Hlutverk raflínunefndar er að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga, veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku sem byggjast á samþykktri kerfisáætlun og hafa eftirlit með þeim framkvæmdum og framkvæmd raflínuskipulagsins. Tilgangur þess að skipa raflínunefnd er að brúa ágreining og tryggja að stórframkvæmdir, sem varða mikilvæga þjóðarhagsmuni, geti gengið eftir á málefnalegan og skilvirkan hátt. Raflínunefndin er skipuð fulltrúum Borgarbyggðar, Húnaþings vestra, Hvalfjarðarsveitar, umhverfis- orku og loftslagsráðuneytis og félags- og húsnæðismálaráðuneytis, sem jafnframt fer með formennsku.
Nefndin er svo skipuð:
Gissur Pétursson, formaður, fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytis,
Ragnhildur Eva Jónsdóttir, fulltrúi Borgarbyggðar,
Magnús Magnússon, fulltrúi Húnaþings vestra,
Helga Harðardóttir, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar,
Magnús Dige Baldursson, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.