17. nóv. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir
Ársfundur NEAFC 2021
Ársfundur Norðuraustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 40. í röðinni, var haldinn í dagana 9.-12. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Aðilar að NEAFC eru Bretar, Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, Landhelgisgæslunnar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.