09. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra bauð forsetahjónum Indlands til hádegisverðar á Þingvöllum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, bauð Shri Ram Nath Kovind, forseta Indlands, og Savita Kovind, forsetafrú, til hádegisverðar í Ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Þau ræddu loftslagsmál og möguleika Íslands og Indlands á auknu samstarfi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Þá ræddu þau kynjajafnréttismál og fæðingarorlof.