01. apr. 2022Utanríkisráðuneytið, Brexit, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í London, Dómsmálaráðuneytið
Vinnudvöl ungs fólks í Bretlandi nú heimil
Ungir Íslendingar geta nú sótt um dvalarleyfi vegna vinnudvalar ungs fólks í Bretlandi (Youth Mobility Scheme Visa). Ísland er fyrsta og eina ríkið á öllu EES-svæðinu sem hefur gert samkomulag þess efnis við Bretland. Að sama skapi geta breskir ríkisborgarar nú sótt um slík dvalarleyfi á Íslandi.