Hoppa yfir valmynd

Fagráð um flugmál

Innviðaráðuneytið

Hlutverk fagráðs um flugmál er að vera ráðherra til ráðuneytis um flug- og loftferðamál. Fagráðið er skipað í samræmi við ákvæði 2. mgr. 3. gr. laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála nr. 119/2012.

Helstu verkefni fagráðs um flugmál eru að fjalla um og eftir atvikum að veita umsögn um:

  • lagafrumvörp og drög að reglugerðum er varða flugmál,
  • tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun sbr. lög um samgönguáætlun,
  • stefnumótun í flugmálum,
  • önnur þau mál sem ráðherra eða einstaka fulltrúar fagráðsins óska eftir að ráðið taki til umfjöllunar,
  • mál sem eru í vinnslu í ESB og til að kynna innleiðingu vegna EES-gerða.

Fagráð um flugmál er þannig skipað:

  • Þorgeir Pálsson, formaður, tilnefndur af innviðaráðherra,
  • Valgerður B. Eggertsdóttir, varaformaður, tilnefnd af innviðaráðherra,
  • Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins,
  • Lárus M. K. Ólafsson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, 
  • Sigrún Jakobsdóttir, tilnefnd af ISAVIA,
  • Þórhallur Haukur Reynisson, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar, 
  • Matthías Sveinbjörnsson, Flugmálafélagi Ísl,
  • Páll Sveinbjörn Pálsson, tilnefndur af Samgöngustofu.
Skipunartími er frá og með 6. janúar 2023 til og með 31.12.2026

Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum