Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 684
    Raða eftir:
    07. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland kaupir búnað til sprengjuleitar fyrir Úkraínu

    Ísland, ásamt Norðurlöndunum og Litáen, tekur þátt í leiða þjálfunarverkefni í sprengjuleit og eyðingu sem hófst í mars síðastliðnum. Í tengslum við verkefnið hefur verið ákveðið að Ísland leggi til grunnbúnað fyrir þátttakendur að andvirði um 50 milljóna króna og nýtist við þjálfunina. Búnaðurinn verður fluttur til Úkraínu að loknu hverju námskeiði. Þar verður hann notaður við leit að jarðsprengjum og eyðingu.

    27. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Alþjóðamál

    Áyktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins samþykkt

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins með 122 atkvæðum. Ísland og Írland leiddu samningaviðræðurnar um ályktunardrögin sameiginlega en Ísland tók við formennsku í Evrópuráðinu af Írlandi í nóvember síðastliðnum.

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar um götulokanir vegna leiðtogafundar

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Um 40 leiðtogar hafa boðað komu sína og ljóst að umfang á öryggisráðstöfunum verður mikið. Svæðið í kringum Hörpu og í Kvosinni verður lokað fyrir umferð almennra ökutækja, nema viðbragðsaðila, frá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. Mynd af lokunarsvæðinu má finna hér neðar í fréttinni.

    18. apr. 2023Dómsmálaráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Úkraína, Stafrænt Ísland

    Flóttamenn geta tilkynnt stríðsglæpi

    Sett hefur verið upp tilkynningagátt á island.is þar sem flóttafólk frá Úkraínu getur tilkynnt hugsanlega stríðsglæpi

    17. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, UN Women, UNICEF, Utanríkismál

    Nýir rammasamningar við landsnefndir UN Women og UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur undirritað rammasamninga við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Samningarnir ná til kynningar- og fræðslumála á sviði alþjóðlegar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir sjóði Alþjóðabankans um enduruppbyggingu í Úkraínu

    Ísland hefur ákveðið að leggja Úkraínu til 700 milljónir króna í gegnum sjóði Alþjóðabankans og var greint frá þeirri ákvörðun á fundi um málefni Úkraínu sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington D.C. á miðvikudag.

    10. apr. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkisráðuneytið

    Ráðherra sótti ráðstefnu um öryggismál í Varsjá

    „Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er árás á okkar sameiginlegu gildi og alþjóðalög. Þótt norðurslóðir séu fjarri Úkraínu hefur stríðið þó áhrif á heiminn sem við búum í og þar af leiðandi Ísland.“ Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á ráðstefnu um öryggismál, þar sem hún sat í pallborði með ráðherrum frá Bretlandi, Hollandi og Litáen. Ráðstefnan fór fram í Varsjá í Póllandi og lauk í dag.

    29. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við friðaruppbyggingu og sáttamiðlun á vegum Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa gert nýjan fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðaruppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum, Department of Political and Peacebuilding Affairs, DPPA. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur og framlagið nemur 20 milljónum króna á ári í takt við langtímaáætlun DPPA, sem gildir næstu fjögur árin, 2023-2026.

    28. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Einarður stuðningur Norðurlandanna við Úkraínu

    Staða mála á alþjóðavettvangi var rædd á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum þar sem Ísland gegnir formennsku í samstarfi utanríkisráðherranna á þessu ári. Einarður stuðningur ríkjanna við Úkraínu og samskipti stórveldanna voru ofarlega á baugi ásamt formennsku Íslands í Evrópuráðinu og málefnum Balkanskaga og Miðausturlanda.

    22. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnu um þjóðaröryggi og alþjóðasamstarf

    Í krafti smæðarinnar getur Ísland lagt meira af mörkum en margir telja í alþjóðasamstarfi á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta er á meðal þess sem kom fram í opnunarerindi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á málstofu um alþjóðasamvinnu og áskoranir samtímans á ráðstefnu þjóðaröryggisráðs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í Hörpu í dag.

