Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Covid-19
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 892
    Raða eftir:
    16. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Tekjufallsstyrkir samþykktir í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpinu er ætlað að aðstoða einyrkja og litla rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi og er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna faraldursins og leggja grunn fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfar hans.

    16. okt. 2020Covid-19, Hönnun, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íslenskt gler, snjallhringur og stafrænt strokhljóðfæri meðal styrkþega úr Hönnunarsjóði

    Hönnunarsjóður úthlutaði í gær , 15. október, 18 styrkjum til ólíkra verkefna á vegum hönnunar og arkitektúrs. Að þessu sinni voru 17 milljónum úthlutað en alls bárust 122 umsóknir um 230 milljónir.

    15. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Fyrsti fundur samráðsteymis ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum

    Samráðsteymi ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum fundaði í fyrsta skipti þriðjudaginn 13. október.

    15. okt. 2020Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    SEGÐU FRÁ - Sameiginleg rafræn gátt vegna ofbeldis

    Vef 112 breytt til að verða allsherjar upplýsingatorg um allt sem viðkemur ofbeldi, ásamt því að opnað verður á beint samtal við neyðarverði í netspjalli 112.

    14. okt. 2020Húsnæðis- og mannvirkjamál, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Frekari frestun aðalfunda húsfélaga samkvæmt fjöleignarhúsalögum, nr. 26/1994, vegna Covid-19

    Félagsmálaráðuneytið leggur til að aðalfundum húsfélaga verði frestað frekar um allt að sex mánuði vegna faraldursins.

    14. okt. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið

    Aðgerðarteymi gegn ofbeldi skilar annarri áfangaskýrslunni

    Inniheldur fjórar megintillögur sem eru ítarlega útfærðar og kostnaðarmetnar.

    13. okt. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðherra fellur frá gjaldskrárhækkun MAST

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að falla frá öllum gjaldskrárhækkunum Matvælastofnunnar á árinu 2020 vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins á íslenska matvælaframleiðendur.

    12. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Samgönguáætlun, Samgöngur og fjarskipti

    Sigurður Ingi ávarpaði alþjóðlegan fund samgönguráðherra um áhrif Covid-19 á samgöngur

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti í dag ávarp á fundi á vegum alþjóðasamtaka samgönguráðherra (ITF).

    12. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Vottorð vegna fyrri sýkingar af völdum COVID-19 tekin gild á landamærum

    Frá og með deginum í dag, 10. desember 2020 verður ekki bara tekið á móti vottorði um staðfesta COVID-19 sýkingu á Íslandi því einnig verða sambærileg erlend vottorð frá löndum innan EES/EFTA-svæðis tekin gild á landamærum Íslands. Tengifarþegar sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa hvorki að fara í sóttkví eða í sýnatöku.

    12. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19

    COVID-19: Rök að baki sóttvarnaráðstöfunum – sund og líkamsrækt

    Smit tengd líkamsrækt og líkamsræktarstöðvum og afleidd smit vegna þeirra eru margalt fleiri en smit sem rekja má til sundlauga. Þetta sýna niðurstöður úr rakningargrunni sóttvarnalæknis. Um 35 ríki Evrópusambandsins flokka líkamsrækt sem hááættustaði og gripu til lokana líkamsræktarstöðva snemma í faraldrinum.

    11. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Valkvæðar aðgerðir heimilaðar á ný

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um að fella úr gildi auglýsingu um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Ákvörðunin tekur gildi á morgun. Auglýsing heilbrigðisráðherra þessa efnis ásamt fyrirmælum landlæknis hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum.

    09. okt. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Norrænt samstarf mikilvægara en nokkru sinni fyrr að mati samstarfsráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson sat í dag fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda um viðbrögð við heimsfaraldri kórónuveiru og samstarf Norðurlandanna á því sviði.

    09. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál

    Streymi frá málþingi: Kófið og menntakerfið

    Opið málþing um nám og kennslu á tímum samkomubanns vegna COVID-19 fer fram í dag.

    07. okt. 2020Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimkomusmitgát vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnarlæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í fimm daga eða þar til niðurstöður úr síðari sýnatöku liggja fyrir. Er þetta gert til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamærum geti leitt til stærri hópsmita á Íslandi.

    06. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Auka þarf alþjóðlega samvinnu til að stuðla að efnahagsbata í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat í dag fjarfund ráðherra á vegum OECD þar sem fjallað var um efnahagsáhrif heimsfaraldurs kórónuveiru. Fundinn sátu ráðherrar ríkja OECD, Evrópusambandsins og Kosta-Ríka, auk fulltrúa alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga (TUAC) og atvinnurekenda (BIAC) í OECD-löndunum en þar var sérstök áhersla lögð á að ræða hvernig auka megi alþjóðlega samvinnu hjá hinu opinbera og í einkageiranum til að stuðla að efnahagsbata í kjölfar faraldursins.

    03. okt. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Covid-19

    Kennsla heldur áfram

    Yfirlýst neyðarstig almannavarna hefur bein og óbein áhrif á skólastarf í landinu. Skólastjórnendur og kennarar hafa sýnt mikla yfirvegun við þessar óvenjulegu aðstæður og horft til fyrirmæla í nýsamþykktri landsáætlun sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra

    03. okt. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins eflir fjarþjónustu

    Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins efla fjarþjónustu á öllum heilsugæslustöðvum sínum. Vakin er athygli á tilkynningu stofnunarinnar um þetta. Eins og þar kemur fram verður símaþjónusta aukin til muna og símatímum lækna fjölgað. Einnig er áhersla lögð á aukna þjónustu í gegnum vefinn heilsuvera.is m.a. með skilaboðoum á mínum síðum og netspjall heilsuveru verður opið alla daga frá kl. 08.00 – 22.00.

    03. okt. 2020Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Covid-19

    Viðspyrna fyrir íslenskt efnahagslíf

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að beita sér fyrir markvissum aðgerðum til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19.

    30. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Jöfnunarsjóður, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Jöfnunarsjóður bætir við 200 milljónum vegna þjónustu við fatlað fólk

    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun úthluta 200 milljónum krónum til viðbótar í ár vegna þjónustu við fatlað fólk.

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Menntanet sett á fót á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til að komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur.

    30. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Heimurinn eftir COVID-19

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi áskoranir heimsins í kjölfar kórónuveirufaraldursins, á rafrænu alþjóðlegu málþingi sem framtíðarnefnd Alþingis stóð fyrir í samstarfi við forsætisráðuneytið í morgun.

    29. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Átta nýjar stöðugleikaaðgerðir

    Í kjölfar samtala við aðila vinnumarkaðarins á almennum vinnumarkaði síðustu daga kynnir ríkisstjórnin átta aðgerða pakka sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika í tengslum við Lífskjarasamninginn.

    27. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19

    Alþjóðlegt, rafrænt málþing um heiminn eftir COVID-19

    Forsætisráðherra og framtíðarnefnd boða til málþings um breytingar, áskoranir og tækifæri á ýmsum sviðum samfélagsins eftir COVID-19. Þekktir, alþjóðlegir fyrirlesarar taka þátt í málþinginu sem fer fram með rafrænum hætti miðvikudaginn 30. september.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Unnið að gagnkvæmri viðurkenningu vottorða milli Norðurlandaþjóða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að senda heilbrigðisráðherrum hinna Norðurlandaþjóðanna erindi með ósk um samstarf sem miði að því að taka upp gagnkvæma viðurkenningu vottorða vegna COVID-19. Markmiðið er að hægt verði að undanskilja einstaklinga frá kröfum á landamærum framvísi þeir viðurkenndu vottorði, t.d. um að þeir hafi sýkst af veirunni og séu ekki smitberar eða hafi myndað virkt mótefni gegn henni. Málið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Sóttvarnalögin endurskoðuð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að semja drög að frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum og er hópurinn tekinn til starfa. Tekin verða til skoðunar og skýrð nánar ákvæði núgildandi laga um opinberar sóttvarnaráðstafanir og valdheimildir stjórnvalda þar að lútandi. Við endurskoðunina verður horft til reynslu síðustu mánaða af COVID-19. Dr. Páll Hreinsson hefur að beiðni forsætisráðherra unnið álitsgerð um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarna samkvæmt sóttvarnalögum og verður hún meðal annars lögð til grundvallar við vinnu starfshópsins.

    25. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Sætaskylda innleidd á öllum vínveitingastöðum

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem felur í sér að öllum vínveitingastöðum verði skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum. Reglugerð þessa efnis tekur gildi mánudaginn 28. september. Frá sama tíma er aflétt tímabundinni lokun kráa og skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu en með fyrrnefndu skilyrði um sætaskyldu. Í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis verða aðrar samkomutakmarknir framlengdar óbreyttar í þrjár vikur til og með 18. október næstkomandi.

    24. sep. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Áhersla á stöðu og þjónustu við innflytjendur í fimmtu skýrslu uppbyggingarteymis félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19

    Skýrslan varpar ljósi á þá þjónustu sem stjórnvöld, stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök eru að veita eða eru með í undirbúningi fyrir hóp innflytjenda.

    23. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Covid-19, Ferðaþjónusta, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Samningur undirritaður við Skútustaðahrepp um stuðning vegna hruns ferðaþjónustu

    Byggðastofnun og Skútustaðahreppur undirrituðu í dag samning um útfærslu á fjárveitingu til sveitarfélagsins vegna hruns í ferðaþjónustu.

    23. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Vestnorrænt samstarf aldrei mikilvægara

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, flutti í dag ávarp á hádegisfundi um mikilvægi vestnorrænnar samvinnu.

    23. sep. 2020Nýsköpun, Covid-19, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    26 nýsköpunarfyrirtæki fá lán frá Stuðnings - Kríu

    ​Mikill áhugi var á mótframlagslánum Stuðnings-Kríu en umsóknarfrestur um veitingu lána rann út um nýliðna helgi. Alls sóttu 31 fyrirtæki um lán og voru 26 umsóknir samþykktar. Alls verður 755 milljónum króna varið í fjárfestingar frá Stuðnings-Kríu í formi mótframlagslána.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    COVID-19: Heilbrigðisráðherra veitir 200 milljónir króna í aukna endurhæfingu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja um aukna endurhæfingu, meðal annars fyrir fólk sem glímir við eftirköst í kjölfar veikinda af völdum COVID-19 en einnig fyrir þá sem eru á biðlista eftir endurhæfingu af öðrum ástæðum. Allt að 200 milljónum króna verður varið til verkefnisins.

    22. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Utanríkisráðuneytið

    COVID-19: Ísland og Noregur fjármagna kaup á tveimur milljónum skammta af bóluefni

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX). Noregur og Ísland leggja í sameiningu fé til verkefnisins sem gerir kleift að fjármagna kaup á allt að tveimur milljónum bóluefnaskammta fyrir lágtekjuþjóðir.

    21. sep. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19

    Óskað eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum á skrá í bakvarðasveit velferðarþjónustunnar (in English and Polish)

    Vegna aðstæðna i samfélaginu vill félagsmálaráðuneytið árétta að bakvarðasveit velferðarþjónustu er ennþá virk

    21. sep. 2020Innviðaráðuneytið, Covid-19, Flug og flugvellir, Samgöngur og fjarskipti

    Flugsamgöngur til Boston tryggðar út nóvember

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning við Icelandair um að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út nóvember.

    21. sep. 2020Líf og heilsa, Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    COVID-19: Lokun kráa og skemmtistaða framlengd til 27. september

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja tímabundna lokun skemmistaða og kráa til og með sunnudagsins 27. september næstkomandi. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Sem fyrr tekur lokunin til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Seltjarnarnesi.

    21. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bakvarðasveitin: Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

    Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa. Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins í vor þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. Þetta fyrirkomulag gaf góða raun og gerði heilbrigðisstofnunum kleift að manna í stöður með hraði þegar á þurfti að halda.…

    20. sep. 2020Mennta- og barnamálaráðuneytið, Covid-19, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Uppfærðar leiðbeiningar fyrir framhalds- og háskóla: Grímunotkun í staðnámi

    Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar til framhalds- og háskóla, í ljósi nýrra tilmæla sóttvarnarlæknis um grímunotkun í staðnámi í framhalds- og háskólum á höfuðborgarsvæðinu.

    18. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu lokað tímabundið

    Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu, tímabundið í fjóra daga frá 18. – 21. september. Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi. Meðfylgjandi er minnisblað sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra um þessar ráðstafanir.

    17. sep. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Covid-19, Vinnumál

    Reglugerðarbreyting auðveldar atvinnurekendum að ráða til sín starfsfólk

    Heimilt verður að ráða atvinnuleitendur með styrk frá Vinnumálastofnun sem nemur 100% grunnatvinnuleysisbótum þegar atvinnuleitandi hefur verið á atvinnuleysisskrá í að minnsta kosti sex mánuði.

    17. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vegna frétta um meinta ágalla á ákvörðun ESA varðandi ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair Group

    Í tilefni af fréttaflutningi í dag um að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hafi móttekið ábendingar um meinta ágalla á ákvörðun stofnunarinnar varðandi ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair Group ehf. áréttar fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi:

    17. sep. 2020Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Covid-19, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra, kvenleiðtogar og aðgerðasinnar ræða hlut kvenna í forystu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í fjarfundi kvenleiðtoga, aðgerðasinna og fulltrúa ungmennasamtaka um mikilvægi fjölbreyttrar forystu í stjórnmálum og atvinnulífi í dag.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Auknar endurbætur og viðhald fasteigna í samræmi við sérstakt fjárfestingarátak

    Framkvæmdaverkefni Ríkiseigna sem lúta að endurbótum og viðhaldi fasteigna ríkisins aukast um 40%, eða 1,6 milljarða króna, frá því sem áætlað var, í samræmi við sérstakt fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Umsóknarferli stuðningslána endurbætt

    Breytingar hafa verið gerðar á umsóknarkerfi stuðningslána á Ísland.is til að tryggja að ferlið verði enn aðgengilegra og auðskiljanlegra. Opnað var fyrir umsóknir um lánin í júlí sl. og hefur nú verið sótt um 815 stuðningslán að andvirði tæplega 7 milljarða íslenskra króna.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning.

    15. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning.

    15. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Þættir sem sóttvarnalæknir leggur til grundvallar tillögum til ráðherra vegna COVID-19

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag minnisblað sóttvarnalæknis þar sem fjallað er um þá þætti sem sóttvarnalæknir leggur til grundvallar að tillögum til heilbrigðisráðherra um takmarkanir/aðgerðir vegna COVID-19. Minnisblaðið er meðfylgjandi.

    15. sep. 2020Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla um efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna

    september 2020 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla um efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna Gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið, segir í skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Í skýrslunni kemur einnig fram að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning

    14. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Bein útsending frá 70. fundi Evrópuskrifstofu WHO

    Forgangsröðun á sviði heilbrigðismála og staðan af völdum COVID-19 verða mál í brennidepli á 70. ársfundi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem haldinn er í dag og á morgun. Þátttakendur á fundinum koma frá 53 aðildarríkjum Evrópuskrifstofunnar. Fundurinn fer fram á vefnum og er hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á vef WHO. Þetta er fyrsti ársfundurinn undir forystu Dr. Hans Kluge sem kjörinn var framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofunnar á liðnu ári.

    12. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Tilslakanir vegna íþróttastarfs

    Heimildir til að stunda íþróttastarf verða rýmri með nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi 10. desember. Sérstaklega er kveðið á um íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) varðandi heimildir til æfinga meðal afreksfólks og í efstu deildum sambandsins eins og nánar greinir hér.

    11. sep. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hægt að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja innan skamms

    Hægt verður að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja hjá Skattinum um næstu mánaðamót, en Alþingi samþykkti í liðinni viku lög um aðgerðirnar sem hafa að markmiði að styðja fyrirtæki vegna áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband