Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
Skipuð 30. apríl 2025.
Svæðisstjórnin er skipuð til fjögurra ára skv. 4. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 með síðari breytingum.
Hlutverk svæðisstjórnar er að móta stefnu fyrir svæðið samkvæmt ákvæðum laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Svæðisstjórnin er hluti af Náttúruverndarstofnun, eins og nánar er kveðið á um í lögum um stofnunina og skipunarbréfi ráðherra.
Svæðisstjórnin kemur að þróun þeirrar þjónustu sem Náttúruverndarstofnun annast innan Vatnajökulsþjóðgarðs og veitir forstjóra og öðrum stjórnendum ráðgjöf um áherslur í rekstri.
Í svæðisstjórn skulu sitja átta fulltrúar: formenn allra svæðisráða þjóðgarðsins, einn fulltrúi tilnefndur af náttúru- og umhverfisverndarsamtökum, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður svæðisstjórnar. Varaformaður er skipaður af ráðherra sem varamaður formanns og varamenn annarra fulltrúa skulu tilnefndir og skipaðir á sama hátt og aðalmenn. Skal annar fulltrúinn sem skipaður er án tilnefningar hafa fagþekkingu á verksviði þjóðgarða. Einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á starfssvæði þjóðgarðsins og Samtökum ferðaþjónustunnar skal eiga áheyrnaraðild að fundum stjórnar.
Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs er þannig skipuð:
Án tilnefningar
Sigurjón Andrésson, formaður og
Ívar Karl Hafliðason, varamaður formanns og varaformaður.
Fulltrúar frá svæðisráði norðursvæðis
Gerður Sigtryggsdóttir
Árni Pétur Hilmarsson , til vara
Fulltrúar frá svæðisráði vestursvæðis
Þráinn Ingólfsson
Elín Heiða Valsdóttir
Fulltrúar frá svæðisráði austursvæðis
Vilhjálmur Jónsson
Urður Gunnarsdóttir, til vara
Fulltrúar frá svæðisráði suðursvæðis
Eyrún Fríða Árnadóttir
Samkvæmt tilnefningu umhverfis-- og náttúruverndarsamtaka
Benedikt Traustason
Sævar Þór Halldórsson, til vara
Samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Snorri Ingimarsson,
Skúli Haukur Skúlason, til vara,
Áheyrnarfulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á svæði Vatnajökulsþjóðgarðs og Samtökum ferðaþjónustunnar
Ágúst Elvarsson,
Arnheiður Jóhannsdóttir, til vara,