Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 892
    Raða eftir:
    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Skólastarf frá áramótum samkvæmt nýrri reglugerð

    Takmarkanir á skólahaldi verða rýmkaðar frá gildandi reglum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar leiða meðal annars til þess að mögulegt verður að bjóða upp á staðnám í öllum framhaldsskólum, einnig skólum með áfangakerfi. Á háskólastigi verður heimilt að hafa allt að 50 manns saman í rými en blöndun milli hópa er óheimil. Reglugerðin gildir til 28. febrúar en með fyrirvara um breytingar ef þörf krefur.

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Skólastarf frá áramótum samkvæmt nýrri reglugerð

    Takmarkanir á skólahaldi verða rýmkaðar frá gildandi reglum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Breytingarnar leiða meðal annars til þess að mögulegt verður að bjóða upp á staðnám í öllum framhaldsskólum, einnig skólum með áfangakerfi. Á háskólastigi verður heimilt að hafa allt að 50 manns saman í rými en blöndun milli hópa er óheimil. Reglugerðin gildir til 28. febrúar en með fyrirvara um breytingar ef þörf krefur.

    21. des. 2020Covid-19, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Íþrótta- og æskulýðsstarfi komið í gegnum COVID-19

    Ráðist verður í aðgerðir til þess að styðja við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19

    21. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Fáum hlutfallslega sama magn bóluefna og önnur ríki í Evrópusamstarfi

    Þátttaka Íslands í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefnum í gegnum samninga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tryggir Íslandi hlutfallslega sama magn bóluefna og öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í samstarfinu. Framkvæmdastjórnin kveður á um hve mikið ríkin fá og er þar alfarið byggt á hlutfallslegri úthlutun miðað við höfðatölu hverrar þjóðar.

    20. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þegar búið að tryggja bóluefni fyrir 87% þjóðarinnar

    Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Samningar sem Ísland hefur þegar lokið við lyfjaframleiðendurna Pfizer og Astra Zeneca tryggja 400.000 bóluefnaskammta sem nægja fyrir 200.000 einstaklinga. Þriðji samningurinn við bóluefnaframleiðandann Janssen verður undirritaður 23. desember næstkomandi og tryggir Íslandi 235.000 skammta sem nægja fyrir 117.500 manns. Alls tryggja þessir þrír samningar bóluefni fyrir rúmlega 376.000 einstaklinga. Þann 31. desember næstkomandi verður undirritaður samningur við Moderna en umfang samningsins varðandi fjölda skammta liggur ekki fyrir að svo stöddu.…

    18. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    ESA samþykkir fjórar aðgerðir sem tengjast áhrifum Covid-19

    Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók í vikunni fjórar ákvarðanir sem varða ráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við áhrif Covid-19 en stofnunin lagði mat á hvort aðgerðirnar samrýmist ákvæðum EES-samningsins um ríkisaðstoð. Á mánudag samþykkti stofnunin viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki við að viðhalda lágmarksstarfsemi meðan áhrifa kórónuveirufaraldursins gætir.

    18. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19, Íslandsbanki

    Stefnt að sölu eignarhluta í Íslandsbanka á vormánuðum

    Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við ákvæði laga. Að liðnum umsagnarfresti tekur ráðherra endanlega ákvörðun um hvort sölumeðferð skuli hafin, en miðað er við að honum ljúki um 20. janúar nk.

    18. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19

    Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi tilkynningu frá sóttvarnalækni frá í gær vegna umræðu um dreifingu bóluefna gegn COVID-19: Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir taka fram að á þessari stundu liggja einungis fyrir áreiðanlegar upplýsingar um afhendingu fyrstu skammta bóluefnis frá Pfizer. Á upplýsingafundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bóluefna frá öðrum framleiðendum fyrr en á síðari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kauprétt á bóluefni fyrir um 60–70% þjóðarinnar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bóluefni kemur í hverri sendingu. Áætlanir framleiðenda munu skýrast þegar fram í sækir.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Forgangsröðun við bólusetningu þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast

    Sóttvarnalæknir hefur í samráði við heilbrigðisráðherra ákveðið hvaða hópar munu njóta forgangs við bólusetningu við COVID-19 þegar fyrstu skammtar bóluefnis berast til landsins. Þetta er í samræmi við reglugerð þar að lútandi sem heimilar sóttvarnalækni að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar telji hann það nauðsynlegt og skal hann þá tilkynna það ráðherra með rökstuðningi.

    17. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Viðspyrnustyrkir lögfestir og stuðningslán framlengd

    Tvö frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra um stuðning vegna efnahagslegra áhrifa Covid-19 voru samþykkt á Alþingi í gær. Samþykkt voru lög um nýtt styrkjaúrræði, viðspyrnustyrki og gildistími stuðningslána var framlengdur um fimm mánuði eða til 31. maí 2021.

    17. des. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Norræn ráðstefna um sjálfbæra ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs

    Staða ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs verður viðfangsefni norrænnar vefráðstefnu sem haldin verður 3. febrúar 2021.

    17. des. 2020Covid-19, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aukin jákvæðni og ferðavilji til Íslands

    Samkvæmt greiningu Evrópska ferðamálaráðsins (ETC) er Ísland í hópi þeirra landa í Evrópu sem hafa orðið fyrir hvað mestum samdrætti í komum ferðamanna á árinu. Malta, Portúgal og Serbía eru með álíka fækkun en þau lönd sem hafa orðið hvað verst úti eru Kýpur, Svartfjallaland, Rúmenía og Tyrkland með um eða yfir 77% fækkun. Þá hefur samdráttur í ferðaþjónustu einnig mikil áhrif á afkomu og störf í fjölmörgum öðrum atvinnugreinum s.s. landbúnaði, verslun, samgöngum og byggingariðnaði.

    17. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID 19: Yfirlit um stöðu samninga um bóluefni

    Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit með upplýsingum um stöðu samninga um bóluefni vegna COVID 19 sem Íslandi bjóðast á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Á yfirlitinu má einnig sjá hver staðan er á prófunum viðkomandi bóluefnis, hvenær megi vænta útgáfu markaðsleyfis og hve marga skammta bóluefnis Ísland muni fá eftir því sem upplýsingar um það liggja fyrir. Yfirlitið er myndrænt og verður uppfært reglulega eftir því sem málum vindur fram.

    16. des. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Samið um lágmarksflugsamgöngur til Vestmannaeyja fram á vor

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur samið við Icelandair um lágmarksflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja til 1. maí á næsta ári.

    16. des. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Almannatryggingar og lífeyrir

    Ráðstöfunartekjur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega aukast

    Fá einnig eingreiðslu í desember en full upphæð nemur 50.000 kr.

    16. des. 2020Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Matvælasjóður úthlutar í fyrsta sinn: 62 verkefni hljóta styrk

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti fyrstu úthlutun Matvælasjóðs í morgun en alls hljóta 62 verkefni styrk að fjárhæð allt að 480 milljónir að þessu sinni. Alls bárust 266 umsóknir um styrki upp á 2,7 ma.kr. Hægt er að fylgjast með upptöku frá úthlutuninni hér, en hún var í beinu streymi. Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs kynnti úthlutunina og vinnu stjórnar og fagráða sjóðsins.

    16. des. 2020Covid-19, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta úthlutun Matvælasjóðs: Beint streymi í dag kl 9:30

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi í dag, 16. desember 2020, kl. 09:30. Alls bárust 263 umsóknir um styrki. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn var stofnaður í apríl, en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt.

    15. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breytingar varðandi afhendingu bóluefnis frá Pfizer

    Áætlun Pfizer um afhendingu bóluefna hefur raskast og ljóst að færri skammtar koma til Íslands um áramót en samningar gerðu ráð fyrir. Miðað var við að Ísland fengi þá rúmlega 21.000 skammta en þeir verða um 10.000. Í janúar og febrúar er von á um 17.500 skömmtum til viðbótar. Samtals dugir þetta bóluefni fyrir tæplega 14.000 manns. Nánari upplýsingar um afhendingu bóluefnis Pfizer á fyrsta ársfjórðungi næsta árs ættu að liggja fyrir á næstu dögum.

    15. des. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Minni samdráttur í tekjum sveitarfélaga en í fyrri spám

    Starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga áætlar að afkoma A hluta sveitarsjóða verði neikvæð sem nemur 17,7 milljörðum króna í ár.

    14. des. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Covid-19, Almannatryggingar og lífeyrir

    Atvinnuleysisbætur hækka

    Heildarhækkun nemur 6,1% og tekur reglugerðin gildi 1. janúar 2021.

    12. des. 2020Covid-19, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Listagjöf til þjóðarinnar á aðventunni

    Íbúum um allt land býðst að njóta listagjafar helgina 19.-20. desember nk. Listafólk í fremstu röð mun þá sækja fólk heim og flytja stutta listgjörninga, tónlist, ljóðlist, sirkusatriði eða dans sem gefendur geta pantað fyrir ástvini í gegnum vefinn.

    10. des. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Skólastarf í forgangi

    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði í dag með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og fulltrúum Kennarasambands Íslands og skólastjórnenda um stöðu skólastarfs í ljósi þróunar COVID-19 faraldursins hér á landi.

    10. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Fundaði með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fundaði í dag með alþjóðlegum vettvangi fjármálaráðherra um loftslagsmál, sem ætlað er að hvetja til aðgerða í loftslagsmálum í krafti regluverks og ákvarðana á sviði ríkisfjármála og fjármálamarkaðar. Þetta er fjórði fundur vettvangsins, en hann var haldinn í tengslum við haustfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fram fer þessa dagana.

    08. des. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sveitarstjórnir fá að nýju svigrúm til að bregðast við aðstæðum í samfélaginu

    Ákveðið hefur verið að sveitarstjórnir fái að nýju aukið svigrúm til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og að auðvelda ákvörðunartöku þeirra vegna Covid-19.

    08. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um takmörkun á samkomum taka gildi 14. ágúst

    Samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi 14. ágúst verða reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um 2 metra nálægðarmörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja 2 metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.…

    06. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að sækja um lokunarstyrk á vef Skattsins

    Rekstraraðilar sem gert var að stöðva starfsemi sína vegna heimsfaraldurs kórónuveiru geta nú sótt um lokunarstyrk á vef Skattsins.

    06. des. 2020Covid-19, Fjarskipti, Samgöngur og fjarskipti, Byggðamál, Fjarskiptasjóður, Innviðaráðuneytið

    Stjórnvöld hraða ljósleiðaravæðingu í dreifbýli

    Ljósleiðaravæðingu í dreifbýli verður hraðað eftir úthlutun styrkja að upphæð 443 milljóna kr. í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt.

    06. des. 2020Dómsmálaráðuneytið, Landamæraeftirlit, Schengen-samstarfið, Almannaöryggi, Covid-19

    Nýjar reglur um ferðamenn taka gildi 15. júní 2020

    Frá og með 15. júní næstkomandi gefst ferðamönnum kostur á að fara í skimun við komuna til landsins í stað þess að fara í 14 daga sóttkví, eins og krafa hefur verið um hingað til. Nánar tiltekið verður ferðamönnum frá Schengen svæðinu frjálst að koma til landsins að uppfylltum skilyrðum um skráningu og skimun fyrir Covid-19 veirunni.

    06. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum vegna COVID-19

    Þann 15. júní næstkomandi tekur gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem varðar sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Samhliða taka gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um ábendingar fyrir gjaldfrjálsri sýnatöku hjá þeim sýna einkenni COVID-19 auk þess sem breytingar á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir taka gildi.

    05. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ferðatakmarkanir rýmkaðar í skrefum

    Nýjar reglur um sóttkví taka gildi á föstudaginn og gilda til 15. júní. Samkvæmt þeim verður þeim sem koma til landsins áfram skylt að fara í sóttkví í 14 daga, en heimild til að beita vinnusóttkví verður rýmkuð og skýrð nánar. Kjarninn í breytingunni felst í því að skilyrði fyrir vinnusóttkví verða ekki lengur bundin við kerfislega eða efnahagslega mikilvæga starfsemi. Fyrst og fremst verður horft til þess að viðkomandi umgangist ekki aðra meðan á sóttkví stendur eins og nánar verður skýrt í nýjum reglum heilbrigðisráðherra. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní verði ferðatakmarkanir rýmkaðar til muna með innleiðingu reglna um sýnatöku sem geta komið í stað sóttkvíar við komu fólks til landsins.

    05. des. 2020Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Covid-19, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sýnataka á Keflavíkurflugvelli

    Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að frá og með 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví.

    05. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Búið að semja við alla viðskiptabankana um veitingu viðbótarlána

    Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól Seðlabanka Íslands að annast framkvæmd á ábyrgðum ríkissjóðs (tengill á samning) og hefur bankinn undirritað samninga við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann.

    05. des. 2020Dómsmálaráðuneytið, Covid-19, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Áhrif COVID-19 á jafnrétti kynjanna á Norðurlöndunum

    Rætt var um viðbrögð Norðurlandanna í tengslum við COVID – 19 og jafnrétti kynjanna á fundi norrænna ráðherra jafnréttismála sem haldinn var í morgun.

    03. des. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Atvinnuvegir

    Frumvarp um frestun gjalda afgreitt úr ríkisstjórn

    Fyrirtækjum verður veittur mánaðarfrestur á helmingi tryggingagjalds og staðgreiðslu opinberra gjalda sem voru á gjalddaga í mars, skv. frumvarpi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í kvöld.

    03. des. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    LÍN kemur til móts við námsmenn vegna kórónaveirunnar COVID-19

    Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt heimild fyrir sjóðinn til að taka til greina annars konar staðfestingu skóla á ástundun nemenda en vottorðum um loknar einingar.

    03. des. 2020Innviðaráðuneytið, Sveitarstjórnir og byggðamál, Covid-19

    Frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand

    Lagt hefur verið fram frumvarp til að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar.

    03. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Lyfjafræðingar bætast í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar

    Um 180 heilbrigðisstarfsmenn voru búnir að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar um hádegisbil í dag. Lyfjafræðingafélag Íslands hefur boðið fram aðstoð sína um að biðla til sinna félagsmanna um að skrá sig í bakvarðasveitina og eru lyfjafræðingar þegar farnir að skrá sig í grunninn.

    03. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19

    Umfangsmikilli varnaræfingu aflýst

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarmálaráðherra, hefur tekið ákvörðun um að aflýsa Norðurvíkingi, tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna sem átti að fara fram á Íslandi 20.-26. apríl nk. Þetta er gert í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar.

    03. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Covid-19

    Íslensk stjórnvöld mótmæla aðgerðum bandarískra stjórnvalda

    Íslensk stjórnvöld hafa í morgun komið á framfæri hörðum mótmælum við aðgerðum sem bandarísk stjórnvöld kynntu í gærkvöldi. Þær fela í sér komubann ferðamanna sem dvalið hafa í Schengen-ríkjum og munu geta haft alvarleg áhrif á Íslandi, einkum fyrir ferðaþjónustu.

    27. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Forgangsröðun vegna bólusetningar

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19. Tilgangur reglugerðarinnar er að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og með eins miklum fyrirsjáanleika og mögulegt er.

    27. nóv. 2020Menningarmál, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Náttúruminjasafn Íslands fær aðstöðu á Seltjarnarnesi

    Ríkissjóður hefur gengið frá samningi við Seltjarnarnesbæ um yfirtöku á húsnæðinu við Safnatröð og er verkefnið hluti af fjárfestingarátaki til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

    27. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Fjallað um Covid-19 og Norðurlönd á opnum fjarfundi samstarfsráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra, tók í dag þátt í pallborðsumræðum á norrænum fjarfundi um Covid-19 og Norðurlönd.

    27. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Flugsamgöngur til Boston tryggðar út árið

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning við Icelandair um að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út árið.

    25. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd viðbótar- og stuðningslána

    Eftirlitsnefnd með framkvæmd viðbótar- og stuðningslána sem skipuð var af fjármála- og efnahagsráðherra í vor hefur nú skilaði sinni fyrstu skýrslu. Eftirlitsnefndinni er ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinga til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og skal hún skila fjármála- og efnahagsráðherra skýrslu um framkvæmdina á sex mánaða fresti.

    23. nóv. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Samstarfsráðherrar samþykktu aðgerðaáætlun um framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar

    Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu í dag fjárhagsáætlun fyrir 2021 og aðgerðaáætlun fyrir 2021-2024 um framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar sem samþykkt var í fyrra.

    23. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Nýsköpunardagur hins opinbera: Áhrif Covid-19 á þjónustu – hvað má læra til framtíðar?

    Hvað getum við lært af Covid-19 þegar kemur að því að veita opinbera þjónustu og hvaða tækifæri hefur heimsfaraldurinn skapað til þess að bæta þjónustuna? Þetta er meginumræðuefni á Nýsköpunardegi hins opinbera sem haldinn verður 21. janúar 2021 en yfirskift dagsins er Áhrif Covid-19 á opinbera þjónustu – lærdómar til framtíðar.

    20. nóv. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Viðspyrna fyrir Ísland: Viðspyrnustyrkir og stuðningur við atvinnuleitendur, lífeyrisþega, barnafjölskyldur og félagslega viðkvæma hópa

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða sérstakt viðbótarálag á grunnbætur atvinnuleysistrygginga á næsta ári sem koma á til móts við þann stóra hóp sem á næstu mánuðum fellur út af tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Álagið hljóðar uppá 2,5% og kemur til viðbótar þeirri 3,6%​hækkun sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Með þessu nemur heildarhækkun grunnbóta 6,2% og þær verða því 307.403 kr. ​

    20. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum lagt fyrir Alþingi á næstunni

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að skýra ákvæði laga um opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af COVID-19 heimsfaraldrinum hefur lokið störfum og skilað ráðherra drögum að frumvarpi til breytinga á lögum um sóttvarnir. Heilbrigðisráðherra kynnti frumvarpið fyrir ríkisstjórn í liðinni viku og leggur það fyrir Alþingi á næstunni.

    20. nóv. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Aukið svigrúm til kennslu í tónlistarskólum

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 8.–10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.

    20. nóv. 2020Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kría í Samráðsgátt stjórnvalda

    Reglugerð um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð er nú í Samráðsgátt stjórnvalda, en hlutverk Kríu er að fjárfesta í sérhæfðum fjárfestingarsjóðum, svokölluðum vísisjóðum (e. venture capital funds) sem sjálfir fjárfesta í nýskapandi sprotafyrirtækjum. Tilgangur með stofnun Kríu er að efla fjárfestingarumhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi og er liður í stefnumótun stjórnvalda í málefnum nýsköpunar og í samræmi við Nýsköpunarstefnu.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband