23. mar. 2021Dómsmálaráðuneytið, Réttarfar, Lög og réttur
Réttarvörslugátt tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna
Í flokki vefkerfa er stafræn réttarvörslugátt tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna. Stafræn réttarvörslugátt er verkefni sem er leitt af Dómsmálaráðuneytinu og snýst um að útbúa stafrænan farveg fyrir örugga og hraða miðlun gagna og upplýsinga á milli aðila í réttarvörslukerfinu, m.a. lögreglu, ákæruvalds, dómstóla, fangelsa og lögmanna eða ytri aðila.