Sæl, Sigríður
Undanfarin ár hafa íslensk stjórnvöld, fræðasamfélagið og fyrirtæki fjárfest verulega í máltækniinnviðum fyrir íslensku; svo sem talgreiningu, talgervingu, vélþýðingu og stórum málgagnasöfnum. Þessi vinna hefur þegar skilað árangri og flest stærstu tæknifyrirtæki heims, þar á meðal Microsoft, Google og þróunaraðilar helstu gervigreindarlíkana, styðja nú íslensku með einum eða öðrum hætti. Eftir situr tæknirisinn Apple, sem er með ríkjandi markaðshlutdeild á símamarkaði hérlendis.
Hvað þýðir það?
Það er afskaplega auðvelt að sjá ekki hversu mikilvægt það er að tæknilausnir virki fyrir sem flesta og það á íslensku. Við sem getum nýtt þessa tækni finnum ekki fyrir þeirri lífsgæðaskerðingu sem verður þegar tæknin skilur okkur ekki. Þannig var ég nýverið í póstsamskiptum við blindan einstakling. Þegar fyrsti pósturinn barst frá honum velti ég því ekki fyrir mér hvernig hann læsi póstana frá mér, hvort letur og framsetning skiptu sköpum fyrir þau tæki sem hann notar eða hvort símtal hentaði betur. Ég hugsaði ekki út í þá vinnu sem lá að baki hverri setningu sem hann skrifaði á íslensku.
ÖBÍ hefur í réttindabaráttu sinni lagt mikla áherslu á hversu stórkostlegt það væri fyrir meðlimi réttindasamtaka þeirra að geta nýtt innbyggðar aðgengislausnir á íslensku. Blind móðir gæti látið símann lesa upp tölvupóst frá skólanum og lesið svar sitt inn í símann. Hún gæti opnað myndavélina í verslun og látið símann lesa textann á umbúðum eða lýsa flík. Drengur með skerta heyrn gæti skellt símanum á borðið á kaffihúsi þar sem kliður er og kveikt á rauntímatextun svo hann ætti auðveldara með að fylgja samtalinu. Þá eru ótaldir möguleikar Apple-spjaldtölva í kennslu, við endurhæfingu og til tjáningar. Apple skilur og leggur áherslu á aðgengi og mannréttindi. Apple skilur bara ekki íslensku – ennþá!
Bluey og Bieber
Án íslensku í þeim tækjum sem bjóða bestu innbyggðu aðgengiseiginleikana situr okkar fólk eftir. Heimilislífið fer að stórum hluta fram á ensku þvert á vilja viðkomandi. Faðir með takmarkaða hreyfigetu velur Bluey á Disney en ekki Blæju á RÚV. Hann gefst upp á að reyna að spila Herra Hnetusmjör, eftir að hafa hlustað á fjórar útgáfur af lögum eftir hljómsveitir sem heita nafni sem hefst á „Hell,“ og kveikir á Justin Bieber.
Maður með MS sem á erfitt með að hreyfa fingurna er mun lengur að fylla út beiðni um akstur í þar til gerðu beiðnakerfi því hann getur ekki lesið íslensk nöfn og heimilisföng inn í eyðublaðið. Siri getur heldur ekki opnað Hljóðbókasafnið eða Íslandsbankaappið. Tæknin til þess er vissulega til staðar, bara ekki tungumálið – og þar af leiðandi ekki það persónulega öryggi sem hann þarf til að sinna eigin fjármálum án aðstoðar í símanum.
Tala ekki allir ensku?
Ekki er hægt að ganga út frá því að allir skilji ensku. Það á meðal annars við um börn, hluta eldra fólks og fólk sem hefur ekki lært ensku eða misst færni í henni vegna sjúkdóms eða fötlunar. Tjáskiptavandi getur einnig verið af ýmsum toga en samkvæmt upplýsingum frá ÖBÍ eiga um 300 börn í hverjum árgangi við alvarlegan tjáskiptavanda að stríða. Tæknin getur fjölgað tækifærum til tjáningar og tungumálið getur ráðið úrslitum um aðgengi að samskiptum, námi og daglegum verkefnum.
Tökum Apple sem dæmi – af hverju skiptir það máli að stjórnvöld beiti sér af fullum þunga fyrir því að Apple innleiði íslensku í stýrikerfi tækja sinna? Vissulega eru til margar góðar lausnir og mismunandi forrit og tæki en það er að mörgu leyti einfaldara að geta átt við tæki sem tala innbyrðis saman –síma, sjónvarp, spjaldtölvu og heyrnatól - og eru með innbyggðar aðgengislausnir.
Google, Samsung og margir aðrir hafa vissulega gert vel í þessum efnum og er íslenska aðgengileg að hluta til hjá þessum framleiðendum. Apple virðist þó enn sem komið er skara fram úr hvað varðar aðgengismál og hafa gert þau að kjarnagildi sínu og hluta af allri hönnun frá upphafi –ekki sem viðbót. Samkvæmt upplýsingum fráÖBÍ eru Apple-símar yfirleitt fyrsta val hjá fötluðum þar sem aðgengislausnir og forrit eru yfirleitt þróuð fyrst og stundum eingöngu fyrir Apple tæki. Þar sem lausn eins og talgervill er innbyggðí símann hrynur hún ekki við uppfærslur á stýrikerfi símans, er ekki háðáskriftaraðgangi, er kunnugleg notendahópnum og krefst þess ekki að flakkað sé á milli forrita eða tækja til að framkvæma einfalda aðgerð. Innbyggður stuðningur skiptir máli fyrir samfellu og einfaldleika í notkun – þar að auki viljum við að íslenska sé aðgengileg í sem flestum tækjum.
Þú getur ýtt við Apple
Tækninni fleygir fram en þegar nýjar lausnir styðja ekki íslensku situr okkar fólk eftir – fólk með tjáskiptavanda, sjúkdóma, fötlun eða aldurstengdar áskoranir. Við erum að tala um drjúgan hluta þjóðarinnar. Fyrir þennan hóp er máltækni ekki munaður heldur mannréttindi.
Ef íslenska á að eiga framtíð í gervigreind og stafrænum lausnum þarf hún að vera sjálfsagður hluti af tækninni sem við notum á hverjum degi. Mikið væri það stórkostlegt ef Siri, sem ég kýs að kalla Sigríði, myndi svara á íslensku. „Jú blessaður væni! Gaman að kynnast þér.“
Það er okkar sameiginlega verk að hlúa að íslenskunni og sjá til þess að við getum öll notað hana í daglegu lífi. Við höfum afhent Apple íslensk máltæknigögn. Nú þurfum við að láta í okkur heyra og þrýsta á Apple að setja íslensku á dagskrá í tækjum sínum.
Því hvet ég sem flesta til að skrifa undir sameiginlegt ákall til Apple á tryggjumislensku.is
Greinin birtist á degi íslenskrar tungu 16.11.2026 á visir.is -
Höfundur er menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra.