12. júl. 2021Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið
María Rún kjörin til setu í GREVIO
María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, hefur fyrst Íslendinga verið kjörin til setu í GREVIO, eftirlitsnefnd Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnum um aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Nefndin er skipuð 15 sjálfstæðum og óvilhöllum sérfræðingum frá 34 aðildarríkjum samningsins.