18. okt. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1041/2021. Úrskurður frá 18. október 2021.
Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi Lindarhvols ehf. Ákvörðun ráðuneytisins byggði á því að umbeðin gögn væru háð sérstakri þagnarskyldu skv. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sbr. fyrri úrskurði úrskurðarnefndarinnar. Kærandi taldi þagnarskylduákvæðið ekki eiga við í þessu tilviki enda hefði greinargerðin ekki verið send ráðuneytinu sem drög, á grundvelli lagaskyldu, heldur hefði verið um lokaskil hennar að ræða. Úrskurðarnefndin taldi ljóst af greinargerðinni að ekki væri um endanlega útgáfu að ræða. Greinargerðin væri þar með undirorpin sérstakri þagnarskyldu, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 46/2016, sem gengi framar rétti almennings til aðgangs að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum, sbr.…