27. jan. 2022Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Lög og réttur
Ríkislögreglustjóri leiðir starfshóp innanríkisráðherra um kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi
Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra hefur falið Sigríði Björk Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra að leiða starfshóp um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum og kynbundnu ofbeldi og áreiti. Skal hópurinn styðja við uppbyggingu á samstarfi lögreglu og samstarfsaðila gegn ofbeldi og afleiðingum þess, þar á meðal í formlegri þjónustu við þolendur kynferðisbrota.