24. feb. 2021Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
969/2021. Úrskurður frá 5. febrúar 2021.
A, blaðamaður, kærði synjun Borgarskjalasafns á beiðni hans um aðgang að upplýsingum um málefni vistheimilisins Arnarholts sem byggði á því að um viðkvæmt starfsmannamál væri að ræða sem ekki væri heimilt að veita aðgang að, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 77/2014. Úrskurðarnefndin taldi Borgarskjalasafn ekki hafa lagt sjálfstætt mat á umbeðin gögn með hliðsjón af sjónarmiðum 1. mgr. 26. gr. laga nr. 77/2014, sbr. 9. gr. upplýsingalaga, sem rakin eru hér að framan. Þá tók nefndin fram að ekki yrði séð að Borgarskjalasafn hefði leitað samþykkis þess aðila sem um væri fjallað í gögnunum.…