Sóttvarnaráð
Sóttvarnaráð er skipað skv. 6. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, til fjögurra ára í senn. Þar skulu eiga sæti sérfræðingar á sviði smitsjúkdómalækninga, bakteríufræði, veirufræði, kynsjúkdóma og faraldsfræði/heilbrigðisfræði, heilsugæslulæknir og hjúkrunarfræðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna. Ráðið mótar stefnu í sóttvörnum og skal vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðgjafar um aðgerðir til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma.
Aðalmenn
- Ólafur Guðlaugsson, sérfræðingur á sviði smitsjúkdóma, formaður
- Karl G. Kristinsson, sérfræðingur á sviði bakteríufræði, varaformaður
- Brynja Ármannsdóttir, sérfræðingur á sviði veirufræði
- Elísabet R. Jóhannesdóttir, sérfræðingur á sviði húð- og kynsjúdóma
- Gunnar Tómasson, sérfræðingur á sviði faraldsfræði/heilbrigðisfræði
- Nanna S. Kristinsdóttir, heilsugæslulæknir
- Ingunn Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna.
Varamenn
- Agnar Bjarnason, sérfræðingur á sviði smitsjúkdóma
- Guðrún Svanborg Hauksdóttir, sérfræðingur á sviði bakteríufræði
- Guðrún Erna Baldvinsdóttir, sérfræðingur á sviði veirufræði
- Erna Milunka Kojic, sérfræðingur á sviði kynsjúdóma
- Valtýr Thors, sérfræðingur á sviði faraldsfræði/heilbrigðisfræði
- Ásmundur Jónasson, heilsugæslulæknir
- Sigrún Rósa Steindórsdóttir, hjúkrunarfæðingur með sérþekkingu á sviði sóttvarna
Skipun ráðsins er frá 4. júní 2025 til 3. júní 2029.