    05. mar. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Alþjóðamál, Sjávarútvegur

    Matvælaráðherra fundaði með sjávarútvegsráðherra Noregs

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra átti nýverið tvíhliða fund með Björnar Skjæran sjávarútvegsráðherra Noregs.

    28. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra var undirritaður í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Maria Ubach Font utanríkisráðherra Andorra skrifuðu undir samninginn.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Rússar verði dregnir til ábyrgðar

    Í dag, 24. febrúar, er ár liðið frá því að rússnesk stjórnvöld hófu innrásarstríð sitt í Úkraínu. Alþjóðasamfélagið hefur komið saman á þessum tímamótum til að sýna úkraínsku þjóðinni stuðning í baráttu sinni.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland sendir neyðarbirgðir til Tyrklands

    Fraktflugvél á vegum íslenskra stjórnvalda flaug í nótt með 100 tonn af neyðarbirgðum til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi þar sem milljónir manna eru húsnæðislausar. Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að veita 50 milljón króna neyðarframlagi til Sýrlands vegna ástandsins sem skapaðist þar í kjölfar skjálftanna fyrr í mánuðinum.

    20. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu efst á baugi á öryggisráðstefnunni í München

    Utanríkisráðherra tók þátt í árlegri ráðstefnu um öryggismál sem fór fram í München í Þýskalandi um helgina. Á ráðstefnunni koma saman ríflega eitt þúsund þátttakendur, þar á meðal fjölmargir þjóðarleiðtogar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar ásamt fræðafólki og öðrum skoðanamótandi aðilum á sviði öryggis- og varnarmála.

    18. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Standa með konum í Afganistan og Íran

    Frelsisskerðing kvenna og stúlkna í Afganistan var til umræðu á morgunverðarfundi kvenkyns utanríkisráðherra í dag. Fundurinn var haldinn í tengslum við Öryggisráðstefnuna í München sem fer fram um helgina og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækir.

    10. feb. 2023Alþjóðamál, Utanríkisráðuneytið

    Tómas H. Heiðar kjörinn forseti Alþjóðlega hafréttardómsins

    Tómas H. Heiðar var í dag kjörinn forseti Alþjóðlega hafréttardómsins í Hamborg til þriggja ára. Hann var tilnefndur sem frambjóðandi Norðurlandanna árið 2014 og hlaut í framhaldinu kjör sem dómari við dómstólinn til níu ára. Tómas var svo endurkjörinn fyrr á þessu ári til ársins 2032.

    26. jan. 2023Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og svaraði spurningum þingmanna. Málefni Úkraínu, formennska Íslands í Evrópuráðinu og staða mannréttinda og lýðræðis í heiminum voru meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu.

    24. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Þetta er í fjórða skipti sem árlegt samráð ríkjanna á sviði efnahagsmála er haldið en það var formlega sett á fót árið 2019. Samráðið hefur reynst mikilvægur vettvangur til að taka upp mál sem varða hagsmuni Íslands og vekja athygli á hindrunum í vegi fyrirtækja og fjárfesta ásamt því að vera góður vettvangur til að skiptast á upplýsingum, skilgreina sameiginlega hagsmuni og efla enn frekar tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála.

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra kynnti áherslur Íslands í Evrópuráðinu fyrir fastafulltrúum ÖSE

    Staða Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og mikilvægi þess að Evrópuráðið og ÖSE standi vörð um lýðræðislegar stofnanir, alþjóðalög og mannréttindi voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi fastafulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vín í dag.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland veitir viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar

    Í ljósi bágs mannúðarástands víða um heim ákvað Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra að veita 250 milljón króna viðbótarframlag til alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar um áramótin.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ráðherrafundi ÖSE í breyttu öryggislandslagi í Evrópu

    Utanríkisráðherra sótti ráðherrafund Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu, sem hófst á óformlegum kvöldverðarfundi ráðherra þann 29. nóvember en formleg dagskrá stendur yfir frá 30. nóvember til 1. desember. Efst á baugi voru innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og örðugleikar í starfi ÖSE vegna ósamvinnuþýðra stjórnvalda í Rússlandi og Belarús.

