Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3451–3500 af 4327
Raða eftir:
24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-449/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Staðfest var synjun Hafnarfjarðarbæjar á því að veita kæranda aðgang að vitnisburðum 15 fyrrverandi samstarfsmanna, hennar sem veittir voru í tengslum við gerð úttektar á samskiptum kæranda við aðra starfsmenn tiltekins leikskóla og grunnskóla í Hafnarfirði. Hagsmunir þeirra einstöku starfsmanna sem gáfu skýrslurnar taldir vega þyngra en hagsmunir kæranda af aðgangi.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-448/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Vísað var frá kæru bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ, vegna afgreiðslu bæjarins á beiðni um gögn, sem framsend hafði verið frá innanríkisráðuneytinu til nefndarinnar. Ákvæði sveitarstjórnarlaga veita sveitarstjórnarmönnum rýmri rétt til aðgangs að upplýsingum en upplýsingalög nr. 50/1996 auk þess sem kæran var jafnframt til meðferðar hjá innanríkisráðuneytinu.

18. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi um stjórnarskrármál

Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í sérstökum umræðum á Alþingi um stjórnarskrármál 18. október 2012.

10. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á BSRB þingi í október 2012

„Gildi jöfnuðar, mannúðar og samfélagslegrar ábyrgðar hefur sjaldan verið mikilvægara en nú, þegar íslenskt samfélag vex og dafnar á ný. Í þetta sinn verðum við að tryggja að lífskjarasóknin nýtist samfélaginu öllu,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, m.a. í ávarpi sínu á þingi BSRB 10. október 2012.

09. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Varanlega bætt búsetuskilyrði

„En margt hefur einnig gerst síðan þá. Hækkun veiðigjalds hefur verið lögfest. Í krafti tekna m.a. af veiðigjaldinu  hefur ríkisstjórnin sett fram fjárfestingaráætlun sem gerir ráð fyrir því að gerð Dýrafjarðarganga verði flýtt. Nú er áætlað að forval vegna framkvæmda við 5,6 kílómetra löng göngin fari fram árið 2015 og framkvæmdir hefjist í kjölfarið,“ segir m.a. í grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í 1. tbl. 1. árg. Vestfjarða 5. október sl.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-447/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni kæranda um það hverjir hefðu fengið tilkynningu á svokallaðri RSS-efnisveitu bankans um húsleit Seðlabankans í húsakynnum kæranda sem og synjun á afhendingu lista yfir þá sem fengið höfðu fréttina senda með tölvupósti frá bankanum. Úrskurðarnefndin taldi ekki unnt að afhenda gögn um fyrri lið beiðni kæranda. Í síðari lið beiðni kæranda fólst beiðni um aðgang að skrá. Á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga er ekki unnt að kæra synjun um aðgang að gögnum sem liggja ekki fyrir hjá stjórnvaldi. Synjun um aðgang að skrá er jafnframt ekki kæranleg skv. 14. gr. upplýsingalaga. Málinu var því vísað frá

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-446/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kæru sem beint var að Embætti landlæknis og velferðarráðuneytinu vísað frá úrskurðarnefndinni. Embætti landlæknis hafði aldrei borist beiðni um aðgang að því bréfi sem kæra málsins varðaði. Þá hafði velferðarráðuneytið afhent kæranda umbeðið gagn eftir að kæra barst úrskurðarnefndinni. Synjun stjórnvalds á aðgangi að gögnum var því ekki fyrir hendi.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-445/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Staðfest synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að skjali þar sem fram komu upplýsingar um heildargreiðslu til starfsmanns ráðuneytisins vegna tjóns sem hann og eiginkona hans urðu fyrir þegar búslóð þeirra var flutt til Bandaríkjanna vegna starfa hans fyrir ráðuneytið. Upplýsingarnar taldar varða einkahagsmuni og fjárhagsmálefni sem sanngjarnt væri að leynt færi sbr. 5. gr. upplýsingalaga.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-444/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kærð var sú ákvörðun fjármálaráðuneytisins að synja kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu málefni Ríkisútvarpsins, m.a. um hvernig Ríkisútvarpið uppfyllti skyldur sínar í almannaþjónustu að því er varðar dreifingu sjónvarps og hljóðvarps, og væri í vörslum ráðuneytisins. Talið að meiri hluti þeirra gagna sem synjað var um aðgang að vörðuðu upplýsingar sem með beinum hætti lytu að samskiptum fjölþjóðastofnunar, þ.e. Eftirlitsstofnun EFTA, við íslensk stjórnvöld, sbr. 2. tölul. 6. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Synjun fjármálaráðuneytisins var því staðfest að því er varðaði umbeðin gögn að undanskildum tveimur skjölum, en efni þeirra hafði þegar verið birt opinberlega á vefsíðu Stjórnarráðsins.

21. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Berjum ekki höfðinu við steininn

„Það er ánægjulegt að fylgjast með því hversu verkalýðssinnaðir sjálfstæðismenn eru orðnir þegar þeir mega vera að því að líta upp úr frjálshyggjufræðum sínum. En það er einhvern veginn eins og eitt horn rekist sífellt á annað í málflutningi þeirra. Í nafni atvinnurekenda krefjast þeir fjárfestinga og framkvæmda fyrir almannafé sem er mjög af skornum skammti og yrði enn minna ef heitstrengingar þeirra um að afnema veiðigjald og lækka skatta eignafólks og fyrirtækja yrðu að veruleika,“ segir í upphafi greinar Jóhönnu Sigurðardóttur í Fréttablaðinu 21. september 2012.

17. sep. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Auðlindastefnunefnd lýkur störfum

Nefnd forsætisráðherra um stefnumörkun í auðlindamálum ríkisins var sett á fót samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar í maí 2011. Skýrsla nefndarinnar liggur nú fyrir og hefur verið tekin til umfjöllunar í ríkisstjórn.

13. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Einstakt tækifæri kjósenda

Grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu og á visir.is 13. september 2012. Í greininni fjallar forsætisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs.

12. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra á 141. löggjafarþingi 2012 – 2013 12. september 2012

Sú leið sem Alþingi varðaði vorið 2010 var afar metnaðarfull. Hún var síðast en ekki síst lýðræðisleg og Alþingi Íslendinga til mikils sóma. Með ákvörðun sinni sýndi Alþingi því skilning að heildstæð endurskoðun stjórnarskrárinnar er stærra mál en svo að það verði alfarið til lykta leitt innan veggja Alþingis, heldur þurfi jafnframt að tryggja ríka aðkoma almennings að endurskoðunarferlinu öllu.

11. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Norðfjarðargöng og sóknarfæri Austurlands

„Á grundvelli fjárfestingaráætlunar ríkisstjórnarinnar 2013 - 2015 og samgönguáætlunar er undirbúningur jarðganga milli Norðfjarðar og Eskifjarðar hafinn. Áætlað er að verkið verði boðið út öðru hvoru megin við áramótin og að framkvæmdir hefjist á miðju næsta ári. Það verður sannarlega áhrifarík aðgerð til þess að gera Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað í raun að einu samfelldu atvinnusvæði,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í 1. tbl. Austurlands 6. september sl.

10. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á athöfn hjá Íþróttasambandi fatlaðra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ávarpaði Ólympíufaranna hjá Íþróttasambandi fatlaðra er þeir komu heim af Ólympíuleikunum í dag, mánudaginn 10. september 2012.

31. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stjórnarráð í þjónustu almennings

„Tilgangurinn með breyttu vinnulagi innan Stjórnarráðsins er að auka sveigjanleika og fagmennsku og tryggja faglega og hlutlausa stjórnsýslu sem borgararnir geta treyst. Okkur er mikið í mun að jafnræði ríki við afgreiðslu mála og að geðþótti ráði ekki för heldur fagmennska og skilvirkni. Stór liður í þessum breytingum fólst í endurskipulagningu og stækkun ráðuneytanna sem nú er lokið,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur sem birtist í Fréttatímanum 31.ágúst sl.

30. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Meirihluti telur Ísland á réttri leið

„Hægrimönnum er í mun að láta aukna skatta á hina tekjuhæstu líta út sem almenna vaxandi skattpíningu. Það er auðvitað fjarstæða. Reyndin er auk þess sú, að eftir því sem úr ójöfnuði dregur batnar líðan fólks og ekki aðeins það, því bætt lýðheilsa og minni tíðni glæpa virðist einnig haldast í hendur við minnkandi ójöfnuð,“ segir í grein Jóhönnu Sigurðardóttur sem birtist i Fréttablaðinu 30. ágúst sl.

30. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Tækifærin blasa við

„Að tryggja gerð Vaðlaheiðarganganna reyndi á þolrif fjárveitingarvaldsins og olli pólitískum deilum, rétt eins og gerð Héðinsfjarðarganganna. En þegar upp er staðið geta allir verið þess fullvissir að Vaðlaheiðargöng verða til góðs. Norðlendingar eignast eitt stórt atvinnusvæði sem teygir sig frá Eyjafirði austur fyrir Húsavík og í Mývatnssveit. Það er eftirsóknarvert og eykur stöðugleika,“ segir í grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist 30. ágúst 2012 í Akureyri - Vikublað.

29. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-443/2012. Úrskurður frá 29. ágúst 2012

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum 18 stjórnenda og starfsmanna Glitnis fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Aðgangur heimilaður að skýrslu eins aðila, en synjað vegna annarra. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Þagnarskylda.

20. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-440/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærð var synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um fjölda örorkulífeyrisþega og skattskyldar tekjur frá TR í maí og nóvember á árunum 2008-2011, sundurliðað eftir tekjubili. Fyrirliggjandi gögn. Upplýsingar í ótilteknum fjölda mála. Synjun staðfest.

18. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-439/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að afriti starfslokasamnings sjóðsins við fyrrum framkvæmdastjóra hans. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.

18. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-438/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Hafnarfjarðarbæjar á beiðni um aðgang að 1) skilmálaskjali, dags. 5. desember 2011, milli Hafnarfjarðarbæjar og [B] og [C], sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. desember 2011 og 2) yfirliti gagna varðandi endurfjármögnun lána Hafnarfjarðarbæjar hjá [B]. Fyrirliggjandi gögn. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að skilmálaskjali að hluta. Krafa um frestun réttaráhrifa.

10. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-442/2012. Úrskurður frá 10. ágúst 2012.

Kröfu um frestun réttaráhrifa úrskurðar A-442/2012 frá 5. júlí 2012 hafnað.

09. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-434/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun Flugmálastjórnar Íslands á beiðni um aðgang að gögnum. Aðild að stjórnsýslumáli. Hluti af gögnun ekki fyrirliggjandi hjá Flugmálastjórn Íslands. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Aðgangur veittur að hluta. Frávísun að hluta.

02. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Bjartsýni og bölmóður

"En umheimurinn er ekki eina ógnunin. Barlómur og bölsýni stjórnarandstöðu og áhanganda þeirra í hagsmunasamtökum er efnahagsvandamál. Söngur þessa karlakórs verður góðu heilli sífalskari eftir því sem óyggjandi hagtölur sýna skýrari árangur," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra m.a. í grein í Viðskiptablaðinu 2. ágúst 2012.

30. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Línurnar skýrast

"Þannig hefur ríkisstjórnin uppi áform um að auka stuðning við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta. Reynslan hefur kennt okkur að það er markviss aðgerð sem nær til ungra skuldugra fjölskyldna með börn á framfæri. Sömuleiðis er ætlunin að hækka fæðingarorlofsgreiðslur og lengja fæðingarorlofið í áföngum," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra m.a. í grein sem birtist í Fréttablaðinu 30. júlí 2012.

20. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-438/2012. Úrskurður frá 20. júlí 2012.

Kröfu um frestun réttaráhrifa úrskurðar A-438/2012 frá 5. júlí 2012 hafnað.

13. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-433/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá Landlækni vegna erindis til embættisins þar sem farið var fram á aðgang að kaupsamningi og öllum tengdum gögnum yfir Cervarix bóluefnið. Upplýsingar er varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Ráðstöfun almannafjár. Landlækni gert að afhenda kæranda rammasamning nr. 2870, dags. 24. júní 2011, um kaup á bóluefni gegn HPV sýkingum til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi í heild sinni. Landlækni bar einnig að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 15054, útboð á bóluefni gegn HPV (Human Papilloma Veiru) til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu. Þá var staðfest ákvörðun Landlæknis um synjun á afhendingu afrits af tilboði GlaxoSmithKleine ehf., dags. 14.…

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-431/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun landlæknis á að afhenda kæranda afrit af gögnum er varða rammasamning nr. 2143, dags. 25. september 2009, annars vegar og afrit af gögnum er varða rammasamningi nr. 2144, dags. 2. október 2009, hins vegar, þ.e. óskað var eftir afritum af umræddum rammasamningum í heild sinni, án útstrikana, tilboðum seljenda og útboðslýsingum þeirra. Upplýsingar er varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Ráðstöfun almannafjár. Aðgangur veittur að hluta. Landlækni gert að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 14042, sem beiðni kæranda um aðgang að gögnum laut að, enda um opið útboð að ræða, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu.

