03. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Lög og réttur, Utanríkismál, Úkraína, Dómsmálaráðuneytið
Rússlandi vikið úr fjármálaaðgerðahópnum FATF
Alþjóðlegur fjármálaaðgerðahópur ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) hefur ákveðið að víkja Rússlandi úr hópnum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ákvörðunin var tekin á allsherjarfundi FATF sem lauk þann 24. febrúar sl. þegar ár var liðið frá upphafi innrásarinnar.