28. feb. 2023Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið
Síðasta eftirfylgni með innviðaátaki stjórnvalda
Þriðju og síðustu eftirfylgni innviðaátaks stjórnvalda í kjölfar óveðursins sem geisaði í desember 2019 er nú lokið. Vinnu við um 70% skammtímaaðgerða var að fullu lokið í lok árs 2022 og vinna hafin við þær allar. Þá er vinna hafin við 95% langtímaaðgerða og um 40% þeirra lokið eða þær komnar vel á veg.