30. des. 2020Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Brexit, Persónuvernd, Dómsmálaráðuneytið
Miðlun persónuupplýsinga til Bretlands áfram heimil án hindrana eftir Brexit
Ísland, Evrópusambandið og Bretland hafa komist að samkomulagi um tímabundið óbreytt fyrirkomulag um miðlun persónuupplýsinga til Bretlands. Samkomulagið mun taka gildi um áramót en auglýsing þess efnis birtist í C-deild Stjórnartíðinda.