    12. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Sjávarútvegur, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Aukin tækifæri til útflutnings sjávarafurða með nýju samkomulagi við ESB

    Í gær lauk samningaviðræðum milli EFTA-ríkjanna innan EES (Íslands, Noregs og Liechtenstein) og Evrópusambandsins (ESB) um framlög til Uppbyggingarsjóðs EES fyrir tímabilið 1. maí 2021 til 30. apríl 2028. Samningaviðræður hafa staðið yfir frá júní 2022. Samhliða þeim hafa farið fram viðræður um endurnýjun samnings um tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir sjávarafurðir frá Íslandi inn á markað ESB.

    04. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Fulltrúar bandaríska sjóhersins og Atlantshafsbandalagsins funduðu með utanríkisráðherra

    Utanríkisráðherra fundaði í dag með Eugene Black aðmírál 6. flota bandaríska sjóhersins og Daniel W. Dwyer, yfirmanni herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Black er stjórnandi varnaræfingarinnar Norður-Víkings sem nú stendur yfir en Dwyer er þátttakandi í henni sem fulltrúi Atlantshafsbandalagsins.

    28. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Kænugarði

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti Kænugarð í Úkraníu í dag ásamt utanríkisráðherrum frá öðrum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum. Í heimsókninni áttu ráðherrarnir fundi með úkraínskum ráðamönnum, þar á meðal Volodomir Selenskí forseta, Denys Shmyhal forsætisráðherra, Olgu Stefanishynu aðstoðarforsætisráðherra og Dmytro Kuleba utanríkisráðherra. Á fundunum var ástandið í Úkraínu rætt og kölluðu stjórnvöld eftir áframhaldandi stuðningi.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Úkraína, Atvinnuvegir

    Engar einfaldar lausnir í boði vegna áskorana í landbúnaðarframleiðslu heimsins

    Á Matvælaþingi sem haldið var í Silfurbergi í Hörpu í gær flutti Olga Trofimtseva, fyrrum matvælaráðherra Úkraínu, erindi um framtíðarhorfur og áskoranir í matvælaframleiðslu í landbúnaði á heimsvísu.

    21. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra fundaði með formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, fundaði fyrir hönd Íslands með Hoesung Lee, formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm el Sheikh í Egyptalandi.

    17. nóv. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland og Síle leiða alþjóðlegt átak til verndar freðhvolfinu

    Á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna COP27 sem haldið er í Sharm El Sheikh í Egyptalandi, undirrituðu ráðherrar 13 ríkja yfirlýsingu til að ýta úr vör alþjóðlegu átaki sem ætlað er að vekja athygli á mikilvægi þess að vernda freðhvolfið (e. Cryosphere). Sex ríki til viðbótar hafa einnig staðfest þátttöku.

    15. nóv. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Jafnrétti, Alþjóðamál

    Bjarni með erindi um hindranir við lýðræðislega þátttöku kvenna á ráðstefnu OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, heldur erindi um hindranir við lýðræðislega þátttöku kvenna á ráðstefnu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sem fram fer í Lúxemborg 17. nóvember næstkomandi.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastýru UN Women

    Samstarf Íslands og UN Women, jafnréttisáherslur Íslands í formennsku í Evrópuráðinu og staða kvenna í Íran og Afganistan voru helstu umfjöllunarefnin á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Sima Bahous, framkvæmdastýru Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) í gær. Sú síðarnefnda er stödd hér á landi til þess að taka þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga en ráðherra ávarpaði þingið einnig í vikunni.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar JEF ræða öryggisáskoranir

    Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Edinborg dagana 9. – 10. nóvember. Ráðherrarnir ræddu öryggisástandið í Evrópu, stuðning ríkjanna við Úkraínu og hvernig þau geta í sameiningu mætt nýjum öryggisáskorunum til framtíðar.

    10. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ljósmyndasýning um barnungar mæður í þróunarríkjum

    Í dag var ljósmyndasýning Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) um barnungar mæður í þróunarríkjum opnuð í Smáralind. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra opnaði sýninguna og flutti ávarp.

    05. nóv. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Akureyri styrkt sem höfuðstaður norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að hækka árleg fjárframlög ráðuneytisins til CAFF og PAME um 50%. Um er að ræða skrifstofur Norðurskautsráðsins sem hafa aðsetur á Akureyri. Ákvörðun ráðherra mun styrkja Akureyri sem höfuðstað norðurslóða og stuðla að því að Ísland verði áfram leiðandi afl í Norðurskautsráðinu.

    03. nóv. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Þurfum að efla vernd lífríkis, hafs og loftslags

    Margt hefur áunnist á hálfri öld í umhverfisvernd í heiminum, en nauðsynlegt er að efla aðgerðir til muna til að mæta áskorunum, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í ávarpi á viðburði Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí í Kenía.

    28. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Íslenskir hjálparstarfsmenn til aðstoðar í Pakistan

    Tveir íslenskir hjálparstarfsmenn, Ólafur Loftsson og Orri Gunnarson, taka nú þátt í vatnshreinsiverkefni í Pakistan á vegum almannavarna Norðurlanda en kröftugar rigningar undanfarna mánuði hafa valdið þar einhverjum mestu flóðum í manna minnum. Hátt í tíu milljón manns hafa hrakist á flótta og hátt í tvö þúsund farist.

    25. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Kvenkyns utanríkisráðherrar funduðu um stöðu kvenna og mannréttinda í Íran

    Alvarleg mannréttindabrot í Íran, ekki síst gegn konum og börnum, voru í brennidepli á fjarfundi sextán kvenkyns utanríkisráðherra sem fram fór á dögunum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sótti fundinn sem haldinn var að frumkvæði Mélanie Joly, utanríkisráðherra Kanada. Í kjölfar fundarins gáfu ráðherrarnir út sameiginlega yfirlýsingu þar sem ofbeldi stjórnvalda í Íran er fordæmt, kallað er eftir sjálfstæðri rannsókn á vegum Sameinuðu þjóðanna og stuðningi heitið við konur í Íran.

    21. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna heimsækir Ísland

    David Beasley, framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), er staddur hér á landi og fundaði með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í hádeginu. Alvarleg staða mannúðarmála í heiminum og stuðningur Íslands við WFP voru á meðal umræðuefna fundarins en íslensk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að þau myndu tvöfalda kjarnaframlag sitt til stofnunarinnar á þessu ári eða sem nemur hundrað milljón krónum.

    19. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Flóttafólk, Utanríkismál

    Ísland eykur framlag sitt til mannúðarmála

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að tvöfalda kjarnaframlög sín til tveggja mannúðarstofnana, Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), vegna alvarlegs mannúðarástands víðsvegar um heim. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum þurfa rúmlega 300 milljónir manna á mannúðaraðstoð að halda á þessu ári.

    17. okt. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Alþjóðamál

    Sótti ársfundi AGS og Alþjóðabankans

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sótti ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington, DC, í síðustu viku. Á fundunum mætast fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar flestra ríkja heims ásamt leiðtogum alþjóðlegra fjármálastofnana.

    14. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Úkraína, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Alþjóðabankinn

    Ísland veitir sérstakt framlag til enduruppbyggingar í Úkraínu

    Íslensk stjórnvöld eru stofnaðilar í nýjum sjóði á vegum Alþjóðabankans sem er ætlað að styðja stjórnvöld í Úkraínu við að mæta efnahagslegum og samfélagslegum afleiðingum innrásar Rússlands og hefja enduruppbyggingu. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti um stofnaðild og framlag Íslands á sérstökum ráðherrafundi um stuðning við Úkraínu, sem haldinn var í tengslum við ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington á miðvikudag. Framlag Íslands í sjóðinn nemur einni milljón Bandaríkjadala eða um 143 milljónum króna.

