Hoppa yfir valmynd

Stjórn dómstólasýslunnar

Dómsmálaráðuneytið

Hinn 1. janúar 2018 tók til starfa ný og sjálfstæð stjórnsýslustofnun er ber heitið dómstólasýslan. Dómstólasýslan annast sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna og gegnir víðtæku stjórnsýslulegu hlutverki. Hún mun m.a. hafa það hlutverk að leggja mat á og gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar fjárveitingar til dómstólanna, ákveða fjölda héraðsdómara og annarra starfsmanna við hvern héraðsdómstól, veita dómurum leyfi og skipuleggja símenntun dómara og annarra starfsmanna dómstólanna, vera í fyrirsvari fyrir sameiginlega stjórnsýslu dómstólanna og koma fram gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum og öðrum í þágu dómstólanna sameiginlega, fara með yfirstjórn upplýsingamála og tæknimála við dómstólana og annast þróun þeirra o.fl. Sjá nánar á vef dómstólasýslunnar, domstolasyslan.is.

Dómsmálaráðherra skipar stjórn dómstólasýslunnar samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016. Stjórnina skipa:

  • Sigurður Tómas Magnússon hæstaréttardómari, formaður, varamaður hans er Ingveldur Einarsdóttir, hæstaréttardómari.
  • Jón Höskuldsson landsréttardómari, varamaður hans er Arnfríður Einarsdóttir landsréttardómari.
  • Lúðvík Örn Steinarsson, varamaður hennar er Þyrí Halla Steingrímsdótttir, lögmaður.
  • Lilja Björk Sigurjónsdóttir, gæðastjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, varamaður hennar er Erna Björt Árnadóttir, dómritari.
  • Halldór Björnsson, héraðsdómari, varamaður hans er Arnaldur Hjartarson, héraðsdómari.

Framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar er Ólöf Finnsdóttir.

 
Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum