Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Loftslagsmál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 636
    Raða eftir:
    11. jún. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Landsáætlun Íslands um loftslagsskuldbindingar skilað til Eftirlitsstofnunar EFTA

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur skilað til Eftirlitsstofnunar EFTA landsáætlun Íslands (National Plan) um hvernig Ísland hyggst uppfylla loftslagsskuldbindingar sínar. Skil áætlunarinnar eru í samræmi við sameiginlegar loftslagsskuldbindingar Íslands, Noregs og ríkja Evrópusambandsins.

    31. maí 2020Rit og skýrslur, Landbúnaður, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Loftlagsmál í nautgriparækt

    maí 2020 / Atvinnuvegaráðuneytið Loftlagsmál í nautgriparækt Loftlagsmál í nautgriparækt

    27. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Orka, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkir til orkuskipta í gistiskálum ferða- og útivistarfélaga

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir styrki til orkuskipta í gistiskálum. Með orkuskiptum er átt við að jarðefnaeldsneyti (olíu og/eða gasi) verði skipt út fyrir vistvænan orkugjafa í rekstri viðkomandi skála. Umsóknarfrestur er til og með 17. júní næstkomandi.

    15. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka, Siglingar, Samgöngur og fjarskipti

    Stórt skref stigið í rafvæðingu hafna í Reykjavík

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Veitur, Samskip og Eimskip undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að taka í notkun háspennibúnað fyrir flutningaskip við Sundabakka og Vogabakka í Reykjavík. Búnaðurinn mun draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og staðbundinni loftmengun frá starfsemi hafnarsvæða í Reykjavík.

    15. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Orka, Siglingar, Umhverfi og náttúruvernd

    Úthlutun styrkja til orkuskipta í höfnun

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað styrkjum til rafvæðingar hafna vítt og breitt um landið. Verkefnið er hluti af fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 heimsfaraldursins.

    13. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Molta nýtt í þágu loftslagsmála

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Vistorka á Akureyri undirrituðu í dag samning um tilrauna- og átaksverkefni um nýtingu á moltu til skógræktar, landgræðslu og landbúnaðar á Norðurlandi. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið greiðir alls 15 m.kr. til verkefnanna, en þau eru hluti af loftslagsaðgerðum sem falla undir átaksverkefni ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 farsóttarinnar.

    06. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið eflt með nýju skipuriti

    Nýtt skipurit umhverfis- og auðlindaráðuneytisins hefur tekið gildi, Markmið breytinganna er að efla starfsemi ráðuneytisins til að takast á við viðamikið hlutverk þess á sviði alþjóðamála, einkum loftslagsmála.

    05. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Covid-19, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Aðgerðum í loftslagsmálum flýtt

    Alls verður 550 milljónum króna ráðstafað aukalega í ár til loftslagsmála í sérstöku tímabundnu fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar sem Alþingi samþykkti í lok mars til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Búið er að útfæra nánar skiptingu fjármagnsins milli verkefna sem tengjast orkuskiptum og kolefnisbindingu í þágu loftslagsmála auk þess sem Loftslagssjóður verður styrktur.

    03. maí 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Landbúnaður, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Stutt við loftslagsvænni landbúnað

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa skrifað undir samning um loftslagsvænni landbúnað.

    28. apr. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Starfshópur skipaður til að tryggja lagaumhverfi niðurdælingar CO2 með CarbFix-aðferð

    Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna drög að frumvarpi sem er ætlað að tryggja að niðurdæling koldíoxíðs (CO2) með CarbFix-aðferð Orkuveitu Reykjavíkur falli að Evrópureglum um kolefnisföngun og geymslu.

    15. apr. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Losun Íslands hélst stöðug milli 2017 og 2018

    Umhverfisstofnun hefur skilað landsskýrslu (National Inventory Report) um losun gróðurhúsalofttegunda til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) þar sem er að finna upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi frá 1990 til 2018. Losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands breyttist óverulega milli áranna 2017 og 2018, eða minnkaði um 0,1%.

    26. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Byggðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19

    Tveir milljarðar aukalega í loftslagsmál, snjóflóðavarnir, fráveitumál og uppbyggingu þjóðgarða

    Gert er ráð fyrir að á árinu 2020 verði um 2 milljörðum króna af 15 milljarða fjárfestingarátaki varið til verkefna sem eru á ábyrgðarsviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

    11. mar. 2020Innviðaráðuneytið, Evrópusamvinna, Loftslagsmál, Samgöngur og fjarskipti

    Opið samráð um evrópska tilskipun um losun koldíoxíðs frá nýjum bifreiðum

    Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um endurskoðun á reglum um losun koldíoxíðs, CO2, frá nýjum bifreiðum, þ.m.t. sendibifreiðum.

    07. mar. 2020Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegir

    Stefnt að verðmætari afurðum með minni losun frá sjávarútvegi

    Stefnt er að því að draga úr losun frá sjávarútvegi og auka eftirspurn eftir heilnæmum íslenskum fiski með samstarfi stjórnvalda og atvinnugreinarinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu um hvata til að draga úr kolefnisspori íslensks sjávarútvegs sem undirrituð var við ráðherrabústaðinn í dag.

    06. mar. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagssjóður úthlutar 165 milljónum króna til 32 verkefna

    Loftslagssjóður hefur úthlutað 165 milljónum króna til 32 verkefna í sinni fyrstu úthlutun. Af því tilefni buðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Hildur Knútsdóttir, formaður stjórnar Loftslagssjóðs handhöfum styrkjanna til kaffispjalls í ráðuneytinu í dag.

    18. feb. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur umhverfisins, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Menntamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Kallað eftir nemendaverkefnum fyrir Varðliða umhverfisins

    Varðliðar umhverfisins, verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk er nú hafin í 14. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn þeirra á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Skilafrestur verkefna er 3. apríl 2020.

    07. feb. 2020Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Jafnrétti, Loftslagsmál, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherrar Íslands og Noregs ræddu við norræna forstjóra

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, funduðu sameiginlega með samtökum norrænna forstjóra, Nordic CEO´s for Sustainable Future, á fjarfundi í dag þar sem fylgt var eftir sameiginlegri yfirlýsingu forstjóranna frá því í fyrra um að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

    22. jan. 2020Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Jafnréttisþing haldið í Hörpu 20.02.2020

    Jafnréttisþing verður haldið í Hörpu fimmtudaginn 20. febrúar 2020 undir yfirskriftinni Jafnrétti í breyttum heimi: Kyn, loftslag og framtíðin.

    14. jan. 2020Rit og skýrslur, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Siglingar, Sjávarútvegur, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Orkuskipti skipa - Möguleikar á orkuskiptum á sjó: skýrsla Eflu

    Skýrsla verkfræðistofunnar Eflu þar sem skoðaðir eru möguleikar á Íslandi vegna orkuskipta á sjó, bæði fyrir innlent og erlent eldsneyti.

    12. jan. 2020Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir vegna brota á efnalögum

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir fyrir brot á efnalögum, sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

    10. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ísland undirritar stuðningsyfirlýsingu um náttúruna

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerði vernd og endurheimt vistkerfa að umtalsefni í ávarpi sínu á fundi um líffræðilegan fjölbreytileika sem haldinn var í gær í tengslum við 75. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.

    07. jan. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Skuldbindingar Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu staðfestar

    Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um loftslagsmál sem ætlað er að styrkja umgjörð skuldbindinga Íslands gagnvart Parísarsamkomulaginu til 2030. Með breytingunni er lögfest samstarf Íslands, Noregs og Evrópusambandsins um 40% heildarsamdrátt ríkjanna í losun gróðurhúsalofttegunda fram til 2030, miðað við losun ársins 1990.

    16. des. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Loftslagsráðstefnu SÞ lokið eftir langar viðræður

    Tuttugasta og fimmta aðildarríkjafundi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna lauk eftir hádegi í gær eftir langar og strangar samningaviðræður, hálfum öðrum sólarhring seinna en gert var ráð fyrir.

    09. des. 2019Utanríkismál, Loftslagsmál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisráðuneytið

    Borgarnesfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna lokið

    Fundum utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (NB8) í Borgarnesi lauk um hádegisbil í dag, en fundarhöld hófust í gær með síðbúnum sumarfundi norrænu ráðherranna. Alþjóða- og öryggismál og málefni norðurslóða voru í brennidepli á fundi NB8-ríkjanna, ásamt loftslagsmálum.

    28. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Nýsköpun, Umhverfi og náttúruvernd

    500 milljónir til Loftslagssjóðs – opnað fyrir umsóknir

    Alls verður um 500 milljónum króna varið til Loftslagssjóðs á fimm árum og þar af verða 140 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrstu úthlutun. Opnað var í dag fyrir umsóknir í Loftslagssjóð en stofnun hans er ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum.

    27. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð

    Kynningarfundur um Loftslagssjóð fer fram í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember

    22. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Breytingar á lögum um loftslagsmál í samráðsferli

    Frumvarp um breytingu á lögum um loftslagsmál hefur verið sett í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Frumvarpinu er m.a. ætlað að heimila setningu reglna sem varða kröfur vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt Parísarsamningnum.

