27. jún. 2023Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Ísland efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna fjórtánda árið í röð
Ísland er í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna sem birtur var í síðustu viku. Er þetta fjórtánda árið í röð sem Ísland er á toppi listans.