Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 28. september sl. að skipa nefnd með fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að leiða fyrir hönd stjórnvalda viðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar Íslands 27. september 2018 í endurupptökumáli nr. 521/2017 og aðstandendur þeirra.
Verkefni nefndarinnar eru nánar tiltekið að koma fram fyrir hönd stjórnvalda í viðræðum og sáttaumleitunum við aðila málsins og aðstandendur þeirra og gera tillögu til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanlega greiðslu miska- og skaðabóta eða eftir atvikum svonefndra sanngirnisbóta til aðila málsins og aðstandenda þeirra.
Nefndina skipa:
- Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur, sem fulltrúi forsætiráðuneytis og formaður nefndarinnar.
- Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu.
- Magnús Óskar Hafsteinsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.