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-430/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun landlæknis á að afhenda kæranda afrit af tilboði dags. 14. apríl 2011, sem lagt var fram af fyrirtækinu GlaxoSmithKleine ehf. vegna útboðs nr. NR 15036 og af útboðslýsingu Ríkiskaupa vegna þess útboðs. Upplýsingar sem varða mikilvæg fjárhags- eða viðskiptamálefni lögaðila. Aðgangi hafnað. Landlækni gert að afhenda kæranda útboðslýsingu vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 15036, sem beiðni kæranda um aðgang að gögnum laut að, enda um opið útboð að ræða, væri hún fyrirliggjandi hjá embættinu.

10. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-429/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá velferðarráðuneytinu vegna erindis þar sem farið var fram á afrit af kaupsamningi milli ráðuneytisins og GlaxoSmithKline ehf. um kaup á Synflorix-bóluefni gegn pneumókokkum, svo og öllum undirliggjandi samningum varðandi málið. Gögn þegar verið afhent að hluta. Önnur gögn ekki fyrirliggjandi hjá ráðuneytinu. Kæruheimild. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-442/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012.

Kærð var synjun Landspítala háskólasjúkrahúss á gögnum er vörðuðu opinber, en óútboðsskyld, innkaup spítalans á tilteknum vöruflokkum. Beiðni um gögn nægilega afmörkuð við tilgreind mál. Aðgangur aðila að gögnum er varða hann sjálfan. Aðgangur veittur að hluta. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir. Ráðstöfun almannafjár.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-418/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 20. apríl 2012 nr. A-418/2012 felldur úr gildi. Ekki efni til að taka afstöðu til kröfu um að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðarins.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-441/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærð var afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á erindi kæranda þar sem óskað var eftir afhendingu samnings við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Sóla í Vestmannaeyjum. Erindi kærða hafði verið svarað á þá leið að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá bænum, en að unnið væri að gerð þeirra. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-437/2012. Úrskurður frá 5. júlí 2012

Kærður var dráttur á svörum frá landlækni vegna beiðni um afrit af kaupsamningum og öllum tengdum gögnum við níu innflutningsaðila varðandi kaup á 630.000 hlífðarsloppum, öndunargrímum, augnhlífum og hlífðarsvuntum. Fyrirliggjandi gögn.
Öryggi og varnir ríkisins. Viðskiptahagsmunir. Synjun staðfest að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-428/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun ríkislögreglustjóra að synja um afhendingu á gögnum um kaup embættisins á búningum af tilteknum lögaðila á árinu 2009 fyrir aðgerðarhóp lögreglunnar. Kærandi hafði þegar fengið afrit af tilboði lögaðilans ásamt pöntun. Kæran laut því eingöngu að aðgangi að reikningum. Ekki fallist á að aðgangur kæranda að reikningunum væri líklegur til að geta valdið lögaðilanum tjóni. Ríkislögreglustjóra gert að afhenda kæranda umbeðna reikninga.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-427/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var synjun Akureyrarkaupstaðar á beiðni um aðgang að drögum að yfirlýsingu vegna samstarfs við Denverborg, sem samþykkt var á fundi bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar þann 3. maí 2012. Vinnuskjöl. Endanleg ákvörðun um afgreiðslu máls. Fallist á afhendingu gagnsins.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-426/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Áfengis- og tóbaksverlsunar ríkisins, ÁTVR, að synja beiðni um aðgang að gögnum varðandi reynslusölu á áfengi í verslunum ÁTVR, lögfræðiþjónustu o.fl. Kærði gerði kröfu um frávísun málsins eða staðfestingu synjunar. ÁTVR bar að afhenda kæranda skjal með heitinu „ferli umsókna um reynslusölu hjá ÁTVR“ í samræmi við ákvörðun sína. Beiðni kæranda laut að öðru leyti að ekki að tilteknu máli eða tilgreindum málum í skilningi upplýsingalaga. Frávísun.

05. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-425/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var afgreiðsla innanríkisráðuneytisins á beiðni um leiðbeinandi yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga flokkuð eftir því hvort verkefni eru skyldubundin eða ekki. Við afgreiðslu upplýsingabeiðna var ekki fylgt þeirri reglu 11. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 að stjórnvaldi beri að taka ákvörðun um, hvort það verði við beiðni um aðgang að gögnum, svo fljótt sem verða megi. Ennfremur ekki þeirri reglu að skýra skuli þeim, sem fer fram á aðgang að gögnum frá ástæðum tafa og hvenær ákvörðunar sé að vænta, hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar. Frávísun. Gögn liggja ekki fyrir.