    20. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Loftslagsmál, Jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Katrín Jakobsdóttir tók þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga og í viðburði á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti lokaávarp á Reykjavík Global Forum – heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu í dag. Í lokaávarpi sínu áréttaði forsætisráðherra mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu til að takast á við stærstu áskoranir samtímans, einkum loftslagsbreytingar, ójafnrétti og ójöfnuð.

    11. nóv. 2019Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Loftslagsmál, Orka, Umferð, Atvinnuvegaráðuneytið

    Styrkjum úthlutað til uppsetningar öflugra hraðhleðslustöðva um allt land

    Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum að upphæð 227 milljónum króna til uppsetningar 43 nýrra hraðhleðslustöðva vítt og breitt um landið. Nýju stöðvarnar eru þrisvar sinnum aflmeiri en öflugustu stöðvarnar sem fyrir eru hérlendis og eiga að stuðla að hindrunarlausum ferðum rafbíla milli landshluta.

    10. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Norðurslóðir, Umhverfi og náttúruvernd

    Guðmundur Ingi ræðir náttúruvernd og loftslagsmál á Hringborði norðurslóða

    Loftslagsmál og norðurskautið eru í forgrunni tvíhliða funda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur átt á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem nú stendur yfir í Hörpu. Fjallað verður um Vatnajökulsþjóðgarð og friðlýst svæði á norðurslóðum á sérstakri málstofu á ráðstefnunni á morgun.

    09. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Umhverfi og náttúruvernd, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra bauð forsetahjónum Indlands til hádegisverðar á Þingvöllum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, bauð Shri Ram Nath Kovind, forseta Indlands, og Savita Kovind, forsetafrú, til hádegisverðar í Ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Þau ræddu loftslagsmál og möguleika Íslands og Indlands á auknu samstarfi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Þá ræddu þau kynjajafnréttismál og fæðingarorlof.

    09. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Endurheimt landgæða lykilatriði í baráttunni gegn loftslagsvánni – ráðherra ávarpaði aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í gær aðildarríkjaþing Eyðimerkursamnings Sameinuðu þjóðanna (UNCCD) fyrir Íslands hönd. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að ríki heims reyndu að tryggja sjálfbæra landnýtingu og endurheimt vistkerfa til að sporna við hamfarahlýnun af mannavöldum.

    03. nóv. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna hófst í Naíróbí í Kenía í dag. Á þinginu eru rædd ýmis brýn úrlausnarefni sem fyrir liggja í umhverfismálum á heimsvísu og í þetta sinn verða sjálfbær neysla og framleiðsla í brennidepli.

    30. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Formennska Íslands 2019, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra situr Norðurlandaráðsþing

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sótti Norðurlandaráðsþing sem var sett í Stokkhólmi í gær. Forsætisráðherra tók þar þátt í störfum þingsins og í þemaumræðu forsætisráðherra fjallaði hún um lýðræðislegt hlutverk grasrótarhreyfinga, stjórnmálaflokka og frjálsra félagasamtaka í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

    30. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkismál, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Aukið norrænt samstarf í málefnum hafs og loftslags

    Norrænir umhverfis- og loftslagsráðherrar undirrituðu í dag yfirlýsingu um sjálfbærni í hafmálum á Norðurlöndum og nauðsyn þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga á hafið en fundur þeirra stendur nú yfir í Stokkhólmi. Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og er hafið eitt af áherslumálum Íslands.

    28. okt. 2019Forsætisráðuneytið, Norrænt samstarf, Loftslagsmál

    Forsætisráðherra sækir Norðurlandaráðsþing og fundar með norrænum forsætisráðherrum

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, situr setningu Norðurlandaráðsþings í Stokkhólmi á morgun en þingið stendur yfir dagana 29. til 31. október. Þar mun forsætisráðherra taka þátt í störfum þingsins og í sérstakri þemaumræðu norrænna forsætisráðherra. Einnig verður forsætisráðherra viðstödd afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs annað kvöld í Stokkhólmi.

    25. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Samkomulag Íslands og Noregs við ESB á sviði loftslagsmála

    Gengið var frá samkomulagi Íslands og Noregs við Evrópusambandið á sviði loftslagsmála í dag, með ákvörðun á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Með samkomulaginu eykst samvinna Íslands og Noregs með ríkjum ESB á sviði loftslagsmála og ríkin búa við sambærilegar reglur og skuldbindingar.

    22. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Auðlindir, Samgöngur og fjarskipti, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka

    Styrkjum úthlutað til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt

    Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum til uppsetningar hleðslustöðva við gististaði um land allt þar sem hægt verður að hlaða ríflega 110 rafbíla á hverjum tíma. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta í samgöngum.

