Endurkröfunefnd bifreiðatrygginga
Nefndin kveður á um hvort beita skuli endurkröfurétti vegna stórkostlegs gáleysis eða ásetnings þess sem ábyrgð ber á tjóni sem vátryggingafélag hefur bætt samkvæmt lögum um ökutækjatryggingar. Hún starfar samkvæmt 20. gr. laga um ökutækjatryggingar.
Skal einn nefndarmaður skipaður eftir tilnefningu vátryggingafélaga þeirra sem viðurkenningu hafa skv.8. gr., einn eftir tilnefningu Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Samtaka verslunar og þjónustu, og einn án tilnefningar, og er hann formaður nefndarinnar. Skipunartími nefndarinnar skal vera þrjú ár.
Í nefndinni sitja (skipuð 2024-2027):
- Helgi Jóhannesson, formaður, án tilnefningar
- Edda Björk Andradóttir, tilnefnd af FÍB/SVÞ
- Íris Björk Hreinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
Til vara:
- Jóhann Fannar Guðjónsson, tilnefndur af FÍB/SVÞ
- Heiðrún Jónsdóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
Póstfang nefndarinnar er: [email protected]