    11. okt. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Alþjóðamál, Atvinnuvegir

    Lilja hitti þingkonu og sendiherra Georgíu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti fund með Eliso Bolkvadze þingkonu og formanni menningarnefndar georgíska þingsins og Nata Menabde sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi. Þær eru hér á landi í tengslum við heimsþing kvenleiðtoga sem nú fer fram í Hörpu þar sem um 500 kvenleiðtogar frá yfir 100 löndum taka þátt.

    06. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Þorri þjóðarinnar telur hagsæld hennar byggjast á alþjóðasamvinnu

    Rúm 77 prósent landsmanna telja hagsæld Íslands byggjast að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 80,5 prósent að hagsæld Íslands byggist að miklu leyti á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 78,4 prósent að Ísland treysti að miklu leyti á alþjóðalög og alþjóðastofnanir til að tryggja að landamæri og lögsaga séu virt. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu um utanríkismál og alþjóðasamstarf.

    03. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál lögð fyrir Alþingi

    Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál var til umræðu á Alþingi í dag en skýrslan er sú fyrsta sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir leggur fram til Alþingis í embætti utanríkisráðherra. Ráðherra hóf ræðu sína á Alþingi á því að fjalla um horfur í alþjóðamálum. Þó svo að skýrslan miðist við almanaksárið 2021 var ekki hjá því komist að minnast á innrás Rússlands í Úkraínu og þá viðsjárverðu tíma sem við horfum nú fram á í öryggismálum í Evrópu.

    30. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðuneytisstjóri afhjúpar minnisvarða um samskipti Íslands og Eistlands

    Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, afhjúpaði á miðvikudag minnisvarða um samskipti Íslands og Eistlands í eistneska utanríkisráðuneytinu. Minnisvarðinn var settur upp í tilefni af því að þrír áratugir eru liðnir frá því að Ísland varð fyrst allra ríkja til að viðurkenna endurreisn sjálfstæðis Eistlands.

    24. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra hvatti til samstöðu um alþjóðakerfið

    Sameiginleg ábyrgð þjóða heims á þeim gildum sem alþjóðakerfið hvílir á var leiðarstefið í ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Innrás Rússa í Úkraínu, umhverfis- og loftslagsmál og mannréttindi, meðal annars út frá máli ungrar konu sem lést í varðhaldi Íran, voru á meðal helstu umfjöllunarefna ræðunnar.

    23. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherravika allsherjarþingsins stendur sem hæst

    Viðbrögð alþjóðasamfélagsins við aðsteðjandi áskorunum, umhverfis- og loftslagsmál og innrás Rússlands í Úkraínu hafa verið helstu umræðuefnin á fundum og öðrum viðburðum sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tekið þátt í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Hún ávarpar þingið annað kvöld.

    20. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hófst með ráðherraviku

    allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er hafið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í störfum þingsins í dag og hitti utanríkisráðherra nokkurra ríkja.

    16. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland leggur til fé í sjóð til stuðnings Úkraínu

    Stuðningur við öryggi og varnir Úkraínu var í forgrunni fjarfundar varnarmálaráðherra 25 líkt þenkjandi ríkja sem fram fór í vikunni. Fulltrúar Atlantshafsbandalagsins, Evrópusambandsins og samhæfingarmiðstöðvar fyrir stuðning við Úkraínu sátu einnig fundinn.

    16. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Samskipti Íslands og Austurríkis í brennidepli utanríkisráðherrafundar

    Tvíhliða samskipti Íslands og Austurríkis, innrás Rússlands í Úkraínu og samstarf ríkjanna á alþjóðavettvangi voru á meðal umræðuefna á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Alexander Schallenberg, utanríkisráðherra Austurríkis, í Vín dag.

    14. sep. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Aukin framlög til mannúðarstofnana vegna hamfara í Sómalíu og Pakistan

    Utanríkisráðherra hefur ákveðið að bregðast við neyðarástandi í Sómalíu og Pakistan með viðbótarfjármagni til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Um er að ræða þrjátíu milljóna króna framlag til WFP vegna afleiðinga langvarandi þurrka í Sómalíu og þrjátíu milljóna króna framlag til UNHCR í kjölfar mannskæðra flóða í Pakistan.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband