11. apr. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-412/2012. Úrskurður frá 29. mars 2012
<p>Kærð var afgreiðsla Kópavogsbæjar á beiðni um aðgang að gögnum er tengdust landi sem undirrituð hafði verið eignarnámssátt um þann 30. janúar 2007 milli aðila. Við afgreiðslu upplýsingabeiðna var ekki fylgt þeirri reglu 11. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 að stjórnvaldi beri að taka ákvörðun um, hvort það verði við beiðni um aðgang að gögnum, svo fljótt sem verða megi. Ennfremur ekki þeirri reglu að skýra skuli þeim, sem fer fram á aðgang að gögnum frá ástæðum tafa og hvenær ákvörðunar sé að vænta, hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar. Gögn ekki afhent úrskurðarnefnd, sbr. 2. mgr. 16. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. gr. laga nr. 83/2000, jafn skjótt og ætla mátti að unnt hefði verið. Hlutverk úrskurðarnefndar. Fyrirliggjandi gögn. Vinnuskjöl.…