    20. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti nýafstaðna ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldnir voru í Washington DC. Þá undirritaði hann viljayfirlýsingu um mögulegt samstarf við samtökin Conservation International á sviði fiskimála í Kyrrahafsríkjum.

    12. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    „Verðum að nálgast loftslagsvána með hugarfari þess sem vill og getur“ – umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði Loftslagsráðstefnu SÞ

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði í dag Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Hann hvatti þjóðir heims til lausnamiðaðrar nálgunar í baráttunni gegn hamfarahlýnun. „Ef athafnir okkar geta stefnt okkur í jafnmikinn voða og raun ber vitni þá getum við líka gripið til aðgerða sem afstýra hættunni. Við mannfólkið getum unnið stórkostleg afrek. Við verðum að nálgast loftslagsvána með hugarfari þess sem vill og getur.“

    09. okt. 2019Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Neytendamál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Auknir fjármunir til loftslagsmála, náttúruverndar og hringrásarhagkerfisins

    Framlög til umhverfismála hækka um rúman einn milljarð króna milli áranna 2019 og 2020 samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Er þá ekki meðtalin hækkun vegna launa- og verðlagsbóta sem nema tæpum 400 milljónum króna.

    05. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Umhverfisstofnun skilar skýrslu um áætlaðan samdrátt í losun

    Umhverfisstofnun hefur skilað skýrslu til Evrópusambandsins með spá fyrir losun gróðurhúsalofttegunda fyrir Ísland til 2035. Spáin byggir m.a. á orku- og eldsneytisspá og á upplýsingum sem stofnunin hefur safnað.

    04. okt. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Formennska Íslands 2019, Norrænt samstarf, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Þörf á metnaðarfullum markmiðum fyrir náttúruna

    Á fundi sínum í Reykjavík í dag ræddu norrænu umhverfisráðherrarnir mikilvægi þess að sett verði metnaðarfull markmið í baráttunni gegn hnignun náttúrunnar í gegnum samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegrar fjölbreytni. Þeir leggja áherslu á að nýta aðferðir náttúrunnar við að takast á við loftslagsmálin, svo sem með endurheimt skóga og votlendis og landgræðslu. Enn fremur vilja ráðherrarnir tryggja að ungt fólk fái tækifæri til að taka þátt í vinnu Sameinuðu þjóðanna við að setja þessi markmið.

    28. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu í kvöld. Utanríkisráðherra ræddi einnig óöldina í Sýrlandi og Jemen og skoraði á þau ríki sem ýta undir ófriðinn að beita sér frekar fyrir friði.

    26. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flytur ávarp á fundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hélt opnunarávarp á kynningarfundi um skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem kom út í gær.

    26. sep. 2019Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samgöngur og fjarskipti, Samgönguáætlun, Samgöngusáttmálinn, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Vegasamgöngur, Loftslagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál

    Sáttmáli undirritaður um fjölbreyttar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu

    Í dag var undirritað tímamótasamkomulag um uppbyggingu á fjölbreyttum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.

    25. sep. 2019Dómsmálaráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Utanríkismál, Forsætisráðuneytið

    Leiðtogafundur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og vettvangur um viðskipti og sjálfbæra þróun

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sat opnun á leiðtogafundi um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur leiðtogafundur er haldinn frá því markmiðin voru samþykkt árið 2015. Þá stýrði forsætisráðherra pallborðsumræðum í dag ásamt Carlos Alvarado Quesada, forseta Kosta Ríka um heimsmarkmiðin.

    25. sep. 2019Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Sjávarútvegur, Auðlindir

    Vöktun á súrnun sjávar og jöklum aukin

    Ríflega 250 milljónum króna verður varið til að efla vöktun á súrnun sjávar og á jöklum næstu fimm árin hér á landi. Þetta var tilkynnt í dag í tilefni útkomu nýrrar skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og freðhvolfið.

    23. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Forsætisráðherra flutti ávarp á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Leiðtogafundurinn er haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þar sem hann kallar eftir forystu leiðtoga heims í aðgerðum gegn loftslagsvánni.

    22. sep. 2019Forsætisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Heimsmarkmiðin

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um loftslagsmál á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sækir leiðtogafund um loftslagsmál á 74. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur yfir þessa dagana í New York. Loftslagsfundurinn er haldinn að frumkvæði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, þar sem hann kallar eftir afgerandi forystu leiðtoga heims á vettvangi loftslagsbreytinga og hvetur ríki til þess að grípa til róttækra aðgerða til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsvánnar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband