Hoppa yfir valmynd

Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði

Innviðaráðuneytið

Skipað 13. janúar 2022.

Svæðisráðið hefur það hlutverk að vinna að gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði sbr. lög um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018.

Fulltrúar í svæðisráði bera ábyrgð á gerð strandsvæðisskipulags og starfa í umboði ráðherra og starfa á grundvelli fyrrgreindra laga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

Skipulagsstofnun er svæðisráði til ráðgjafar og annast gerð strandsvæðisskipulagsins í umboði þess og þá málsmeðferð sem lögin kveða á um. Stofnunin leggur svæðisráði til aðstöðu og starfsmann vegna funda ráðsins.

Samkvæmt lögum þeim ber fagstofnunum og vatnasvæðisnefndum, skv. lögum um stjórn vatnamála, að leggja fram gögn vegna vinnu svæðisráða auk þess sem samráðshópur sem ráðherra skipar skal vera svæðisráði til ráðgjafar og samráðs við undirbúning og gerð strandsvæðisskipulags.

Þegar strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði hefur tekið gildi gildir skipan svæðisráðsins þar til að loknum alþingiskosningum.

Svæðisráðið er þannig skipað:

  • Magnús Jóhannesson, formaður, skipaður án tilnefningar,
  • Eggert Ólafsson, lögfræðingur, varafulltrúi, skipaður án tilnefningar.

Aðalfulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:

  • Jón Björn Hákonarson
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir
  • Ívar Karl Hafliðason

Varafulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:

  • Sigurður Ólafsson
  • Kári Snær Valtingojer
  • Jón Þórðarson

Fulltrúar innviðaráðuneytis:

  • Ásta Þorleifsdóttir, sérfræðingur, aðalfulltrúi,
  • Friðfinnur Skaftason, verkfræðingur, varafulltrúi.

Fulltrúar matvælaráðuneytisins:

  • Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur, aðalfulltrúi,
  • Hjalti Jón Guðmundsson, sérfræðingur, varafulltrúi.

Fulltrúar umhverfis- og orku- og loftslagsráðuneytisins:

  • Erla Sigríður Gestsdóttir, verkfræðingur, aðalfulltrúi,
  • Hreinn Hrafnkelsson, viðskiptafræðingur, varafulltrúi.

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga:

  • Eydis Ásbjörnsdóttir, aðalfulltrúi,
  • Stefán Þór Eysteinsson,  formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, varafulltrúi.
Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum