23. ágú. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Sendiráð Íslands í Berlín, Utanríkismál
Utanríksráðherrar Íslands og Þýskalands funduðu í Berlín
Samskipti Íslands og Þýskalands, innrás Rússlands í Úkraínu og orku- og loftslagsmál voru helstu umfjöllunarefnin á fundi þeirra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Önnulenu Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, í Berlín í dag. Ríkin tvö fagna sjötíu ára stjórnmálasambandsafmæli um þessar mundir.