04. júl. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-424/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að synja beiðni um aðgang að kostnaðarliðum vegna 17. júní hátíðarhalda í Hafnarfirði, þ.e. synjun afhendingar gagna varðandi leigu á hljóð- og ljósabúnaði á Víðistaðatúni vegna hátíðahalda 17. júní 2011, verktakagreiðslum til verktaka sem unnu verkið, flutningskostnað á tækjabúnaði og sviði og einnig heildarkostnað á verkinu með og án skemmtikrafta. Frávísun að því er varðaði yfirlit úr bókhaldskerfi Hafnarfjarðarbæjar. Fallist á aðgang að reikningi einstaklings vegna hátíðarhaldanna, enda ekki talið vera til þess fallið að skaða viðskiptahagsmuni hans að veita aðgang að reikningnum.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-436/2012. Úrskurður frá 29. júní 2012

Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að samningi um vörslu og skilyrtan virðisrétt og að hluthafasamkomulagi fjármálaráðuneytisins og Skilanefndar Kaupþings um Arionbanka. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frávísun að hluta. Staðfest synjun um aðgang að samningi um vörslu og skilyrtan virðisrétt. Aðgangur veittur að hluta að hlutafjársamkomulagi.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-423/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja beiðni um aðgang að upplýsingum um hvert bókfært virði seljendaláns bankans til nýrra eigenda hins danska FIH banka hefði verið í bókum Seðlabankans um áramótin 2011 til 2012. Í kærunni var ennfremur óskað eftir því að Seðlabankinn afhenti afrit af þeim kaupsamningi sem hann gerði við nýja eigendur FIH bankans þegar bankinn var seldur í október 2010. Staðfest ákvörðun Seðlabanka Íslands um synjun á beiðni um aðgang að bókfærðu virði seljendaláns en þar sem ekki lá fyrir synjun á beiðni um afrit af kaupsamningi við nýja eigendur FIH bankans var þeim hluta kærunnar vísað frá.

29. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-422/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun velferðarráðuneytisins um synjun á beiðni um aðgang annars vegar að samningi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins við lögaðila um kaup á hugbúnaði fyrir heilsugæslustöðvar og hins vegar að samningi heilbrigðisráðuneytisins við lögaðila um kaup á rafrænum læknabréfum ásamt uppsetningu. Fallist var á beiðni kæranda að undanskildu einu fylgiskjali.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-435/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að hljóðritun milli formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands og forsætisráðherra um lánveitingu. Sérákvæði um þagnarskyldu. Synjun staðfest.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-432/2012. Úrskurður frá 28. júní 2012

Kærður var dráttur á svörum frá Landlækni vegna erindis, þar sem farið var fram á aðgang að kaupsamningum og öllum tengdum gögnum yfir veirulyfin Tamiflu og Relenza frá árinu 2006 til þess dags er beiðnin var sett fram. Landlæknir synjaði í kjölfarið beiðninni. Öryggi ríkisins. Synjun staðfest.

28. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-421/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun sýslumanns að synja beiðni um afrit af skýrslu frá fyrirtækinu Líf og sál ehf. til lögreglustjóra í tilefni ásakana um einelti kæranda í garð tiltekinna lögreglumanna. Kærandi hafði einungis fengið í hendur niðurlag skýrslunnar. Synjun staðfest varðandi lýsingar einstakra starfsmanna. Kærandi skyldi þó fá aðgang að öðrum hlutum skýrslunnar.

27. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-420/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var meint synjun Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða á beiðni um afhendingu allra gagna er vörðuðu meint kynferðisbrot gagnvart dóttur kæranda á Sólheimum, vistheimili Skúlagötu 46 og víðar. Kæruheimild var ekki fyrir hendi þar sem ekki var um synjun að ræða,  kæranda hafði verið boðinn aðgangur að þeim gögnum sem lágu fyrir hjá kærða. Frávísun.

26. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-419/2012. Úrskurður frá 18. júní 2012

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum fimm einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þagnarskylda. Synjun staðfest.

22. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Sáttavilji ítrekaður

„Nú liggur niðurstaða Héraðsdóms fyrir og er dómurinn í góðu samræmi við þá sátt sem ég ítrekað bauð,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, meðal annars í grein í Fréttablaðinu 22. júní 2012.

19. jún. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Jafnlaunastaðall

Ávarp forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, á fundi til kynningar á frumvarpi um jafnlaunastaðal, Grand Hótel Reykjavík, 19. júní 2012.

• First
• Prev
• 68
• 69
• 70
• 71
• 72
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband