Starfshópur um CBAM

Skipaður 14. júlí 2026.

Yfirstandandi er vinna við upptöku reglugerðar (ESB) 956/2023 um kolefnisgjald við landamæri (CBAM). Samhliða því fer fram undirbúningur vegna framkvæmdar CBAM-kerfisins á Íslandi. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Umhverfis- og orkustofnun og Skatturinn hafa unnið saman að upptöku og undirbúningi. Jafnframt er í undirbúningi innleiðing CBAM í íslenskan rétt á grunni áætlaðrar upptöku í EES-samninginn. Þá hefur verið tekin ákvörðun um það að Umhverfis- og orkustofnun fari með hlutverk lögbærs stjórnvalds á Íslandi.

Starfshópurinn kemur að útfærslu og ákvörðunum vegna ýmissa tæknilegra atriða sem snúa að framkvæmd CBAM-kerfisins á Íslandi.

Hlutverk hópsins er að stuðla að samræmdri framkvæmd CBAM-kerfisins. Hópurinn mun ekki hittast reglubundið á formlegum fundum nema til að undirbúa veigamiklar ákvarðanir vegna framkvæmdarinnar. Tilgangur hópsins er ekki síður að formfesta hóp undir forystu lögbærs stjórnvalds sem hefur skýrt umboð til þess að hafa umsjón með undirbúningi framkvæmdar CBAM, þvert á ráðuneyti og stofnanir.

Hópurinn mun starfa fram til næstu áramóta, eða þangað til áætlað er að CBAM-kerfið taki gildi á Íslandi.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Frá Umhverfis- og orkustofnun
Eysteinn Hrafnkelsson, formaður
Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir, varamaður formanns.

Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
Íris Bjargmundsdóttir, lögfræðingur
Helga Barðadóttir, til vara.

Frá fjármála- og efnahagsráðuneyti
Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir
Benedikt Axel Ágústssón, til vara.

Frá utanríkisráðuneyti
Daníel Arnar Magnússon
Emma Adolfsdóttir, til vara.

Frá Ríkisskattstjóra
Guðni Ólafsson
Ásgrímur Ásmundsson, til vara.

Var efnið hjálplegt?