Skipaður 14. október 2026
Hlutverk starfshópsins er að undirbúa viðbrögð við löggjafartillögum framkvæmdastjórnar ESB vegna endurskoðunar ETS-kerfisins sem kynntar voru 17. júlí sl., þ.e. COM (2026) 616 og tengdar gerðir, byggt m.a. á greiningum Umhverfis- og orkustofnunar, greiningu DNV á áhrifum veðurs á orkunotkun skipaflutninga til Íslands og greiningu ICF á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á flugstarfsemi undir ETS, auk áhrifamats framkvæmdastjórnarinnar.
Starfshópurinn setji fram tillögu að umsögn stjórnvalda til framkvæmdastjórnarinnar meðan regluverkið er á tillögustigi og geri tillögu að afstöðu stjórnvalda þegar kemur að upptöku endurskoðaðra ETS-reglna í EES-samninginn.
Starfshópurinn eigi samráð við viðeigandi sérfræðinga í Stjórnarráðinu, stofnanir, loftslagsráð og hagaðila, eftir því sem við á.
Starfshópurinn starfar þar til að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggur fyrir um upptöku reglugerða vegna ETS-endurskoðunar í EES-samninginn. Gert er ráð fyrir að starfshópur utanríkisráðherra vegna hagsmunagæslu vegna ETS og millilandaflugs verði leystur frá störfum frá sama tíma og að þessi hópur taki yfir hlutverk þess hóps.
Án tilefningar
Sandra Ó. Snæbjörnsdóttir, formaður
Sigríður Rós Einarsdóttir, varafulltrúi
Darri Sigþórsson
Erla Sigríður Gestsdóttir, varafulltrúi
Vanda Liv Úlfrún Hellsing
Samkvæmt tilnefningu utanríkisráðuneytis
Emma Adolfsdóttir,
Daníel Arnar Magnússon, varafulltrúi,
Samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
Vala Hrönn Viggósdóttir
Katrín Pálsdóttir
Friðfinnur Skaftason, varafulltrúi
Ágúst Bogason, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
Guðrún Birna Finnsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Umhverfis- og orkustofnunar
Aðalbjörg Egilsdóttir
Einar Halldórsson, varafulltrúi