03. jan. 2022Félags- og fjölskyldumál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Styrkir tilraunaverkefni sem ætlað er að auka virkni ungs fólks
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Vinnumálastofnun 25 milljón króna styrk vegna tilraunaverkefnisins Vegvísir sem ætlað er að bæta þjónustu við ungt fólk í viðkvæmri stöðu, þ.e. einstaklinga á aldrinum 16-29 ára sem eru ekki í námi, þjálfun eða starfi (NEET).