Starfshópurinn skal taka mið af niðurstöðum og fylgja eftir tillögum sem fram koma í skýrslu Barna- og fjölskyldustofu frá árinu 2025 um stöðu innleiðingar farsældarlaganna í framhaldsskólum á Íslandi, leggja mat á stöðu innleiðingar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum og greina helstu áskoranir og úrbótatækifæri. Hópurinn skal jafnframt stuðla að samræmdu verklagi, upplýsingagjöf og samstarfi hlutaðeigandi aðila og gera tillögur um stuðning, fræðslu og mælikvarða.
Starfshópurinn skal skila mennta- og barnamálaráðuneytinu stuttri stöðuskýrslu um framgang verkefnisins eigi síðar en 1. mars 2027.
Starfshópurinn starfar frá 1. október 2026 - 30. september 2027.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Sigríður Björk Guðjónsdóttir, formaður, án tilnefningar,
- Kolbeinn Tumi Kolbeinsson, án tilnefningar
- Linda Rós Alfreðsdóttir, án tilnefningar
- Ásrún Jónsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands
- Emil Arthúr Júlíusson, tilnefndur af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema
- Guðrún Helga Ástríðardóttir, tilnefnd af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
- Sandra Hlín Guðmundsdóttir, tilnefnd af Félagi náms- og starfsráðgjafa
- Sólveig Rósa Sigurðardóttir, tilnefnd af Barna- og fjölskyldustofu.