaraeittlíf

    Fjölskylda Einars Darra Óskarssonar afhenti í dag heilbrigðisráðherra armbönd, eða kærleiksgjöf, frá minningarsjóði Einars Darra sem lést aðeins 18 ára gamall í maí síðastliðnum eftir neyslu róandi lyfja. Í kjölfar andláts Einars Darra stofnuðu ættingjar hans minningarsjóð sem hefur það markmið að styðja við ungmenni í fíknivanda og sinna forvarnarfræðslu um skaðsemina sem fylgir misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja.

    23. ágú. 2018Líf og heilsa, Lýðheilsa og forvarnir, Heilbrigðisráðuneytið

    Reglugerð varðandi tilkynningar um markaðssetningu rafrettna til umsagnar

    Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    22. ágú. 2018Líf og heilsa, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir gegn misnotkun lyfja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn, í blaðagrein sem birtist í dag. Hún segir heilbrigðisyfirvöld verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn þessum vanda og rekur í greininni það sem þegar hefur verið gert í þessu skyni og hvaða aðgerðir eru í bígerð.

    21. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Úttekt á smásölu lyfja á Íslandi

    Velferðarráðuneytið hefur samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um gerð úttektar á smásölu lyfja hér á landi. Skoðað verður hvernig markaðurinn hefur þróast frá því að verslun með lyf var gefin frjáls árið 1996 og hvort helstu markmiðum lyfjalaga sé framfylgt.

    20. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Drög að reglugerð um skömmtun lyfja til umsagnar

    Drög að endurskoðaðri reglugerð heilbrigðisráðherra um skömmtun lyfja hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 10. september næstkomandi.

    16. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Viðvaranir Embættis landlæknis vegna misnotkunar lyfja

    Vegna frétta undanfarið um notkun ungmenna á ávanabindandi lyfjum hefur embættið tekið saman upplýsingar um alvarleg áhrif og afleiðingar misnotkunar. Fjallað er um bráðar og óafturkræfar afleiðingar sem hlotist geta af því að taka inn of stóran skammt af tilteknum lyfjum.

    24. júl. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2018

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2018. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    03. júl. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fagleg samræða um þjónustu sérgreinalækna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra stóð fyrir fundi í velferðarráðuneytinu í gær þar sem efnt var til samræðu um þjónustu sérgreinalækna og faglegt fyrirkomulag hennar með stefnumótun til framtíðar að leiðarljósi. Þátttakendur í fundinum voru fulltrúar helstu veitenda heilbrigðisþjónustu í landinu.

    26. jún. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Smáríkjafundur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hófst í Reykjavík í morgun

    Áhrif loftslagsbreytinga og margvísleg ógn sem af þeim stafar er í forgrunni á fundi smáríkja um heilbrigðismál sem nú stendur yfir í Reykjavík og haldinn er á vegum WHO. Fundinn sækja heilbrigðisráðherrar þátttökuþjóðanna, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO, embættismenn og sérfræðingar.

    26. jún. 2018Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Þátttaka Íslands í ráðstefnu Efnahags- og framfarastofnunarinnar um jafnréttismál

    Dagana 19.-21. júní fór fram önnur ráðstefna Efnahags- og framafarastofnunarinnar um jafnréttismál í samstarfi við austurrísk stjórnvöld. ​Sú fyrsta var haldin í samstarfi við íslensk stjórnvöld árið 2017 eftir að aðildarríki OECD mörkuðu sér sína fyrstu stefnu í jafnréttismálum árið 2015.

    25. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipun í ráðgjafarnefnd Landspítala

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Formaður nefndarinnar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

    22. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gylfi Ólafsson skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við niðurstöðu lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

    • First
    • Prev
    • 54
    • 55
    • 56
    • 57
    • 58
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband